Mánudagur, 30. desember 2013
Vinstri sveiflan skaðvaldur
Vissulega hafði skuldamálin eitthvað að segja.
En ég tel að vinstri sveifla Samfylkingarinnar hafi vera stórskaðleg. XS var löngu hættur að vera fjálslyndur demókrataflokkur í anda norðurlandana. Hann var orðinn harður vinstri flokkur undir stjórn Jóhönnu.
Enn þá daga í dag hefur ekkert breyst. Það má ekki heyra eitt orð á einkavæðingu þá stekkur Árni Páll upp í bræðiskasti. Ólíkt krötunum á norðulöndunum sem hafa náð góðum árangri í einkavæðingu... meira segja í mennta og heilbrigðiskerfinu m.a í Svíþjóð sem er oft talin vagga kratastjórnmála.
En Samfylkingin er kaþólskari en páfinn þegar kemur að þessu atriði.
hvells
![]() |
Samfylking fari í naflaskoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
Maður sér Össur alls staðar núna. Ég held að hann vilji verða formaður Sf, þess vegna er hann í DV, gefur út bók og talar um að hafa lagt fram tillögur.
Helgi (IP-tala skráð) 30.12.2013 kl. 10:32
Gleðileg jól og allt það, góður punktur hjá þér sleggjukvellur er ekki vandamálið hjá okkur að þegar eitthvað hefur verið einkavætt þá hefur ekki verið vandað nógu vel til og það sem einkavætt hefur verið hefur gjarnan verið afhent pólitískum gæðingum á silfufati. þurfum við ekki að taka upp nýja siði í þessum efnum til að byggja upp traust almennings á einkavæðingu og kannski nýta okkur reynslu td. Svía í þessum efnum.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 30.12.2013 kl. 10:56
Of seint að fara í naflaskoðun, tjón þeirra verur aldrei bætt að fullu.
Eihver má minna Samfylkinguna á Þegar Ríkisstjórn færði húsnæðisskuldir Almúgans yfir í "nýja banka" á silfurfati , með miklum afslætti.
Ríkisstjórnin sem ætlaði að hafa allt uppi á borðinu gelymdi að upplýsa þjóðina um hvenær , hvernig og hverjum var veitt þessi höfðinglega gjöf ?
Og afhverju ?
Það væri ágætis naflaskoðun að upplýsa fólk um hvað gerðist og afhverju lántakendur nutu ekki góðs af afslætti sem var veittur af lánasafni ?
Það hefði verið snyrtilegast, því það er ekki hægt að taka eitthvað af vogunarsjóðunum sem þeir eru búnir að fá í gjöf frá Samfylkingunni.
Hvernig getur síðasta ríkisstjórn bætt svona tjón ?
Aðeins eitt sem gæti afsakað þetta og það er að afslátturinn var veittur vegna þess að það er mikil óvissa með hvort verðtryggð lán séu lögleg- og að vogunarsjóðir hafi ekki borgað fyrir verðtryggðar skuldir ? Og eigi ekki von á að geta innheimt verðtrygginguna eftir að dómar falla ?
"Flokkurinn þarf að skilja hvað fór úrskeiðis bæði undir lok kjörtímabilsins og í kosningabaráttunni" Það var allt kjörtímabilið sem var skelfilega óskiljanlegt og Mörgum spurningum ósvarað, það væri upphaf að endurreisn að útskýra það sem miður fór og þá aðallega afhverju hagsmunir bankanna voru látnir hafa forgang.. Það var þar sem kjósendum ykkar ofbauð !
Begga (IP-tala skráð) 30.12.2013 kl. 11:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.