Laugardagur, 21. desember 2013
Hvar var hæstiréttur?
"Hún segir að vændislöggjöfin gangi allt of langt með því að skapa hættulegar aðstæður fyrir vændiskonur. Þau komi í veg fyrir að einstaklingar sem taki þátt í áhættusömum en löglegum athöfnum geti gripið til úrræða til að vernda sig geng ógn. "
hvar var hæstiréttur á Íslandi þegar feministarnir í VG settu ólögin í gegn hér á landi?
Það er greinilegt að hæstréttur í Kanada er alvöru og vill verja borgaraleg réttindi.
hvells
![]() |
Vændislöggjöf slegin út af borðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Athygli vekur að vændiskonurnar sjálfar sóttu málið í Kanada.
Femínistarnir hér á landi segja að vændiskonur séu viljalaus verkfæri karlmanna sem neyðast í vændi,,,,,,ef það væri staðreynd hefður vændiskonurnar í Kanada ekki farið í þessa málsókn.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 21.12.2013 kl. 10:36
Í Danmörku hafa vændiskonur oft kvartað yfir því, að femínistar fyrirlíti þær og að femínistarnir neiti að spyrja vændiskonurnar álits á eigin högum. Því að þar eins og hér á landi eru femínistarnir hvorki fulltrúar né verndarar vændiskvenna frekar en annarra kvenna og tala ekki þeirra málstað. Enda er yfirgnæfandi meirihluti vændiskvenna ekki fórnarlömb mansals (sem er bannað þar) og ekkert ósáttar við starf sitt, einkanlega ekki háu tekjurnar. Tekjurnar og munaðurinn sem þær hafa vanizt gerir það þó erfitt að hætta og byrja daglaunavinnu.
En þó hafa femínistarnir í Danmörku ekki gengið svo langt að fara fram á bann við vændiskaupum. Eftir að Svíar gerðu vændiskaup refsivert vildu dönsk yfirvöld bíða og sjá hvernig það gengi. Eftir nokkur ár varð ljóst, að vændið í Svíþjóð hafði ekkert minnkað, einungis færzt undir yfirborðið, svo að ekkert bann við vændiskaupum var sett á í DK, vændiskaup þar eru ennþá jafn löglegt og vændið sjálft. Hins vegar er vændi formlega og skv. lögum ekki leyfilegt, en það er "tolerated" af yfirvöldum. Hins vegar eru oft razzíur gegn mansali, sem oftast hefur með innfluttar konur að gera.
Í bæði Þýzkalandi og Hollandi er vændi alveg löglegt, en þar greiða vændiskonur skatt og hlíta reglulegum læknisskoðunum. Það sem gerir það að verkum, að danskar vændiskonur greiða ekki skatt er spurning um formlega lögleiðingu og svo "etíkin" af því að ríkið sé þriðji aðili, eins og Dr. Kristján, sem hætti skurðlækningum og fór að stunda vændi, hefur réttilega bent á. Þegar allt er uppi á yfirborðinu, þá er auðveldara að uppræta melludólga (þá sem hafa tekjur af vændiskonunum). Sænska leiðin eins og hún er hér á Íslandi hefur mjög líklega ekkert minnkað vændið, einungis falið það. En íslenzku femínistarnir fatta það ekki.
Pétur D. (IP-tala skráð) 21.12.2013 kl. 12:01
Sænska lögreglan hefur líka sagt það beinum orðum að vændi hafi ekkert minnkað eftir lagabreytingarnar en hins vegar hafi mansalstengt vændi aukist verulega.
Gulli (IP-tala skráð) 21.12.2013 kl. 12:16
Takk fyrir þess innsýn í Danmörku og Svíþjóð.
Mjög áhugavert.
Mjög umhugsunarvert fyrir stjórnvöld hér á landi.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 21.12.2013 kl. 18:40
Sæll.
Áhugaverðir punktar hjá 2 og 3.
Annars finnst mér femínistar öðrum þræði hafa afar lítið álit á konum og allt að því líta niður á þær þó sá málefnalegi hópur gangist auðvitað aldrei við því. Samkvæmt skoðunum femínista, ef ég skil þær rétt, eru konur eiginlega fórnarlömb karlaveldisins. Felur þetta viðhorf ekki í sér að konur séu varnarlausar, bara fórnarlömb, og geti ekki tekið sjálfstæðar ákvarðanir? Ráða konur ekki hvað þær gera?
Hvernig væri svo að benda femínistum á það hversu vel komið er fram við konur í íslam? Gæti Lillandahl (eða hvað hún heitir) ekki reynt að bjarga kynsystrum sínum frá íslam? Ætli það sé gaman að vera ein af nokkrum eiginkonum? Lillandahl, hvar ertu? Hér er verðugt verkefni fyrir þig!!! Fleiri konur búa við kúgun í arabaheiminum en stunda vændi á Vesturlöndum! Er kröftum femínista því ekki betur varið í að breyta viðhorfi arabaheimsins til kvenna?
Helgi (IP-tala skráð) 22.12.2013 kl. 10:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.