Ekki marktækt

Það er ekki hægt að slá því í fyrirsögn og fullyrða að tíu þúsund seðillinn sé vel tekinn.

Seðlabankinn hefur mikla hagsmuni að gæta til þess að verja sína eigin vitleysu.

Ef Capacent spyr álit þjóðarinnar þá mun það koma í ljós hvernig fólk finnst þetta rugl.

hvells


mbl.is Tíu þúsund kallinum tekið vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hvaða æsingur er í þér Hvellur, er ekki þægilegra að vera með einn bréfsnefil heldur en marga í veski eða vasa?

Það fæst hvort sem er lítið sem ekkert fyrir þenna bréfsnefil sem kallaður er Kr. 10,000, þetta er ekki einu sinni $100 virði og ekki fæst mikið fyrir $100.

Það fer að líða að því að almenningur í USA fái að sjá $500 í umferð svo fólk þurfi ekki að vera með búnka að seðlum þegar það fer að verzla og notar staðgreiðslu.

Með kveðju frá Houston um Gleðileg Ár og Farsælt Komandi Ár fr

Jóhann Kristinsson, 31.12.2013 kl. 15:10

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Mér finnst þetta því miður tóm della.

Hefur Seðlabankinnn ekkert betri að gera?

Þetta er líka holdgerfingur þess hversu ónýtan gjaldmiðil við erum að nota.... svo erum við meiri rafrænni en Kanarnir þegar kemur að greiðslum ekki satt?

En ég er bara eitthvað pirraður... það er rétt hjá þér... ég þarf að koma mér í áramótaskapið!! 

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 31.12.2013 kl. 15:25

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Skiptir engu máli hvaða gjaldmiðillinn heitir sem er notaður af fólki sem kann ekki að fara með peninga.

Endirinn er alltaf sá sami allir verða skuldugir upp fyrir haus.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 31.12.2013 kl. 15:29

4 identicon

@2:

Þú talar um að krónan sé handónýtur gjaldmiðill. Hvers vegna? Hvað er svona slæmt við hana?

Eru það vextirnir? Er það að hún hefur tapað verðgildi sínu?

Útskýrðu fyrir lesendum bloggs ykkar hvað það er við krónuna sem er slæmt.

Helgi (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 06:20

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

óstöðugur gjaldmiðill er slæmur gjaldmiðill.

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 2.1.2014 kl. 17:04

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Gjaldeyrisstaða landsins er betri í dag en búist var við? Svo segja fréttir dagsins.

Hverjir eru það sem eru að tala niður hagkerfið á Íslandi, eru það ESB sinnar?

Af hverju ætti þessi gjaldeyrisfrétt að vera eitthvað sem kom á óvart? Kunna þessir háskólamentuðu peningamenn ekki að reikna?

Engin þörf á ESB og evru á Íslandi.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 3.1.2014 kl. 11:28

7 identicon

@5: Er krónan þá eini gjaldmiðillinn sem er óstöðugur?

Kannast þú ekkert við fréttir af rúpíunni nýlega. Ættu Indverjar þá að losa sig við hana?

Helgi (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 18:00

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Gjaldmiðill er hlutur og er óstöðugur af því að fólkið gerir hann óstöðugan með græðgi og eyðslu fram yfir normal getu.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 5.1.2014 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband