ESB eða höft. Veldu.

Andri með góða bloggfærslu:

"Valið stendur á milli ESB aðilar og evru eða vogunarsjóða og haftakrónu.  Án ESB aðilar verða vogunarsjóðir í lykilaðstöðu til að skammta og stýra erlendu fjármagni til Íslands.  Völd þeirra munu aukast og þeir eru þegar búnir að koma sér vel fyrir.

Vogunarsjóðir eiga ekki aðeins kröfur á gömlu bankana, heldur líka íslenska ríkið, Landsvirkjun, sveitarfélög og aðra innlenda aðila.  Aðkoma þeirra að endurfjármögnun Lýsingar nýlega, sýnir vel að Ísland er á yfirráðasvæði vogunarsjóða og þeirra bankamanna.  Þeir eru jú sérfræðingar í áhættufjárfestingum.  Stórir erlendir viðskiptabankar á við Deutsche Bank vilja ekki lána til aðila í íslenskum áhættuflokki, það kostar þá dýrmætt eigið fé, en það er af skornum skammti.

Með krónuna verða Íslendingar að reiða sig á vogunarsjóði og AGS, aðrir eru ekki tilbúnir að taka þá áhættu að lána hingað erlendan gjaldeyri.  Og ætli Íslendingar að lyfta gjaldeyrishöftum munu vogunarsjóðir leika lykilhlutverk sem eini aðilinn sem mun treysta sér til að taka þátt í þeim markaði, en gjaldeyrismarkaður sem aðeins byggir á innlendum aðilum er ekki trúverðugur.

Nú hverfur ekki íslensk áhætta með ESB aðild en munurinn er að þá er búið að marka trúverðuga framtíðarstefnu í gjaldmiðilsmálum og aðkoma evrópska seðlabankans að íslenskri peningamálastefnu mun opna fyrir fleiri fjármögnunarleiðir og draga úr völdum vogunarsjóða.

Með krónuna sem framtíðargjaldmiðil verða vogunarsjóðir og kröfuhafar hins vegar hér á landi næstu áratugina, þeir eru ekkert á förum, þvert á móti hefur kosningaloforðsklúður framsóknar styrkt stöðu þeirra.

Á endanum munu Íslendingar þó átta sig á að haftakrónan og vogunarsjóðir eru allt of dýr kostur."

 

Ekki oft sem ég afrita heilu færslunnar og bæti litlu við. Þetta er eitt af þeim tilfellum. Sammála Andra hér.

kv

Sleggjan


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Galli við þessa færslu, sem þú telur góða, er að hún er bara tómar fullyrðingar sem ekki eru í samræmi við veruleikann. Ekki fer mikið fyrir rökstuðningi.

Alcan fékk mikið fé lánað vegna stækkunar, Oddný H. fékk milljarð dollara lánaðan nýlega. Mýmörg önnur dæmi eru án efa til.

Þetta heldur því ekki vatni :-(

Helgi (IP-tala skráð) 2.11.2013 kl. 08:12

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Mjög góð færsla... þó að ég er sjaldan sammála Andra.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 2.11.2013 kl. 10:03

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Reyndar rétt hja þer Helgi, erfitt að bakka upp allt og telja upp allt með og á móti. Hefði kannski hjálpað að benda á heimildir ,skýrslur og svona eftir setningu með fullyrðingu.

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 2.11.2013 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband