Mánudagur, 16. desember 2013
Satt og rétt
Þetta hefur hvellurinn haldið fram núna í fjölda ára.
Nú er það staðfest.
Verðtrygging skapar valkosti.
Afnem hennar skerðir lífsgæði fólks.
Þeir sem vilja afnema verðtryggingu vilja þá skerða lífskjör fólks til framtíðar.
Og skömm sé þeirra sem vilja það.
hvells
![]() |
Bann við verðtryggingu minnkar val |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Í sama absúrdstíl var ort og sungið (Súkkat):
Sódawathnesystur maka á krókinn
svínfeitum maðki út Aðaldal
ætli ekki bara endi með því
þær ættleiði hval
ættleiði hval uppí ána
svo þær hafi eitthvað val.
Almenningur (IP-tala skráð) 16.12.2013 kl. 11:57
Það er með ólíkindum umræðan um þessa verðtryggingu og hvernig td. framsóknarflokkurinn og fl. hafa nýtt sér það í lýðskrumsskyni.
Er helst á því að sumta fólk skilji ekki verðtryggingu. Að það fatti ekki að um verðbólgur er að ræða og rýrnun krónunnar.
Fólk sumt virðist halda að þetta sé eitthvað trikk fjármálaveldisins - til að bæta alltaf við lánin þeirra!
Og sumir virðast halda, í alvörinni, að við ,,afnám verðtryggingar" sem kallað er, þá hverfi mara sá hluti til money heaven.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 16.12.2013 kl. 12:14
Og þetta er dáldið gott námskeið sem Lúðvík lætur frá sér. Fólk sumt sem hefur talað og talað í fjölda ára um verðtryggingu án þess að virðast skilja upp eða niður hvað verðtrygging er ætti að lesa þetta. Verðtrygging 101 heitir ritgerðin/skýrslan:
http://www.sedlabanki.is/library/Skr%C3%A1arsafn/Efnahagsm%C3%A1l/Efnahagsm%C3%A1l_6.rit.pdf
Ómar Bjarki Kristjánsson, 16.12.2013 kl. 12:19
Sauðsvartur almúginn hefur ekkert VIT
og því þurfa háttvirtir alþingismenn að haf VIT fyrir þeim
hvaða veitingastaði þeir sækja (broskarl) loka skyndibitastöðum (óholl hörð fita eða MSG eða bara eitthvað)
og það þarf lika að vernda fók fyrir verðtryggingu
það gæti farið að HUGSA
Grímur (IP-tala skráð) 16.12.2013 kl. 12:50
ég hvet stjórnmálamenn að hætta að reyna að hafa vit fyrir fólki
hluti af lífinu er að gera mistök og læra af þeim og hugsa sjálfstætt.
þannig verður maður að betri manni.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 16.12.2013 kl. 13:15
Kjarnorkuvopn skapa líka valkosti: Hvellur.
Guðmundur Ásgeirsson, 16.12.2013 kl. 16:26
En eykur þau lifsgæði ?
Hélt ekki.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 16.12.2013 kl. 16:45
Færri dauðsföll meðal óbreyttra borgara með því að enda stríðið fyrr, voru einmitt aðalrökin fyrir notkun kjarnorkuvopna, í eina skiptið sem þeim hefur verið beitt í herðarlegum tilgangi.
Þannig að já, það voru einmitt notuð sem rök fyrir beitingu kjarnorkuvopna að þau myndu hafa í för með sér aukin lífsgæði þeirra sem þannig myndu lifa af styrjöldina, en hefðu annars ekki gert það. Eða það voru allavega rökin.
Ég er hinsvegar alfarið ósammála því að það geti talist vera gild rök.
En ert þú sammála því eða hvað?
Guðmundur Ásgeirsson, 16.12.2013 kl. 20:56
Afsakið en það átti auðvitað að standa þarna "hernaðarlegum tilgangi".
Guðmundur Ásgeirsson, 16.12.2013 kl. 20:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.