Fimmtudagur, 2. janúar 2014
ESB
Ef Ísland væri í ESB og með Evru þá væri þetta vandamála ekki til staðar.
"gjaldeyrisstaða", "verðtryggð lán" "gengisfall".... öll þessi hugtök væru okkur Íslendingum algjörlega ókunn.
Þar að segja ef við værum í ESB og með EVRU.
En einangrunarsinnar vilja halda okkur í verri lífskjörum til framtíðar.
Já við ESB'
hvells
![]() |
Gjaldeyrisstaða þjóðarbúsins betri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Kannski værum við í sömu sporum og Grikkland og Portúgal?
H. Valsson (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 15:40
Þetta er hárrétt hjá Hvells. Hér væru lífskjör einfaldlega miklu betri. Það er dæmigert fyrir ESB hatara að fara að röfla um Grikkland og Portúgal, lönd sem eiga ekkert sameiginlegt með okkur og hafa aldrei átt. Afhverju nefnið þið aldrei Danmörku þar sem lífskjör eru miklu betri en á Íslandi þrátt fyrir að Danir eigi nánast engar auðlindir ? ...Nú eða Holland, Belgíu, Svíþjóð, Þýskaland svo nokkrar þjóðir séu nefndar þar sem lífskjör eru betri en á 300 þúsund manna eyju sem veður í auðlindum ?
Reynið að útskýra þetta fyrir mér áður en næsti kafli í Grikklandstuðinu hefst, takk fyrir.
Óskar, 2.1.2014 kl. 16:09
Rett óskar!
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 16:59
Vegna þess að þessi lönd fóru ekki á hausinn í kreppunni.
Ég hef nú reyndar búið í Danmörku í 8 ár og hef það fínt hérna.
H. Valsson (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 17:01
Það hefur ekkert land í Evrópu farið á hausinn í kreppunni
Að halda því fram þá ertu í raun að opinbera vanþekkingu þína á málinu
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 19:34
Gjaldeyrisstaða þjóðarbúsins betri; þetta er hægt án þess að vera í ESB og vera með evru?
Þvílíkt og annað eins og án þess að borga miljarða í ESB gjöld, ég skil bara ekkert í þessu.
Nei það er enginn þörf á ESB á Íslandi.
Hveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 3.1.2014 kl. 11:22
Gleðiðlegt ár Jóhann,
Ísland er í EES og það jafngildir því að vera ákskrifendur að lögum bandalagsins og borga næstum jafn mikið og aðildarríki. EES ríkin kallast faksmeðlimir ESB það þau fá lagagreinar faxaðar til sín (ef ekki með E-pósti) EES ríkin eru undanþeginn landbúnaðarstefnunni en í raun borgum við miklu meira til íslensks landbúnaðar. Raunar gera stærstu útgerðarfyrirtækin upp í Evrum greiða raunar kvótagjald fyrir makríl í Færeyjum en þetta er nú gefið 11 fjölskyldum á Íslandi fyrir ekki neitt. Færeyjar eru með danska krónu og lága vexti og ekkert ríki er háð fiskveiðum jafn mikið og Færeyjar sem holar þá goðsögn að "sveigjanleiki" íslensku krónunnar sé einhver kostur. Núna erum við í gjaldeyrishöftum og Íslendingar geta ekki einhliða tekið upp amerískan eða kanadískan dollar það þýðir ekkert að benda á fátæk Miðameríkuríki sem gerðu þetta. Það verður annað hvort Evra eða haftakróna um alla framtíð.
80% af útflutningi Íslands er til EES landa og það mun ekkert breytast í bráð.
Gunnr (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 17:29
Það eru 20 ár síðan Ísland varð aðili að ESB og endurskoðaði samningurinn sem er langtum verri var gerður fyrir 10 árum og þar eru Noregur, Ísland sem er nánast gjaldþrota smáríki með 330 þús íba og Licthenstein sen er skattaskjól og furstadæmi með um 30 þús íbúa og er ákaflega tengt Sviss.
Finnland, Svíþjóð, Austurríki þessi gömlu EFTA lönd eru öll orðin meðlimir.
Bandaríkjamönnum er í raun skítsama um Ísland og Kanada er það í raun einnig. Menn hafa verið að sleikja sig upp við Kína og Rússland en það hefur í raun enginn farið neitt vel út úr viðskiptum sínum við Kína.
Gunnr (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 17:34
Það er í raun svolítið einkennilegt þegar menn skauta yfir þá staðreynd að menn séu í EES og tala um það sem einhverja endanlega lausn.
EES hengur saman með Noregi og í Noregi var gerð óháð rannsók á þessu og menn komust að því að aðkoma Noregs gegnum EES 1 og 2 og Schengen ofl. (sem er nákvæmlega sú sama og Íslands) jafngildir í raun 3/4 aðild að bandalaginu. Með að greina þetta http://www.europautredningen.no/
Ótrúlegt að Íslendingar skuli enn ekki verið búnnir að fatta þetta 20 árum seinna. Raunar var það í stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem EES2 og Schengen var gerð en þær stjórnir vildu þá láta kalla sig "einkavæðingarstjórnir".
Andstæðingar ESB vilja fara út úr EES en þeir eru með þingstyrk sem jafngildir hálfum þingstyrk íslensku Piratana á norska þinginu (SV systurflokkur VG fengu 4% og Senterpartiet systurflokkur Framsóknarflokksins fékk rétt yfir 5% fylgi núna í síðustu kosningum.) Fyrsta heimsókn Ernu Solberg formanns Hægri var sem Stoltenbergs til Merkel Þýskalandskanslara enda er Þýskaland aðal viðskiptaland Noregs og vægi Bandaríkjanna er snarminnkandi og áhrif Bretlands einnig.
Ef masterplanið um hið stóra fríverslunarsvæði ESB og Bandaríkjanna og Kanada mun verða að veruleika mun Noregur fara hraðferð inn í ESB og það er unnið að því öllum árum enda hefur olíusmurð utanríkisþjónusta Noregs verið óspart notuð til að kaupa sér áhrif. Hvað gerir Ísland þá, skuldug fátæk eyja svipað og Portútgal byggir á ferðamannaþjónustu, fiskveiðum og með einhverjar álbræðslur.
Gunnr (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 17:47
Gleðilegt ár Gunnr.
"Ísland er í EES og það jafngildir því að vera ákskrifendur að lögum bandalagsins og borga næstum jafn mikið og aðildarríki." skrifar Gunnr.
Hvað kallar þú "borga næstum jafn mikið og aðildarríkin?"
Mér skylst að norðmenn hafi ekki tekið inn allar tilskipanir og reglur ESB, þess vegna sé ég ekki ástæðu fyrir að íslendingar takki allar tilskipanir og reglur eins og heilagt orð. Af hverju fara íslendingar eftir því sem norðmenn gera, það er alltaf verið að herma eftir norðmönnum í flestu, því ekki þessu?
Ég sé ekkert athugavert við að fara úr EES og hætta þessu open boarder policy bulli sem er farið að kosta þjóðina mikið í kostnaði við innflytjendur og svo sakamál fyrir þá glæpamenn sem hafa ruðst inn í landið síðan að open boarder policy bullið var sett á.
Auðvitað eru þetta þíniar spekulagssjónir og ég sé ekki færeyinga eins mikla eyðsluseggi og íslendinga, þess vegna er fjármál færeyinga mikið stöðugri en fjármál íslendinga.
Það er enginn að sleikja sig upp við Kína og Rússland heldur er verið að gera viðskiptasamninga við þessar þjóðir.
Ég býst ekki við að USA og Kanada séu ekki að sleikja sig upp við ESB eða öfugt.
Það er verið að vinna að viðskiptasamningum sem sennileg verður erfitt að ganga frá vegna þess að ESB er að gera allflestar vörur frá USA og Kanada bannvörur í ESB.
Ég sé ekkert athugavert við að Íslandi fari í viðskiptasamningaviðræður við USA, Kanada og ESB.
Það þarf bara að setja menn í það og gera góða og hagkvæma samninga fyrir báða aðila, en ekki að vera að spá í eitthvað ESB bull.
Og í lokin; það skiptir engu máli hvað gjaldmiðillinn heitir ef landið (þegnar Landsins) kunna ekki að fara með peninga og setja sig í skuldir sem þeir eiga erfit með að greiða af, þá verður þjóðarhagurinn alltaf bágborinn hvort sem gjaldmðillinn heitir isl. kr., US $, Kanada $ eða evra.
Kveðja frá Houston.
Jóhann Kristinsson, 5.1.2014 kl. 14:26
Sæll Jóhann,
Ég þekki málin ákaflega vel í Noregi og þeir greiða næstum jafn mikið á íbúa og Frakkland fyrir aðkomu sína að bandalaginu. Það hafa greinilega skolast til fréttirnar til þín en það eru greinilega miklar íkjur að Norðmenn fylgja ekki EES samningnum þar eru greinilega stór göt í þinni þekkingu.
Því miður er það svo að fríverslunarsamningurinn við Kína nýtist illa, það er sáralítið sem við flytjum út til Kína og á því verður lítil breyting á. Það er einnig svo að gríðarleg smæð íslenska markaðarins gera það í raun að verkum að allflest fer fyrst til Evrópu lang oftast Danmerkur áður en það kemur til Íslands. Raunar eru fjörlmennar þjóðir í Asíu sem eru ekkert sérstaklega vinveittar Kínverjum. Má þar nefna Japani og Kóreu (Suður-Kóreu), Víetnam, Burma, Thailand og Filipseyjar og ekki má gleyma hinu fjölmenna Indlandi og illdeilur Norðmanna og Kínverja hafa raunar aukið status þeirra í þessum löndum.
Þeir sem vilja salta íslensku utanríkisþjónustuna niður í trog og nánast leggja hana niður gera sér vonandi grein fyrir að vinna nýja markaði tekur langan, langan tíma og kostar mikið fé bæði fyrir einkaaðila og eins fyrir ríkisstjórnir. Það er gríðarlegur barnaskapur að halda að það sé nóg að hringja eða senda E-póst og vera ekki á staðnum og er og verður íslensk utanríkisþjónusta veik og veikburða.
Það þarf ekki annað en að bera ferilskrá núverandi utanríkisráðherra saman við ferilskrá séstaklega sænska http://en.wikipedia.org/wiki/Carl_Bildt http://www.regeringen.se/sb/d/7382 og norska http://no.wikipedia.org/wiki/B%C3%B8rge_Brendehttp://www.weforum.org/contributors/borge-brende og danska utanríkisráðherrans þar sem munurinn er himinhrópandi. Á Íslandi er þar valinn innanbúðarmaður og hlaupadrengur frá kaupfélagi Skagfirðinga gjörsneyddur reynslu og þekkingu í utanríkismálum http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=722 sem velur tvo gjörsamlega óreynda aðstoðarmenn sem nýlega hafa lokið háskólnámi. Hann er ekkert annað en amatör.
Gunnr (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 01:23
Sorry Jóhann,
Íslendingar hafa síðustu 30 árin markvisst reynt að fá fríverslunarsamning við Bandaríkin og Kanada og það hefur ekki verið í boði ekki einu sinni þegar við höfðum herstöðina hérna á Miðnesheiði og þegar Íslendingar sendu ásamt nokkrum viljalausum smáríkjum "hersveit" sem voru ekki nema örfáa einstaklinga til að bakka upp innrásina inn í Írak og hvernig er ástandið þar. Hryðjuverkamenn eru búnir að ná fótfestu og núverandi stjórnvöld sendu núna neyðarkall eftir aðstoð en fá svarið "not our business!" Þeir þóttust fara þangað til að jafna um hryðjuverkamenn. Það má raunar segja margt um Sadam Hussein en han var enginn vinur Al-Queda en núna eru þessir kauðar komnir með stækkandi landsvæði þar sem þeir ráða yfir inn í Írak. Raunar fóru Bandaríkin þangað vegna olíuhagsmuna enda Bush fjölskyldan nátengt þeim og það vita allir. Kanarnir eru þekktir af að standa ekki með vinum sínum öfugt við Rússa sem standa með með sínum skjólstæðingum.
Íslenski markaðurinn er álíka freistandi og myglaðir brauðmolar í loftþéttum umbúðum.
Það hefur verið "holy grail" í íslenskri utanríkisþjónustu að fá fríverslunarsamning við USA og ESB og það er langt síðan það hefur verið jafn fjarlægt. 90% af útflutningi okkar fer til Bandaríkjanna og ESB/EES og ef þarna verður sameiginlegt fríverslunarsvæði munu skapast minnst 1 miljón starfa í USA og svipað í ESB og þarna er markaður með um 800 miljónir. Það eru ákaflega stórir hagsmunir sem draga þetta saman en hvernig þetta endar veit ég ekki. Noregur mun fara hraðferð inn í ESB ef þetta verður að veruleika.
Íslendingar eru á áhrifasvæði ESB, Grænland er vestan við okkur og það er hluti af Danm
Gunnr (IP-tala skráð) 7.1.2014 kl. 01:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.