Staðfest. Svart á hvítu.

Það fer fátt eins mikið í pirrurnar á mér þegar fólk er að fullyrða hluti útí bláinn. Eitt af því er að fjármálafyrirtæki séu viljandi að halda íbúðir auðar til þess að "hækka markaðsverð"... þetta er að sjálfsgöðu tóm þvæla.

Hér er ÍLS að slá af þessr rangfærslur

"

Af 2.607 eignum Íbúðalánasjóðs eru 1.239 í útleigu og 222 eignir teljast með öllu óíbúðarhæfar. 338 eignir bíða frekari greiningar hjá sjóðnum en margar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu eða leigu.

„Ítreka ber enn og aftur að margar eignir sem skráðar eru auðar og íbúðarhæfar hjá sjóðnum, uppfylla ekki skilyrði sem gerðar eru til leiguíbúða, í sínu núverandi ástandi. Íbúðalánasjóður ver að hámarki 1,5 m.kr. til lagfæringa á eignum sem geta farið á leigumarkað, að öðrum kosti fer eignin í sölu. Sú endurtekna fullyrðing að Íbúðalánasjóður láti fjölmargar hentugar leiguíbúðir standa auðar og engum til gagns, er því röng,“"

 

 

nú vona ég að allt þetta kjaftæðis umræða hætti.

 

hvells

 


mbl.is Hafa selt 266 eignir á árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Taka ber eftir hve miklu algengara er orðið að allskyns rangfærslum og mytum sé svarað núna eftir að sjallar og framsókn komust að kjötkötlunum. Svona og álíka mytur og vitleysismálflutningur fengu bara að vaða uppi óáreittar fyrir nokkrum misserum og Mogginn kynti undir.

Af þessu dregur hver þær ályktanir sem verða vill.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 16.12.2013 kl. 11:56

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Vinstri stjórnin þorði aldrei að benda á svona augljósu staðreyndir vegna þess að þeir þorðu aldrei að benda á staðreyndir sem getur kastað rýrð á "skjaldborgina"

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.12.2013 kl. 13:17

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Heldurðu því fram að hér á landi sé fyrir hendi virkur og heilbrigður markaður með íbúðarhúsnæði um þessar mundir?

Guðmundur Ásgeirsson, 16.12.2013 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband