Topp fjórir listi Hvellsins

Jæja núna er komið að því að ráða nýjan útvarpsstjóra. Hér eru bestu kandídátarnir.

 Pawel Bartoszek. Mjög greindur stærðfræðingur sem er mjög yfirvegaður og tæklar málefnin á skynsaman hátt. Hann er vel liðinn og er með lúmskan húmor. Ég held að hann mun standa sig vel sem útvarpsstjóri. Hann skrifar reglulega greinar í Fréttablaðið en ég veit ekki til að hann hafi meiri fjölmiðlareynslu. Það er hans helsti galli.

Ólafur Stephensen stjórnmálafræðingur. Hann er ritstjóri Fréttablaðsins og var áður ritstjóri Moggans og fyrir það "blaðinu" sem var skammlíft fríblað. Hann er reyndur fjölmiðlamaður og mjög áreiðanlegur. Góður samfélagsrýnir og hefur nef fyrir menningu og listum.

Þorsteinn Pálsson lögfræðingur. Hann skrifar reglulega pistla í Fréttablaðið og var áður ristjóri Fréttablaðsins þannig að hann hefur mikla reynslu af fjölmiðlun. Hann var lengi í stjórnmálum og getur því komið með áhugaverða vínkla inní umræðuna hjá RÚV. Hann hefur einnig mikla reynslu úr atvinnulífinu sem er mikilvægt þegar kemur að því að reka rúmlega þrjúhundruð manna vinnustað. 

Benedikt Jóhannsson stærðfræðingur. Reynslumikill fjölmiðlamaður. Hann rekur Heimur útgáfu sem gefur m.a út Frjáls Verslun og Vísbendingu þar sem hann Benedikt er ritsjóri. Hann er bráðgreindur og yfirvegaður. Hefur sýnt góðan árangur í fjölmiðlarekstir og kann að búa til topp fjölmiðlaefni fyrir sem minnstan pening...eitthvað sem er mjög nauðsýnlegt nú á dögum. 

 

Ég vona og hvet þessa ágætu menn til að sækja um.

 

hvells


mbl.is Staða útvarpsstjóra auglýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hvað ætli femínístar mundu segja um þessa upptalningu,

hvet þær til þess að koma með solid kvk tillögur á móti, nei ég helt ekki femínistadúllur

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 19.12.2013 kl. 22:50

2 identicon

Fjórir Kratasjallar. Uss, uss, uss! :)

Eyjólfur (IP-tala skráð) 20.12.2013 kl. 00:22

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Já ég var ekki að hugsa um "kynjahlutföll" við þessa upptalningu... enda eru konur ekki mikið að halda sig frammi.

En þetta eru nú ekki kratar enda hafa þeir allir starfað í Sjálfstæðisflokknum. 

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 20.12.2013 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband