Laugardagur, 11. maí 2013
Viljandi rangt mat og áróður
Það er bara þannig að turnarnir þrír Björn, Styrmir og Davíð eru með ESB á heilanum. Þeir bera ábyrgð á því að landsfundurinn ályktaði um lokun Evrópustofu og opinberaði hugsunarhátt þröngra Sjálfstæðismanna. Eftir þessa heimóttarlegu ályktun varð flótti frá XD.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var að mælast með undir 20% heyrðist ekki orð frá turnunum þrem. Davíð Oddson hélt bara sínu striki í staksteinum og leiðurum. Pönkaðist í ESB aftur og aftur. Á meðan fylgið hríðféll af XD. Enda eru turnarnir þrír alveg nákvæmlega sama um fylgi XD svo lengi sem við göngum ekki í ESB.
Svo er fall XS ekki vegna ESB. Enda fóru 40% af kjósendum XS til XB. Og XB er ekki beint ESB flokkur með Vigdís Hauks og formann Heims(k)sýnar innanborðs.
Enda er þetta bara áróður hjá Birni.
hvells
![]() |
Hin eina og sanna hrunstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:10 | Facebook
Athugasemdir
Ef það er einhver sem er með rangt mat á stöðunni þá ert það þú/þið, það nægir bara að skoða ummæli þín/ykkar undanfarin ár í tengslum við ESB td. Fólk sem er hlynnt ESB(og er samfylkingarmenn) kýs ekki framsókn nema aðeins að ESB draumurinn hafi hrunið
Brynjar Þór Guðmundsson, 11.5.2013 kl. 18:13
Þið eruð pikk fastir í sama ESB farinu. Björn er mjög glöggur og reynslumikill á sviði stjórnmálanna.
Auðvitað eru stærstu úrslit kosninganna að ESB umsóknin og aðlögunarferlið hrundi með þessu kosninga afhroði Samfylkingarinnar.
Auðvitað voru þeir fjölmörgu Sjálfsstæðismenn sem fóru yfir á Framsókn ekki að flýja Sjálfsstæðisflokkinn vegna ESB stefnu flokksins. Því að ef eitthvað er þá eru Framsóknarmenn enn einarðari í andstöðu sinni við ESB, með Ásmund Einar Daðason formann Heimssýnar og fleiri grjótharða ESB aðildarandstæðinga í broddi fylkingar.
Hvað þá með þau fjölmörgu atkvæði sem fóru nú frá Samfylkingunni og yfir á Framsókn í þessum kosningum. Auðvitað var það út af því að þetta fólk hafði gefist upp á ESB rugli Samfylkingarinnar. Samfylkingin og ESB ruglið þeirra er rúið öllu trausti.
Ef eitthvað sem er alveg augljóst í þessum kosningum þá er það afhroð ESB flokksins Samfylkingarinnar.
Gunnlaugur I., 11.5.2013 kl. 18:26
@Gunnlaugur
Þú hefur greinilega ekki fylgst með kosningabáráttunni.
En kannski ertu fastur með ESB-Gleraugun á þér 24/7.
Kosningarnar snérust voðalega lítið um ESB. Snérust eiginlega bara um skuldavanda heimilanna og loforð í þá áttina.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 11.5.2013 kl. 19:19
Fátt finnst mér leiðinlegra en menn sem tala gegn betri vitund, samanber Björn.
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 11.5.2013 kl. 19:20
Björn er mjög glöggur. En þarna er hann einfaldlega að beyta áróðri.
ESB er orðið að áráttu hjá honum og Dabba. Þeir taka engum rökum með ESB... þeir eru alveg heilaþvegnir og afdankaðir pólitikusar.
Í raun á ekkert að hlsta á svona lið. Þeirra tími er búinn.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.5.2013 kl. 22:23
Vá..Þarf ekki S&L að fara að skipta út CD disknum sem þeir hlusta á.
80 % kjósenda kaus annað en stjórn Samfylkingar /VG
Það er staðreynd !
Og þar með felldi dóm yfir öllu sem þessi stjórn stóð fyrir..
"suck it in !"
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 12.5.2013 kl. 11:04
Birgir
Sem Sjálfstæðismaður er ég mjög sáttur við úrslit kosningana.
Og sem hægri maður er ég mjög mjög sáttur með að vinstri flokkarnir gjörtöpuðu.
En í þessari færslu er ég að tala um allt annað.
Mæli með að þú lesir hana aftur vegna þess að það er greinilegt að þú hefur misskilið eitthvað.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 12.5.2013 kl. 12:25
Tveggja mánaðar kosningabarátta breytir engu um skýrt markaðri stefnu flokkanna í ESB andstöðunni.
Gunnlaugur I., 12.5.2013 kl. 16:06
@Gunnlaugur
Af hverju sópaði Regnboginn ekki til sín atkvæðum?
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 12.5.2013 kl. 20:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.