Föstudagur, 10. maí 2013
Stökkvum frá sökkvandi skipi
Ég hef breytt um skoðun.
Sjálfstæðisflokkurinn á að segja sig frá þessum viðræðum um XB. Látum bynda BAS stjórnina eða verjum XB vantrausti þ.e minnihlutastjórn.
Ég veit að það er freistandi að komast í stjórn en þessar gölnu tillögur Framsóknar eru stórskaðlegar. Ef XD ætlar að vera með í þessari ferð þá mun XB draga XD með sér í svaðið.
Við skulum vera þolinmóðir og bíða í 4ár og ná vopnum okkar í stjórnarandstöðu enda verður nóg að gagnrýna þegar þessi galna framkvæmd XB kemur til framkvæmda.
hvells
![]() |
Ræða skuldir heimilanna í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
En er ekki alveg eins líklegt að sjallarnir endi með stjórnarmyndunnarumboðið ef að þeir flýja skipið? Og þurfa þá væntanlega að "eiga samtal við framtíðina" með ÁPÁ og Guðmundi Steingríms?
Sennilega hljómar verðtryggingarstjórn á fullri ferð inn í ESB fyrir flestum landsmanna jafn girnilega og sú "snilldarhugmynd" að sarga af sér útlimina með skeið.
Seiken (IP-tala skráð) 10.5.2013 kl. 13:05
Nei.
Tel að það sé mun líklegra að XB vinni til vinstri. Þar innanborð eru margir vinstrimenn sem vilja frekar snúa sér til vinstri.
Það eru mun fleiri vinstrimenn í XB heldur en í XD
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 10.5.2013 kl. 14:02
En ef þetta er rétt hjá þér að, xB vilji vinna til vinstri, þá bendir það að xB hafi snúið sér til hægri ekki til annars en að vinstri vængurinn hafi ekki verið tilbúnir í skuldaleiðréttingar a la xB.
Ég tel ólíklegt að þeir gefi það mál eftir ef þið stökkvið frá borði. Mér finnst sennilegra að þeir muni leyfa ykkur að engjast yfir því að mynda verðtryggingarstjórn.
Seiken (IP-tala skráð) 10.5.2013 kl. 14:26
Burt séð hvað verður... þá tel ég það mjög óráðlegt að fara í stjórnarsamstarf við XB.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 10.5.2013 kl. 15:41
Hvaða tillögur Framsóknarmanna eru það sem þú vilt meina að séu að þínu mati galnar og skaðlegar, hvells? Það væri hjálplegt ef þú myndir taka fram hvað það er sem þú átt við. Annars er mjög erfitt að skilja hvað þú ert að meina.
Guðmundur Ásgeirsson, 10.5.2013 kl. 16:03
Hvells hefur reyndar ekki minnstu hugmynd hvað það er sem hann er á móti, annað en að hann er á móti framsókn yfir höfuð.
Það er alltaf ný og ný skýring hvað það er sem er galið.
Sigurður (IP-tala skráð) 10.5.2013 kl. 17:24
Auðvitað eru framsóknarmenn galnir. En sennilega stóð adrei til að efna gölnu loforðin. Það getur tæplega verið að í slíkri stofnun sem framsóknarflokkur er hafi í raun verið búist við í innstu röðum að nokkurntíman yrði staðið við galinleikann. Enda má eiginlega sjá og mátti sjá fljótlega eftir kosningar á orðum framsoknarmanna - að þá voru gölnu hugmyndirnar ,,misskildar" fyrir kosningar.
Margt bendur til að þessi galinleiki hafi aðeins verið settur fram til að kaupa atkvæði.
Þegar verið er að ræða íslenska pólitík, þá verður aldrei neitt vit í henni ef menn skilja ekki bakgrunn Framsjalla. Bakgrunnurinn eru viðskiptaklíkur úmiskonar. Ástæða þess að Framsókn og Sjallar voru svo desperat að komast í stórn núna, er að mörg meginfyrirtæki og apparöt í landinu eru í lausu lofti eftir hrunið. Það eina sem þeir framsjallar hugsa um er að komast að þjóðarkjötkatlinum til þess að úthluta gæðum og/eða hafa áhrif á úthlutun gæða til viðskiptaklíka landsins.
Það er ekkert eins og við höfum ekki séð þetta áður. Formaður Framsóknar er bóksaflega afurð slíks.
Það er eins og íslendingar séu alveg staurblindir pólitískt.
Ok. Ef ofansagt er haft í huga - þá eru nánast engar líkur til annars en að Sjallar og Framsókn fari saman i stjórn. Hagsmunirnir eru of miklir.
En þetta er alveg versta fyrirkomulag sem hægt er að hugsa sér fyrir almenning og Landið slík samstjórn Sjalla og Framsóknar. Alversta fyrirkomulag.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 10.5.2013 kl. 18:30
Ég hef það á tilfinnunni að ESB undir nafninu Evrópuvaktin hér á landi vilji sjá Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn sem Samfylking-Björt Framtíð og Vinstri Grænir yrðu með innanborðs.
Ef Sjálfstæðismenn fara með Framsókn í ríkisstjórn núna verða þeir undir stöguðri pressu að Framsókn geti slitið sig frá samstarfinu og myndað ríkisstjórn með svörtu riddörunum undir stjón Samfylkingar sem ég kom inn hér ofar í ESB stjórnarsamstarf.
Baldvin Nielsen
B.N. (IP-tala skráð) 11.5.2013 kl. 13:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.