Þriðjudagur, 31. desember 2013
Nei sinnar með allt niðrum sig
Það er ljóst að NEI sinnar á Íslandi er í tómum vandræðum með þessa ESB usmókn
Meirihluti þjóðarinnar vill fá að kjósa um samninginn í þjóðaratkvæðisgreiðslu en NEI sinnar vilja svifta þjóð sinni þessi sjálfsögðu mannréttindi.
NEI sinnar treysta ekki þjóð sinni..... og þannig fólk ber að varast.
hvells
![]() |
Forysta VG vildi ekki þjóðaratkvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Eins og fram kemur í fréttinni þá var það Samfylkingin sem ekki undir neinum kringum stæðum vildi að ESB málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir umsóknina og svo allt umsóknarferlið því þá voru þingmenn Samfylkingarinnar þrisvar sinnum á nei takkanum.
Það eru því fyrst og fremst ESB sinnar og Samfylkingin sem eru með allt niður um sig og sérstaklega eftir að ESB- flokkurinn setti Evrópumet í kosningafhroði í kosningunum nú í vor. Gleðilegt og gæfuríkt ár án ESB aðildar.
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 31.12.2013 kl. 16:35
Jafnvel félagi Össur fölnaði og var talsmaður þess að "hægja á " aðildarviðræðum þegar kíkt var í sjávarútvegspakkann.
Það er bara einföld staðreynd að í þeim pakka er ekkert að "semja" umheldur bara að samþykkja
Grímur (IP-tala skráð) 31.12.2013 kl. 16:36
Samfylkingin vildi klára samningininn og leggja hann í hönd þjóðarinnar og leyfa henni að kjósa. Þannig að allt sem þú segir hér að ofan er bara rugl og bull.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 31.12.2013 kl. 16:50
Grímur er einsog aðrir NEI sinnar.
Þora ekki að klára samninginn og leyfa þjóðinni að kjósa.
Ef sjávarútvegskaflinn er svona slæmur þá mundi samningurinn vera kolfelldur ekki satt???
Já mikið rétt.
Nei sinnar eru eingöngu hræddir við of góðan samning og vilja þjóðarinnar.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 31.12.2013 kl. 16:51
rétt SogH. annað hvort eru þessir nei sinnar bara kjánar eða hafa einhver forréttindi sem þeir eru að verja. annað kemur ekki til greina að mínu mati
Rafn Guðmundsson, 31.12.2013 kl. 17:30
Líklega hafa hvorki "já" sinnar, né "nei" sinnar, rétt fyrir sér.
Það vantar löglega "sannleiks-sinna", til að finna út hvað er raunverulega rétt eða rangt!
Þessar stjórnsýslu-blekkingar eru alveg óþolandi fyrir alla! Það á að vera sami gjaldmiðill fyrir alla skattpínda Íslands-starfsmenn!
Það er alla vega ekkert flókið!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 31.12.2013 kl. 17:58
Þar sem þú og þinir eruð í miklum minnihluta er þetta væl þitt bara tilgangslaust hjal út í tómið og því ættuð þið að hverfa frá ykkar auma og vonlausa málstað og snúa ykkur að því að gera eitthvað gagn fyrir þjóð ykkar
Wilfred (IP-tala skráð) 1.1.2014 kl. 01:09
Gleðilegt ESB laust ár.
Því miður er það nú bara staðreynd að lýðræði hefur og mun aldrei verða hátt skrifað hjá sósíalistum og kommunistum. Ef lýðræði hefð verið virkjað hjá fyrrverandi helferðarstjórn og þjóðin spurð hvort hún vildi fara í aðildarviðræður, þá hefði KANNSKI útkoman orðið öðruvísi. En þegar málefni eru rekin ofan í kok á fólki án þess að fá um það að velja, þá varð andstaðan geng aðild ennþá meiri. Loddaraspurningar og leiðandi um hvort eigi, eða hvort þér finnst kannski ekki bara í lagi, eða væri ekki allt í lagi að kíkja í pakka, breyta engvu um andstöðu meirihluta við aðild. Komin tími til að minni hluti fari að átta sig á því að það er meirihluti sem ræður, en ekki minnihluti. Þannig er það í lýðræðisríkjum sósíalistum og kommunistum til ómældrar óánægju.
M.b.kv.
Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 1.1.2014 kl. 15:02
Því miður er það þannig hjá fjórflokknum að hann hefur engin prinsipp, eingöngu sérhagsmuni.
"þjóðaratkvæðagreiðslur" eru t.d. eingöngu í lagi ef og þegar skoðanakannanir benda til þóknanlegrar niðurstöðu.
Samfylkingin var á móti þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave, en fylgjandi þjóðaratkvæði í dag um umsókn að ESB, en ekki á meðan skoðanakannanir sýndu að þjóðin hafði ekki áhuga.
Sjálfstæðismenn vildu á sínum tíma að þjóðin fengi að kjósa um hvort sótt yrði um aðild að ESB, en þá bentu skoðanakannanir til þess að þjóðin hefði engan áhuga, nú sýna kannanir að þjóðin vill klára samninga og þá er enginn áhugi lengur á þjóðaratkvæði.
Þessum flokkum er skítsama um þjóðarvilja og þjóðaraktvæði, þetta snýst allt um sérhagsmuni og þjóðaratkvæði er eingöngu í lagi þegar það hentar þeim sjálfum.
Sigurður (IP-tala skráð) 1.1.2014 kl. 19:00
"þjóðaratkvæði er eingöngu í lagi þegar það hentar þeim sjálfum"
þetta er rétt sigurður
Sérstaklega hjá NEI sinnum
Enda sýndi nýleg könnun 80% landsmanna vildu kjósa um ESB samhliða sveitastjórnarskosningunum.
Hvar er lýðræðisást NEI sinna núna?
Nei hún hrædd við þjóðina.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 1.1.2014 kl. 23:12
Þetta er bara rugl. Flestir sem ég þekki vilja alla vega ekki fara í ESB, en vilja samt fá að greiða um það atkvæði. Sem er bara nákvæmlega sama staða og í Bretlandi, þeir vilja flestir út (almenningur), en vilja fá að greiða um það atkvæði. Eini munurinn er þeir fá það ekki. Öllum öðrum í Evrópu en UK og Íslandi virðist slétt sama um ESB og pæla lítið í því nema rétt svo til að reyna að væla út pening frá Þjóðverjum, sem þeir kalla reyndar stríðsskaðabætur ennþá í Grikklandi. Þetta ástand, að vera sama, er stundum til komið afþví menn nenna bara ekki að hugsa yfirhöfuð of mikið um svona hluti (eins almenningur á Norðurlöndunum), eða afþví menn halda Evrópubandalagið sé vísindaleg staðreynd eins og þyngdarlögmálið eins og á meginlandinu. Jú og Norðmenn reyndar og Sviss. Þeim langar ekkert að vera með, en eiga sameiginlegt með hinum að nenna ekkert að pæla í málinu umfram það og hafa á því engan áhuga. Evrópusambandið er áhugamál Eurokrata sem stunda atvinnustjórnmál, einstaka stjórnmálanörd, og svo Bresku og íslensku þjóðarinnar.
# (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 02:32
kæri #. ekkert sem þú varst að segja hér að ofan er ekki nálægt því að vera í einhverjum tengslum við raunveruleikann.... enda er þetta bara í þínum brenglaða hausi og engar heimildir fylgja með
og er þetta raus i þér því ekki einusinni svaravert.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 10:36
Ég fyrirgef # fyrir samhengislaust raus.
Hann skrifaði þetta á nýársdjammi kl hálf þrjú um nótt.
Smá djammviskubit hjá sjúml :D
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 17:03
SogH gerir þau mistök að setja alla NEI-sinna undir sama hattinn nema hann sé eingöngu að tala um Framsóknarfólkið.
Hefði ég fengið tækifæri til að kjósa um hvort fara ætti í aðildarviðræður í miðju uppbyggingarstarfinu eftir hrun þá hefði ég sagt NEI og ég trúi því að meirihluti þjóðarinnar hefði gert hið sama. Við fengum hins ekki það tækifæri til þess og því var haldið í þessa vegleysu. Ég vil fá að kjósa um áframhaldið en ekki fyrr búið er að kynna þessar tvær úttektir sem verið er að klára um viðræðurnar.
Ég er hins vegar foxillur yfir því að við skulum vera að eyða tíma í þessa vitleysu núna. Það er ergilegt að Samfó hafi náð að troða þessum pólitíska afleik á þjóðina en ég mun ekki ákveða hvernig ég kýs um framhaldið fyrr en búið er að kynna stöðu viðræðanna.
Pétur Harðarson, 14.1.2014 kl. 11:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.