Mánudagur, 8. júlí 2013
Hagræðingarnefndin
Talað er um hagræðingarnefndina sem sjálfsmorðssveit. Gert grín af henni því þingmennirnir sem leggja tillögur til niðurskurðar munu missa þingsætin sín.
http://www.dv.is/frettir/2013/7/8/thau-hagraeda-hja-rikinu/
http://vefir.pressan.is/ordid/2013/07/05/sjalfsmordssveitin/
http://eyjan.pressan.is/silfuregils/2013/07/06/nefnd-hinna-umdeildu-thingmanna/
Mér finnst þetta vera ein mikilvægasta nefndin. Mikil ábyrgð og áskorun.
Það þarf að skera niður, og að vera í forystunni í þeirri vegferð er heiður. Það þarf að breyta viðhorfunum.
Kjósendur eru stundum ekki að fatta að ríkiskassinn er tómur og það þarf að skera niður, stíga ekki í vitið.
kv
Sleggjan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
hagræðingarnefnd er bæði flott og nauðsynleg - óumdeildt - málið er að nefndarmönnum er ekki treyst og þess vegna þessi ónægja. t.d. treysti ég Ásmundi E ekki til að taka til í landbúnaðarinum sem ég held að kosti okkur mikið
Rafn Guðmundsson, 8.7.2013 kl. 11:35
Fólk ekki beint óánægt.
Heldur er verið að gefa í skyn að þessir nefndarmenn munu ekki eiga langt pólítískt líf eftir niðurskurðar og hagræðingartillögur.
En ég tel þetta samt vera snilldarnefnd, það þarf að skera niður. Ef ég væri þingmaður hefði ég boðið mig fram í þessa nefnd og lagt mig fram til að vera í henni. Minn heiður að rétta af þjóðarbúskapinn.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 8.7.2013 kl. 12:20
ríkissjóður er á barmi gjaldþrots og ef þeim tekst vel til þá eiga þau skilið fólkaorðuna, endurkjör og ráðherrastóla.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 8.7.2013 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.