Veik rök

Að benda á það að aðrar þjóðir séu að kafa í tómu rugli þá má Ísland gera það líka.

Sjómannaafsláttur er niðurgreiðsla til útgerðarinnar.

Með sjómannaafslætti þá kemst útgerðin upp með að borga lægri laun vegna þess að sjómenn fá mera útborgað á kostnað almennings.

Það væri óskandi ef sjómenn sæu þessa augljósu staðreynd.

hvells


mbl.is Sjómannaafsláttur verði endurreistur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Sæll hvellur

Kaldar eru kveðjur þínar þessi Jólin ef, þú ert á því að sjómenn séu betur komnir án skattaafsláttarins...

Kanski að þú þurfit að kynna þér þetta líf sem sjómenn búa við.

Með Jólakveðju

Ólafur Björn Ólafsson, 28.12.2013 kl. 18:22

2 identicon

Það er endalaust hægt að röfla um með og móti Sjómannaafslætti. En, hvers vegna að afnema hann  til að gleðja lítinn hóp bloggskrymsla ( sem sennilega eru flestir á framfærslu launþega )  og fá þannig  hinn þögla meirihluta þjóðarinnar á móti sér og framkvæma þannig pólitískt sjálfsmorð ,eins og raun varð á. Í þess stað hefði afslátturinn átt að verða óhreyfður, Jafnvel hækkaður og kostaður af veiðgjöldum. Ef nú verandi stjórn hugsar rökrétt, kemur hún honum aftur á fjármagnað með veiðigjaldi og lækkar,auk þess, framlög til listamanna  þar með er samfylking og vg. þurkkuð út sem stjórnarflokkar næstu áratugi Staðreyndin er að afnám afsláttarins var algjör landsbyggðskattur 

samúel Sigurjónsson (IP-tala skráð) 28.12.2013 kl. 19:07

3 identicon

Hvernig væri að menn litu ögn upp úr eigin dalli?
Ólafur, það var enginn að segja að sjómenn væru betur komnir án afsláttarins. Það eru bara ekki rök fyrir afslætti sem þeir, eins stétta njóta. Auðvitað væru allar stéttir betur komnar með "sjómannaafsláttarígildi".

Grundvallarspurningin er hins vegar þessi: Af hverju eiga sjómenn, einir stétta, að njóta sérstaks skattafsláttar, frekar en t.d. slökkviliðsmenn, kennarar, bændur o.s.frv.? Af hverju á ríkið að niðurgreiða launakjör þessarar stéttar, sem er nú með þeim launahæztu á landinu?

Og Samúel, þetta snýst ekki um að gleðja einn eða neitt, heldur gera alla jafna fyrir skattinum. Af hverju, eins og áður segir, á ein stétt að njóta hlunninda fram yfir aðrar stéttir? Af hverju á ég að borga fullan tekjuskatt en sjómaður, jafnvel á þreföldum launum, ekki?

Haukur (IP-tala skráð) 28.12.2013 kl. 19:41

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þarna er ég 100% sammála hvells

kv

slegg

Sleggjan og Hvellurinn, 29.12.2013 kl. 01:39

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þegar ég les kommentin frá Ólafi og Samúel þá missi ég alveg trú á Íslendingum hvað þeim er alveg ómögulegt að skilja einföldustu hluti.

En svo les ég komment frá  Hauki og Sleggjunni og þá líður mér strax betur.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 29.12.2013 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband