Þriðjudagur, 14. maí 2013
Kosningaloforðasvik í nánd sem betur fer
Jæja.
Loforð um niðurfellingu var blekking ein. Framsóknarmenn komu fram með þessi loforð til þess að fá þingsæti. Það virkaði líka svona svakalega vel. Lýðurinn trúði og var skrumaður, enn og aftur.
Katrín segir að það sé ekkert nýtt að ríkisfjármálin séu ekki góð. Sigmundur og XB vissu það líka. En flokkurinn vildi atkvæði og fleiri þingmenn.
Nú er verið að undirbúa svikin.
Takið sérstaklega eftir því að Sigmundur mun segja að þessar upplýsingar lágu fyrir eftir kosningarnar ekki fyrir. Það er lykillinn að spunanum.
Sem betur fer segi ég.
Allur umframpeningur skal nota til að borga niður skuldir. Eru ekki allir sammála því eða?
kv
Sleggjan
![]() |
Vandræðalegt fyrir Sigmund Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Auðvitað verður þetta niðurstaðan, að Framsókn muni ekki gera nokkurn skapaðan hlut fyrir skuldara þrátt fyrir fögur loforð.
Ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins er andvana fædd.
Drasl!
Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 14.5.2013 kl. 18:53
Tvöföld neitun er sama og játun
Sbr. það eru ekki neinir peningar í kassanum
Því miður þá neitaði Steingrímur þessari staðhæfingu SD svo oft að ég missti talninguna
Grímur (IP-tala skráð) 14.5.2013 kl. 19:07
Var að horfa á þátt á INN ÁED var að tala við HB - þar kom fram að það verði skýr krafa um að senda esb - skýr skilaboð - enda niðurstaða kosninga á þann veg.
Óðinn Þórisson, 14.5.2013 kl. 22:30
Óðinn. Þjóðin kaus skuldaniðurfærslu ekki að aðildaviðræðum yrði hætt. Þetta sýnir bæði gríðarleg aukning fylgis við Framsóknarflokkinn korteiri fyrir hrun, á kostnað stjórnarflokkana sem og staðfesting skoðanakönnunar á því hvers vegna fólk kaus Framsókn.
Fyrst og síðast skuldaleiðrétting, hefur ekkert með ESB að gera enda gott mál að þjóðin fái að kjósa um það.
Aftur, ríkisstjórn íhaldsins og afturhaldsins er andvana fædd.
Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.5.2013 kl. 10:06
Það stendur ekki til að samþykkja úrtöluraddir, sem mæla hér með kosningasvikum við almenning.
Réttindi almennings eru mikilvægari, en orðagjálfur úrtöluradda. Það gildir ekki bara á Íslandi, heldur um allan heim.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.5.2013 kl. 12:17
Jón S, það er ekki hægt að tala við hann Óðinn, hann er með esb gleraugun á öll mál.
kv
sleggjan (IP-tala skráð) 15.5.2013 kl. 16:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.