Laugardagur, 14. desember 2013
Skattpíning
það er gott að vita að ef XS hefði haldið völdum þá mundi þessi flokkur halda áfram að skattpína fólk og fyrirtæki.
hvells
![]() |
Förum hóflega í álagninguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
Fólk fattar ekki að hið opinbera skapar ekki verðmæti, hvaða verðmæti skapa t.d. þingmenn með sínum störfum? Engin, raunar þvælast langflestir ef ekki allir þeirra fyrir verðmætasköpun. Er einhver í viðskiptum við alþingi eða ráðuneytin? Hvaða verðmæti skapar t.d. menntamálaráðuneytið? En efnahagsráðuneytið?
Fyrst hið opinbera skapar ekki verðmæti verður það að taka þau af öðrum áður en það getur eytt fjármunum. Hið opinbera tekur fjármuni með valdi af einstaklingum og fyrirtækjum og útdeilir þeim síðan til málaflokka sem eru stjórnmálamönnum þóknanlegir burtséð frá gagnsemi þeirra. Er t.d. einhver tilbúinn til að halda því fram að nám í kynjafræði sé gagnlegt? Hvaða gagn gerir t.d. Byggðastofnun?
Hið opinbera er því að útdeila þýfi. Vita stjórnmálamenn virkilega betur en aðrir hvað á að gera við peninga? Sé litið til stöðu efnahagsmála og skulda hins opinbera er ljóst að svo er ekki.
Gera þarf þingmenn persónulega ábyrga fyrir fjárlagahalla.
Helgi (IP-tala skráð) 14.12.2013 kl. 17:26
Ef allir kjósendur hér á landi hefði þína þekkingu og skilning þá væri lífskjör hér á landi mun hærri.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 14.12.2013 kl. 17:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.