Mánudagur, 16. desember 2013
Hef aldrei
Ég hef aldrei fengið svokallað "desemberuppbót".... þarf ég að fara á atvinnuleysisbætur til þess að fá svona "jólapakka"?
Þetta er bara rugl og það á að afnema þessa vitleysu. Þetta var vitleysa til að byjra með og það á að afnema þetta rugl sem strax.
hvells
![]() |
Aumt að neita atvinnulausum um desemberuppbót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
þarf ég að fara á atvinnuleysisbætur til þess að fá svona "jólapakka"
Nei þú þarft bara að starfa samkvæmt kjarasamningi.
Þú starfar samkvæmt kjarasamningi, er það ekki?
Bankamenn fengu lengi vel borgaðan heilan mánuð aukalega fyrir jólin, jafnvel þó sá þrettándi mánuður væri hvergi í dagatalinu. Ég veit ekki hvort það tíðkast enn, kannski hafa bónusar leyst þetta fyrirkomulag af hólmi.
Ertu þá þeirrar skoðunar að afnema skuli alla slíka kaupauka?
Eða á kannski bara að gera það hjá "sauðsvörtum almúganum"?
Það væri ággæt að fá afstöðu þína til þess.
Guðmundur Ásgeirsson, 16.12.2013 kl. 20:51
Guðmundur. Frá því að ég var í áttundabekk þá hefð ég unnið við að þrífa, elda skyndibita, vinna í ruslinu, pizzusendill, fristihúsi, matvöruverslun, byggingavinnu og fleiri "skemmtilegum" vinnum.... og ALDREI hef ég fengið neina jólabónusa ef ég á að vera hreinskilinn.
Og mér finnst ég ekki eiga neinn rétt á því heldur. Afhveju ætti fyrirtæki að punga út tvöföldum mánaðarlaunum fyrir fólk sem kunna ekki að spara út árið..... ég vona að flestir vita að jólin koma svona sirka 24.des hvert ár.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 16.12.2013 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.