Spænsk stjórnvöld úti á þekju

http://www.vb.is/frettir/99706/

Áform um að reisa fjölda spilavíta á Spáni, sem áttu að heita Eurovegas, eru runnin út í sandinn. Ástæðan er ágreiningur þeirra sem ætluðu að reisa spilavítið við spænsk yfirvöld. 

Það var Las Vegas Sands sem ætlaði að fjárfesta í spilavítunum fyrir 30 milljarða bandaríkjadali. Byggja átti sex spilavíti, tólf hótel og fjölmargar verslanir. Fjárfestingin hefði numið 3500 milljörðum íslenskra króna. 

Ráðgert var að þarna yrðu til 250 þúsund störf. Spánverjar voru spenntir fyrir verkefninu enda er 27% atvinnuleysi í landinu. Spænsk yfirvöld voru hins vegar ekki til í að fallast á ýmiss skilyrði sem fjárfestarnir settu. 

Las Vegas Sands vildi til dæmis að ríkisstjórnin tryggði þá gagnvart breytingum á löggjöfinni sem myndu draga úr hagnaði af rekstrinum. Þá vildi Las Vegas Sands líka lægri skatta á fjárhættuspil. Einnig vildi Las Vegas Sands undanþágu reglum um reykingar.

 

Land sem þarf erlenda fjárfestingu hafnar henni. Athyglisvert. Stjórnmálamenn eru hér að hugsa fyrir almenning.

kv

Sleggjan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Mér sýnist þetta vera ótrúlega góð fjárfesting sem almenningur á Spáni mun hagnast á.

Þetta er mikið tap fyrir Spán.

Augljóslega.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 14.12.2013 kl. 16:20

2 identicon

Sæll.

Gott dæmi um það að stjórnmálamenn þvælast bara fyrir verðmætasköpun. Við sjáum þetta alls staðar á misstórum mælikvarða. Hérlendis hefur þetta líka gerst og fer LV þar framarlega í flokki.

Hugsið ykkur samt réttlætið í þessu: Þarna komu nokkrar þröngsýnar sálir í veg fyrir að hundruðir þúsunda manna fengju vinnu. Fyrir hverja eru stjórnmálahræin að vinna? Sig eða kjósendur?

Helgi (IP-tala skráð) 14.12.2013 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband