Vitleysa

Þetta er að sjálfsögðu vitleysa og peningaeyðsla.

Það sjá allir sem vilja sjá.

hvells


mbl.is Fá greiddar 51.783 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Frá 2012 hafa atvinnuleysisbætur s.s. hækkað tvisvar.

167176 < 172609 eða um 3,25%

Svo og nú um 51783/12 (172609 < 176924) eða um 2,5%.

Þetta þýðir í raun að munurinn á bótum og launum breytist lítið og hvatinn til að vinna eykst lítið.

Óskar Guðmundsson, 18.12.2013 kl. 12:51

2 identicon

Ég er sammála ykkur, þetta er vitleysa og peningareyðsla, þeir sem hafa

misst vinnu sína og fá ekki nema brotabrot af upphaflegu launum sínum eiga ekki skilið meira vegna þess að það er þessum aumingjum að kenna að hafa misst vinnu sína, ekki atvinnurekandanum eða ríkinu sem ákvarðar hvort viðkomandi fyrirtæki sé lífvænlegt eða ekki !

Það er líka þeim aumingjum að kenna sem verða veikir eða slasast og þurfa að þiggja sjúkrabætur, að fá ekki viðeigandi desemberuppbót sem þeir hefðu fengið ef þeir hefðu ekki asnast til að veikjast/slasast ! 

Hvað finnst ykkur um þessi rök kæru vinir, eigum við öll að hugsa svona !!!

Lífeyrisþegi (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 13:07

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

hvar villt þú skera niður á móti þessum fjárhæðum lífreyisþegi?

kennski lífeyrisgreiðslurnar.... eða hjá öllum örðum nema þér?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 18.12.2013 kl. 13:11

4 identicon

Ég er tilbúin að borga hærri skatta af mínum tekjum ef ég veit að það fer í heilbrigðis- og menntakerfið. Svo má að mínu mati alveg skera meira niður í sendiráðum og í ráðuneytum ríkisstjórnarinnar og að fækka aðstoðarmönnum ráðherra þegar í stað. Eða hvað finnst þér Sleggja ? Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum, ert þú tilbúinn að leggja þitt af mörkum ?

Lífeyrisþegi (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 13:40

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@4

ÞEtta kostaði 500 milljónir. 

Sendiráð niðurskurður skilar ekki þeim fjárhæðum, þarft að gera betur en þetta.

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 18.12.2013 kl. 13:43

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Tek undir með sleggjunni að þetta slagar ekki upp í þann kostnað.

En þú færð prik að nefna allavega einhvern niðurskurð og þú vilt væntanlega hækka tekjuskatt á lægsta þrepi (geri ráð fyrir að þú ert í því.. mér skilst að lífeyrisgreiðslur eru aðalgea þar)

flestir geta ekki nefnt neitt.

bara eyða hér og þar.....  án konstaðar.   ekki ósvipað kosningaloforði XB

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 18.12.2013 kl. 15:22

7 identicon

Fyrirsögnin er röng eða vísvitandi rangfærð. Ríki og sveitarfélög taka strax 2/5 til baka! Þetta kostar því engar 500 milljónir!

  Kr 
Uppbót       51.783  
Skattur 37,32%     (19.325) 
Lífssj 4%       (2.071) 
Verkal.f 0,6% (311) 
Útborgað30.076  

Þjóðólfur (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 17:04

8 identicon

Já, Sleggjuhvellurinn sagði líka strax að þetta væri vitleysa....

NKL (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 17:06

9 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Hversu fljótt haldið þið að þessir peningar skili sér aftur í ríkissjóð í formi skatta? Ef þessum 500 millj. er deilt jafn út eru það um 10 þús. manns sem fá 52 þús. Ef allir 10 þús atvinnuleitendur fara út í búð og versla matvöru og jólagjafir sem bera 25,5% VSK fyrir sig og sína koma 100 milljónir strax til baka í ríkissjóð. Þessar 400 milljónir sem eftir standa skila sér mjög fljótlega líka í formi tekjuskatts og VSK þegar þær fara um hendur fleiri einstaklinga. Þetta er bara væl í ykkur.

Erlingur Alfreð Jónsson, 18.12.2013 kl. 17:12

10 identicon

Það fær ENGINN 52 þús kall!! Og stór hluti minna en 30 þús kall! Fyrir utan það að meðtaltal avinnulausra árið 2013 er 6500 manns. Fjárþörfin er því max 300 milljónir, sem skila sér svo aftur í kerfið að stærstum hluta. Annað er bara vísvitandi og blekking eða heimskuleg vanþekking.

Hrúturinn (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 17:53

11 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta eru auðvitað bara smáaurar. Eitthvað 300 milljónir eftir skatt sirka. Svo þegar framsjllar hafa fárast mikið yfir þessu vegna þess að þeir mega ekki til þess hugsa að fólk í vanda geti keypt sér hamborgarahrygg í jólamatinn í staðinn fyrir fiskibollur í dós - þá kemur næsta mál - og þá ætla þeir framsjallar að fara að millifæra litla 80 milljarða úr ríkiskassanum og setja vel stætt fólk á bætur vegna ,,forsendubrests". Forsendubrestarbætur upp á 80 milljarða!

Það er barasta ekki heil brú í þessu og stóralvarlegt mál hvernig núverandi stjórnvöld halda á málum. Og þetta er bara byrjunin! Segja þeir. Það á að skera hina verr stæði niður við trog og millifæra stórkostlega fjármuni yfir til hinna betur stæðu. Þessir menn leggja þetta land í rúst og ef fram heldur sem horfir skapar ríkisstjórnin svo miklar deilur manna á millum - að landið gæti bara liðast í sundur.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.12.2013 kl. 18:15

12 Smámynd: Matthildur Jóhannsdóttir

Kæra sleggja. Þær sögur fara af þér að þú sért á launum hér á netinu. Og það sé vinnan þín að ráðast að þeim sem minst meiga sín. Mig er farið að gruna að það sé rétt.

Þú hlítur að vera kona því einginn sem kallar sig karlmann myndi lemja á þeim sem liggur og er bjargarlaus.

Matthildur Jóhannsdóttir, 18.12.2013 kl. 20:39

13 identicon

Þetta er svipuð upphæð og fer í heiðurslistamannalaun.

Væri ekki nær að þeir fengju sér vinnu, þeir fá helmingi hærri upphæð á mánuði en atvinnuleysisbæturnar eru.

20-30 manns sem ekki þurfa að vinna fyrir sér á meðan ríkið heldur þeim uppi.

Sigurður (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 22:49

14 identicon

Já þvílík vitleysa að eyða peningum í fólk sem hefur unnið í mörg ár en lent í því óhappi að missa vinnu. Já endemis peningasóunn að það fólk fái að gefa börnunum sínum jólagjafir og jólamat.

Mér finnst við ættum að eyða meiri peningum og gefa öryrkjum og lífeyrisþegum Desemberuppbót. Þetta fólk á líka skilið gleðileg jól og mér finnst bara allt í lagi að eyða peningum í þessa aðila sem minnst meiga sín.

Fordómar og bull, eins og 100% af atvinnulausum liggji á spena hjá ríkinu. Aldeilis ekki, tel að mikill meirihluti vill fá vinnu, Það er ekkert sældar líf að þykkja bætur, hvorki fyrir atvinnulausa né öryrkja.

Markús (IP-tala skráð) 19.12.2013 kl. 01:37

15 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Atvinnulausir þurfa að safna fyrir jólagjöfum eins og aðrir.

Svo er hægt að gefa smátt. Kerti og spil

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 19.12.2013 kl. 16:53

16 identicon

Þeir sem telja að atvinnuleysi sé að minnka  í dag eiga að hugsa til þess hversu margir hafa misst rétt sinn til atvinnuleysisbóta síðastliðið ár ... í kjölfarið fjölgar þeim sem þurfa á félagsstyrk að halda ... fjöldinn fer frá ríkinu til sveitafélagsins ekki satt :( 

Og svo má ekki gleyma að margir vilja ekki vinna og vilja ekki aðstoð frá sveitafélaginu eða ríkinu til að fara aftur í vinnu, þeim einstaklingum er hægt að bjarga ef þeir hafa áhuga til þess, en ég held að einhver fjöldi sé háður einhverjum mjög nánum í fjölskyldunni sem hafi tekjur aðeins umfram fyrrum tekjum hins atvinnulausra.

Þarna kemur upp þægindarrammi sem ekki bara veldur togstreitu innan fjölskyldunnar heldur getur valdið skilnaði sem hinn atvinnulausi hefur ekki efni á, til lengri tíma litið .

Lífeyrisþegi (IP-tala skráð) 21.12.2013 kl. 17:25

17 Smámynd: Matthildur Jóhannsdóttir

Jæja og í hvað flokk setjið þið sextugan arkitekt. Sem fær ekkert að gera í sínu starfi og er búinn með allan rétt. Og braskarar eru búnir að rústa byggingariðnaðinum svo það verður ekkert að gera næstu 3 árinn.

Nei ég veit þið kallið hann letingja og hann á að gefa börnunum sínum og barnabörnum kerti í jólagjöf.

Alveg eins og Sleggja kerlinginn gerir. Það þarf að vera svolítið tregur til að trúa því að hún gefi kerti og spil sinni fjölskildu. Það gilda auðvitað aðrar reglur fyrir sitt fólk.

Matthildur Jóhannsdóttir, 22.12.2013 kl. 21:26

18 identicon

Matthildur,

Þessi sextugi arkitekt þarf að líta í kringum sig eftir öðrum tækifærum, enda þarf að breyta um stefnu í lífinu þegar starfstækifærin eru komin í öngstræti.

Þessi sextugi arkitekt þarf einmitt að hætta að vorkenna sjálfum sér og leita sér hjálpar ef hann á að koma sér á vinnumarkað aftur, en ef hann vill ekki leita sér aðstoðar og vill ekki hlusta á ráðleggingar annarra í sinni fjölskyldu getur hann sjálfum sér kennt,  og hætta að stóla á aðstoð annarra í sinni fjölskykldu ef hann vill ekki sjálfur fá aðstoð til að fjármagna heimili sitt og sína nánustu !

 Sextugur arkitekt sem er atvinnulaus í dag er e.t.v. dæmigert karlrembusvín sem stólar á framfærslu eiginkonu sinnar sem hefur að meðaltali helmingi lægri tekjur en hann á sínum bestu árum.  Þetta karlrembusvín neitar að fara í annað starf vegna snobbs og fyrirlitningu gagnvart öðrum stéttum, enda er hann líklegri til að þiggja matargjafir heldur en að t.d. að bera út blöð til framfærslu fjölskyldu sinnar. 

 Hugsun þessa sextuga arkitekts  er að þiggja frekar en að gefa, enda er allt líkamlegt erfiði honum ofvaxið og allur hans metnaður snýst um frekar að snúa á kerfið með því að búa sér til verkefni sem ekki eru gefin upp til skatts !  Verkefni sem snúast um eitt smávægilegt herbergi hér og þar, og þegar allt um þrýtur þá er reynt að blóðmjólka makann  eins og hægt er ! 

Lífeyrisþegi (IP-tala skráð) 10.1.2014 kl. 02:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband