Þriðjudagur, 17. desember 2013
Til hvers var hann að þessu?
Hvað er í gangi?
Af hverju var hann að lesa uppúr SUS tillögunum. Vildi hann þær eða?
Af hverju ekki vísa í þær, af hverju ekki gera stutta samantekt og tala um það sem honum er hjartans mál? Lesa frá byrjun til enda?
Ok, málfþóf? Er þetta málþóf?
Ef já, Af hverju er málþóf? Hvað er Jón Þór að reyna að stoppa?
kv
Sleggjan
![]() |
Las upp sparnaðartillögur SUS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ætli hann hafi ekki ætlað að vekja athygli á hugsunarhættinum í útungunarstöðinni. Þetta verða jú fullorðnir ránfuglar með tíð og tíma.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 17.12.2013 kl. 22:21
Og hvað?
Eiga þingmenn að lesa orðrétt uppúr tillögum ungliða í ræðupúlti Alþingis? Í stað þess að segja sína skoðun. Þetta kemur mér spánskt fyrir sjónir.
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 17.12.2013 kl. 23:38
Kannski misskilur hann hvað hann er að gera þarna...
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 17.12.2013 kl. 23:59
@1:
Þið vinstri mennirnir getið kallað SUS hvaða nöfnum sem ykkur listir. Það sem þú veist ekki og fæstir vinstri menn er hve illa statt hið opinbera er fjárhagslega. Heldur þú að skuldir þurfi ekki að borga? Er hið opinbera undanþegið því að borga skuldir? Er ekki einn lærdómur af hruninu sá að borga þarf skuldir?
Ríki og sveitarfélög skulda yfir 1000 milljarða umfram eignir!! Svo er alltaf rekið um ramakvein ef skera á niður!! Veistu hvað við borgum mikið í ár af skuldasúpunni? Er þér sama eða skilur þú ekki þá tölu?
Þessi ágæti þingmaður getur auðvitað sagt nánast það sem hann vill en þingmenn sem ekki vilja koma jafnvægi á ríkisfjármálin eru að bregðast kjósendum. Gera ætti þingmenn sem samþykkja fjárlög með halla persónulega ábyrga fyrir mismuninum.
Helgi (IP-tala skráð) 18.12.2013 kl. 05:54
þessi "þingmaður" var að gera lítið úr sjálfum sér.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 18.12.2013 kl. 09:47
Ef ég væri útlendingur og væri að horfa á Alþingisrásina með þýðingu meðfram.
Þá hefði ég einfaldega haldið að þessi þingmaður væri að styðja tillögur SUS og lesandi þær tillögur upp fyrir þingmenn að meta.
En ég þekki hvernig þingmenn haga sér þannig þetta er einhver furðuleg útgáfa af kaldhæðni í gangi sem ég næ ekki utanum.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 18.12.2013 kl. 10:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.