Með kjafti og klóm

Það kemur að sjálfu sér ekkert á óvart að Sigmundur Davíð ver Framsóknarflokkinn og þar með Íbúðarlánasjóð með kjafti og klóm.

Vissulega buðu bankarnir svipuð lán og ÍLS. Það sem kveikti á þessum 90-100% lánum bankana var 90% loforð Framsóknarmanna árið 2003.

Það er augljóst.

Nú er til fjögur bindi af rannsóknarskýrslu sem staðfestir þetta en samt eru menn einsog Sigmundur í afneitun.

hvells


mbl.is 90% lánunum ekki um að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Hvellur.

Það er mér ekki augljóst að loforð um ÍLS fyrir kosningar 2003 hafi haft veruleg áhrif á viðskiptaáætlun bankanna í kjölfarið. Það er a.m.k. alveg hægt að ímynda sér að bankarnir hefðu komið inn með sama ,,hvelli" þó ekkert slíkt hefði verið gert. Áður en ÍLS var farinn að bjóða upp á 90% lán voru bankarnir byrjaðir á því og jafnvel 100%. Það var ekki þannig að lántakendur flykktust til ÍLS, heldur einmitt þveröfugt: Þeir borguðu upp lán sín hjá sjóðnum og hoppuðu í bjarnarfaðm bankanna. Ekki rétt?

Kv. Guðjón

Guðjón Jónsson (IP-tala skráð) 10.7.2013 kl. 09:13

2 identicon

SjálfstæðisFLokkurinn afneitar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengda atburði og FramsóknarFLokkurinn afneitar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð!

Hvað segir þetta Íslendingum um siðferði ráðamanna flokkanna?

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 10.7.2013 kl. 09:20

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

90% lán voru í boði fyrir tekjulægri einstaklinga og fjölskyldur frá 2001. Svona eins og það væri skárra að skulda mikið verðtryggt ef tekjurnar væru lágar...

Ekkert í skýrslunni færi rök fyrir því að "90% hafi valdið öllu illu"... enda slíkt ekki sett fram af neinum nefndarmönnum heldur fremur úr "rökstuðningi" eins og bloggi, blaðagreinum og almennu slúðri.

Óskar Guðmundsson, 10.7.2013 kl. 11:20

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Lánshlutfallið hafði minnst að segja, heldur aðallega sú staðreynd að þetta voru allt verðtryggð jafngreiðslulán með neikvæða eignamyndun (= innbyggt tap).

Guðmundur Ásgeirsson, 10.7.2013 kl. 14:11

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

innbyggt tap?   LOL

er þá 5ára verðtryggt lán ekki með neinu tapi vegna þess að þú byrjað að greiða niður höfustólinn?

þetta er ástæðan fyrir því að það tekur enginn mark á HH og félögum.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 10.7.2013 kl. 17:24

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Fjölmiðlar klikkuðu á að veiða frá honum Sigmundi hvað það væri þá sem skýrir gífurlegt tap ILS ef ekki 90 prósent lánin, auðvitað var hann ekki spurður að því.

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 10.7.2013 kl. 20:05

7 identicon

Er það ekki augljóst? Uppgreiðslur stærsta hluta lánanna og sjóðurinn sat uppi með peninga sem hann þurfti að koma í lóg meðan hans lán mátti ekki greiða upp. Það eru fyrst og fremst ákvarðanir við ávöxtun þeirra peninga sem voru rangar hjá sjóðnum; ekki sú staðreynd að hann bauð upp á 90% lán.

GJ

Guðjón Jónsson (IP-tala skráð) 12.7.2013 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband