Sunnudagur, 12. maí 2013
Traust
Ég gerir ráð fyrir að það er almennt séð ágætis traust á honum Bjarna. Vissulega eru öfl innan flokksins sem vilja helst fá Davíð Oddson sem formann flokksins en svo betur fer eru þeir að nálgast ellilífeyri og sumir einfaldlega orðnir dauðir úr öllum æðum.
Svo eru nokkrar sem eru með ESB á heilanum og eru ofsóknabrjálaðir vegna þess að Bjarni og Illugi skrifuðu grein í Moggann á sínum tíma og vildu taka upp stöðugan gjaldmiðil eftir mesta gengisfall krónu frá upphafi peningastefnunnar.
Eygló þarf ekki að hafa neinar áhyggjur.
hvells
![]() |
Segir tímabært að treysta Bjarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:58 | Facebook
Athugasemdir
Vildu þeir taka upp stöðugan gjaldmiðil já...
Kannski verðtryggðu krónuna?
Stöðugri mynteining er varla til á Vesturlöndum.
Guðmundur Ásgeirsson, 12.5.2013 kl. 17:42
Hvað með verðtryggingar-krabbameinið? Með hverju á að lækna þann ólæknandi sjúkdóm fjármála-bröltaranna tæru og snjöllu (tær snilld).
Og hvað með okurvextina, sem er líka hengingaról alls sem lifir hér á skerinu?
Eins gott að það verði staðið með fólkinu, en ekki glæpastofnunum!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.5.2013 kl. 18:01
@1
Bjarni vildi taka upp Evru í samstarfi við AGS.
@2
Evran er raunhæf lausn á þessu "krabbameini". En þú, Anna, ert á móti því. Hefur þú þá betri lausn?
Ekki nóg að bara kvarta. Hugsa í lausnum líka.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 12.5.2013 kl. 18:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.