Fimmtudagur, 11. júlí 2013
Framlegðin
Það þarf að stórbæta framlegðina í ferðamannabransanum.
Við erum að fá alltof marga ferðamenn sem eyða of litlu. Það er engin lúxus afþreyjing hér á landi ef mið miðum við nágrannalöndin.
Ljóst er að ráðstefnuferðamenn eyða mun meira en almennir ferðamenn.
Við erum að fá ferðamenn frá ríkum vestrænum þjóðum og ekkert óeðlilegt að bjóða uppá lúxus afþreyjingu. En með því þarf aukna fjárfestingu í ferðamannaiðnaðinum.... en hún fer ekki af stað ef framlegðin er við núllið einsog núna.
hvells
![]() |
Svipað margir ferðamenn og Íslendingar allir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hún fer af stað ef vextir lækka og fjárfestar sem hafa trú á verkefninu vakni úr dvala.
Núverandi framlegð einstakra ferðamannafyrirtækja sem starfa á allt öðrum markaði en lúxusmarkaðnum skiptir litlu.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 11.7.2013 kl. 20:23
vextir fara niður þegar verðbólgan og verðbólguvæntingarnar sjatna (sem er ekki að fara að gerast meðan XB er að lofa peningaprentun)
ekki er ráðlegt að hafa neikvæða raunvexti og því er ekki hægt að lækka seðlabankavextina handvirkt.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.7.2013 kl. 22:20
Var að tala um markaðslega vaxtalækkun í kjölfar betri efnahagsumhverfis ekki handvirka vaxtalækkun.
Annars ert þú að misskilja Seðlabankavextina sýnist mér. Seðlabankinn getur einungis haft áhrif á markaðsvextina en ekki stjórnað þeim algjörlega handvirkt. Vextir á seðlabanka útlánum og innlánum er það sem stýrivextirnir eru.
Ef að stýrivextir fara í 2% sem dæmi. Þá fara markaðsvextir ekki niður í sömu tölu ef verðbólguvæntingarnar eru enn háar.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 12.7.2013 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.