Enn ein rök NEI-Sinna detta niður dauð

Nei-Sinnar hafa stöðugt haldið fram að ef við göngum inn í ESB sé ekki aftur snúið.

 

Bretland er væntanlega að fara greiða atkvæði um veru sína í sambandinu.

Er ekki augljóst að land getur farið inn og út að vild? Af hverju eru Bretar að fara kjósa um veru sína ef ekki er hægt að ganga úr?

 

Varanlegt fullveldisafsal er semsagt rugl sem sett er fram í áróðursskyni af NEI-Sinnum sem er sama um sannleikann. Bara ef eitthvað þjóni sínum tilgangi og hagsmunum þá er það í lagi. Sannleiksgildi er aukaatriði hjá þeim.

 

kv

Sleggjan


mbl.is Íhaldið gerir uppreisn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og ertu sem sagt að reyna að selja aðild að ESB með þeim rökum að Bretar séu að reyna að komast út úr sambandinu?

Seiken (IP-tala skráð) 12.5.2013 kl. 19:24

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það eru vissulega brilljant rök.

Ég fæ ekki betur séð en allir sem eru í þessu sambandi vilji út. Nema pólitíkusarnir.

Ásgrímur Hartmannsson, 12.5.2013 kl. 19:27

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@ Seiken

Hvernig væri að lesa færsluna betur. Ertu þunnur eftir helgina?

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 12.5.2013 kl. 20:26

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Við eigum semsagt að ganga inn í þetta brennandi hús Evrópusambandið af því að það er víst kannski einhver tæknilegur möguleiki á að það sé svo hægt að ganga út úr því einhvern tíman síðar.

Þetta er nú eins og að gifta sig einhverrki herfu sem manni lýst alls ekkert á með þeim rökum að það sé bara einhvern tíman alveg hægt að skilja við hana.

Í örvæntingunni nær rökleysa ykkar aðildarsinna nær alveg nýjum hæðum !

Gunnlaugur I., 12.5.2013 kl. 23:50

5 identicon

Held að þú sért að einfalda þetta mjög mikið. Það er kanski enginn regla sem að segir að okkur sé bannað með lögum að fara ef að við göngum þarna inn, en það sem gerir málaflutning ESB-sinna að vitleysu er að þeir gera mjög lítið (eða bara láta eins og að hún sé ekki til) úr þeirri staðreynd að þegar búið er að "samantengja" efnahag Íslands við efnahag ESB, sem er bara mjög mikið mál, þá er ekki eins og að við getum bara skipt um skoðun og farið til baka eins og ekkert sé. Af hverju heldur þú að Ísland þurfi að gera svona mikið til að komast inn í ESB til þess að byrja með? Það er að því að lönd sem eru í ESB verða að vera nátengd efnahag ESB til að fá að vera í ESB. Ef að okkar efnahagur væri nátengdur efnahaginum í ESB, hvernig ættum við þá að fara að því að yfirgefa ESB án þess að því myndi fylga meiriháttar vesen?

Þetta er það sem að gerir málaflutning þeirra sem að segja að Ísland gæti bara farið úr ESB svona mikið bull. Þetta er svo barnalega mikil einföldun að það er eiglega vandræðalegt að þetta fólki haldi svona vitleysu fram!

Það er eins og þetta fólk hafi leikskólaskilning á því hvernig mannlegt samfélag virkar. Ef að það er svona ofur-einfalt að fara úr ESB af hverju er þá svona mikið mál að komast inn?

Heh.

Sveinn Dagur Rafnsson (IP-tala skráð) 13.5.2013 kl. 05:48

6 identicon

Sæll Sleggja.

Ég fór að ráðum þínum og las færsluna aftur.  Og viti menn! Ályktunin er sú sama og áður, þú ert í grunninn til að reyna að selja sambandsaðild með þeim rökum að Bretar séu að reyna að komast út úr ESB.

Þetta er bara skák og mát.  Við þessari röksemdafærslu hjá þér eru ekki til nein andsvör.

Seiken (IP-tala skráð) 13.5.2013 kl. 08:19

7 identicon

Áfram Bretland! Rís upp og vertu það sem þér var alltaf ætlað að verða! Losaðu þig við óværuna sem þú hefur sigrað tvisvar, mannkyninu til heilla! Megi vegur þinn verða mikill! Losnaðu þig við Þýskaland, og hina pláguna, sem líka er þaðan komin, "bresku" konungsfjölskylduna. Frjálst Bretland! Frjálst mannkyn! Slítið hlekkina! Frelsið bíður!

Nýr tími! Nýtt upphaf! (IP-tala skráð) 13.5.2013 kl. 08:40

8 identicon

Ósmekklega langt gengið en lýsir engu að síður ákveðnum veruleika. ESB er plott Þjóðverja til að enn á ný blóðmjólka Evrópu. Grikkland varð fyrir það miklu fjárhagstjóni af WW2 að þeir hafa enn ekki náð að reisa sig við til fulls eftir það. Áður en þeir fá tækifæri til að hrista af sér tjónið sem Þjóðverjar ullu þeim þá hneppa þeir hinir sömu þá í skuldaþrælkun undir nafni ESB. Skömm! http://gustafskulason.blog.is/blog/gustafskulason/entry/1298017/

Nei ! (IP-tala skráð) 13.5.2013 kl. 09:03

9 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ein rök nei sinna er að það er ekki hægt að segja sig úr ESB

sú lýgi, blekkingar og áróður hefur dottið niður dauð eftir þessa frétt.

sleggjan er að benda á þá staðreynd að NEI sinnar víla sér ekki fyrir að ljúga að þjóð sinni aftur og aftur

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 13.5.2013 kl. 11:06

10 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

nýr tími

kaldhæðni?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 13.5.2013 kl. 11:11

11 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

nei

þetta er djók hjá þér er þaggi?

trollolloll  :D

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 13.5.2013 kl. 11:11

12 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég tek undir þau rök að sumir háttsettir nei-sinnar eru ekki traustsins verðir, frekar en ESB-kerfisflækjan óskiljanlega, sem þeir toppar ætla sér að klára að koma okkur endanlega í. Þjóðin fær ekki einu sinni að kjósa í (ó-svindluðum) kosningum, hvort hún vill ESB-bankastjórnsýslu-kerfi.

Ásgrímur Hartmannsson er með þetta á hreinu, og kemur heildarmyndinni mjög hnitmiðað, skiljanlega og rétt frá sér. Ekki veit ég hvar hann er í liði, en honum ratast sannleiks-leiðin vel, með sínum skrifum. Og án einhverra gífuryrða. Ég ber virðingu fyrir þannig pennum. Við getum víst öll lært af slíkum pennum.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.5.2013 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband