Mánudagur, 8. júlí 2013
SUS um skatta
http://www.vb.is/frettir/93328/
Skattadagurinn er í dag, sunnudaginn 7. júlí, en þann dag hætta Íslendingar að vinna fyrir hið opinbera og byrja að vinna fyrir sig sjálfa. Almenningur er nú meirihluta ársins (187 daga) að vinna fyrir hið opinbera, eða frá 1. janúar til og með 6. júlí. Um 51% útgjalda heimilanna eru skattar og opinber gjöld. Svo segir í tilkynningu frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna, sem vekur athygli á skattadeginum annað árið í röð. Í fyrra bar daginn upp þann 9. júlí.
Í tilkynningu SUS segir að breytinga sé þörf, ríkið og sveitarfélög þurfi að sýna meiri ráðdeild og spara í rekstri. Auk þess þarf að einfalda skattkerfið til muna, fækka sköttum og undanþágum, svo að það skili betur hlutverki sínu, þ.e.a.s. að afla ríkinu tekna."
Sleggjan feitletraði mikilvægustu punktana.
Fækka (og lækka) söttum.
Hætta þessum undanþágum sem eru að grafa undan allri samkeppni hér á landi og ívilna ákveðnum hópum sem eru jafnvel pólítískt tengdir.
Sýna ráðdeild og spara í rekstri. STRAX.
kv
Sleggjan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
sammála þessu.
ég væri til þess að fara norsku leiðina
http://mylittlenorway.com/2009/11/november-is-half-tax-month/
taxlausi mánuðirnn.
skrítið að "norræna velferðarstjórnin" tóku ekki noreg til fyrirmyndar.
en þeir pikkuðu kannski bara út það sem þau vildu frá noregi?
svo er furðulegt að XD bærinn keflavík sé með hæsta mögulega útsvar.... ef við miðum við sd bæjina garðabær og seltjarnarnes.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 8.7.2013 kl. 13:10
Sælir félagar.
Ég held að það sé bara best að kalla þetta það sem það er: Þrældómur. Við vinnum og vinnum fyrir hið opinbera hvort sem við viljum það eða ekki - við megum ekki ráðstafa okkar fé eins og við viljum því ef okkur dettur svoleiðis fjarstæða í hug endum við í grjótinu. Hvað er það annað en þrældómur og rán?
Opinber gjöld eru í dag blóðpeningar, þeim er stolið af fólki af fólki sem fer í stjórnmál vegna þess að það meikar það hvergi annars staðar.
Lýðræðið er stórkostlega gallað fyrirbæri - í það minnsta þegar stjórnmálahræin hafa svona mikil völd.
Svo verðið þið félagarnir að hjálpa mér að opna augu þessa bloggara:
http://kreppan.blog.is/blog/kreppan/
Það er beinlínis fyndið hvernig hún snýr út úr og býr til dóma dellu.
Helgi (IP-tala skráð) 9.7.2013 kl. 11:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.