Ferskar hugmyndir

Það er fýsilegt að gera fríverslunarsamning við Grænland.

Það væri í raun besta að gera fríverslunarsamning við allan heimin með því að lækka alla tolla og loka tollhúsinu...... en Grænland er betra en ekkert.

Svo eru þetta áhugaverðar pælingar með flugvöllin. Heathrow flugvöllurinn er í einkaeigu og hann er stærsti flugvöllur í heimi.

Allar hugmyndir eru vel þegnar þegar ríkið er að borga 85milljarða á ári í vaxtagreiðslur (beint í vasa fjármagseigenda).

hvells


mbl.is Mætti selja Keflavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Keflavíkurflugvöllur hefur margsinnis verið nefndur sem einn vesti flugvöllur í heimi, án afskipta einkaaðila.

Nei, það á ekki að selja einkaaðilum eina alvöru millilandaflugvöll landsins.

Ekkert rugl.

Bankana í þrot með ríkulegum afskriftum eða útgöngusköttum og skiila gjaleyrisvaraforðanum sem er allur tekinn að láni.

Sigurður (IP-tala skráð) 28.12.2013 kl. 17:03

2 identicon

Einkavæða vegina er frábær hugmynd. Gætum haft tollahlið við hver einustu gatnamót og skattur á eldsneyti gæti runnið óskertur beint til Landspítalans

pallipilot (IP-tala skráð) 28.12.2013 kl. 18:55

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég get tekið að mér að skera ríkisbáknið um helming.

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 29.12.2013 kl. 01:38

4 identicon

Bara 50% sleggja?

Ég sé fram á að einfalt ætti að vera að skera það niður um 85% þannig að eingöngu raunverulega grunnþjónusta er eftir. Eitt ráðuneyti með lögreglu og fangelsi, dómstóll og þing til að setja reglur (sem væri hægt að lágmarka með þjóðar atkvæðagreiðslum).

Það sama ætti við um sveitarfélögin.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.12.2013 kl. 14:11

5 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ekki mundi ég nota Heathrow flugvöll sem gott dæmi fyrir að einkarekstur sé eitthvað dásamlegur einkarekstur.

Til dæmis þá má ekki sjást hvít snjókorn á flugvellinum og allt fer í tóma tjöru og vitleysu.

Las það í blaði að flugmenn Icelandair hafi mokað snjó á Heathrow flugvelli ekki alls fyrir löngu, svo að fluginu væri kanselerað.

Af hverju gátu ekki einkarekendur Heathrow flugvallar annast þennan snjómokstur?

Það er meira en að reka flugstöðvarbygginguna, það þarf að sjáum allt innan flugvallarsvæðisins sé í góðu ástandi.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 29.12.2013 kl. 16:51

6 identicon

Það er náttúrulega út af því að það er lögbundið hámark á lendingargjöldum á Heathrow. Þar að leyðandi fjárfesta þeir ekki snjómokstur búnaði þar sem það étur úr hagnaði þeirra.

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.12.2013 kl. 17:51

7 identicon

@4:

Get tekið undir með þér. Leggja mætti niður mörg ráðuneyti og skera verulega niður stærð hins opinbera.  

Halda menn virkilega að fólk hætti að mennta sig og kennarar hætti að kenna ef við leggjum niður menntamálaráðuneytið?

Halda menn að einstaklingar og fyrirtæki hætti að eiga viðskipti ef efnahags- og viðskiptaráðuneytið væri lagt niður?

Halda menn að allir myndu flytja af landsbyggðinni ef Byggðastofnun yrði lögð niður?

Halda menn að bændur myndu hætta búskap ef landbúnaðarráðuneytið yrði lagt niður?

Myndu allir/flestir Íslendingar ganga af trúnni ef kirkjumálaráðuneytið væri lagt niður?

Einkavæðum heilbrigðiskerfið eins og það leggur sig og þá væri hægt að leggja niður heilbrigðisráðuneytið. Hver og einn ber ábyrgð á sér, ef ég ét stöðugt eins og svín og þarf að leita læknis vegna þess að ég gerði sjálfan mig akfeitan á ég að borga fyrir það - ekki aðrir.

Mýmörg önnur dæmi mætti taka.

Ég tek samt undir með sleggjunni í 3, 50% væri mjög góð byrjun og myndum við sjá verulegan efnahagsbata fljótlega eftir þann niðurskurð. Þá gætum við líka lækkað verulega alla skatta og við það myndu erlend fyrirtæki nánast slást um að fá að koma hingað og atvinnuleysi myndi hverfa, fyrirtækin færu að keppa um fólk og laun myndu hækka. Stjórnmálamenn vilja það hins vegar greinilega ekki því ef hið opinbera minnkar hafa þeir úr minna fé að spila til að múta kjósendum. Ótrúlega margir eru á þeirri skoðun að stjórnmálamenn viti betur hvað á að gera við peninga en aðrir. 

Menntakerfi sem útskrifar fólk með stúdents- og háskólapróf sem skilur hvorki upp né niður í efnahagsmálum þegar það fær kosningarétt hlýtur að fá algera falleinkunn. Hvers vegna skyldi það annars vera svona lélegt og undirbúa fólk illa fyrir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi?

Kannski vegna þess að hið opinbera stjórnar því og hið opinbera klúðrar nánast öllu?

Helgi (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 06:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband