Tökum heilbrigða skynsemi á þetta

Greiðsluvandræðin eru ekki meiri en árið 2004. Það er staðreynd.

Framsókn náði að tala upp greiðsluvandræðin með spunabrellu.

Íbúalánasjóður þarf að bregðast fljótt við. Hann er ríkisfyrirtæki þannig ég er kannski full bjartsýnn.

Íbúalanasjóður þarf að stofna deild sem sér um að leigja út íbúðir sem hann hefur tekið til sín vegna vanefnda. Þetta getur verið nýtt hlutverk hans ásamt íbúalánum. Markaðsverð skal vera viðmiðið. Óásættanlegt er að sjóðurinn eigi hundruð íbúa án þess að gera neitt. Leigja þetta út.

 

110% leiðin er fín eins langt og hún gengur.

Ég er hlynntur lyklafrumvarpinu sem fór aldrei í gegn. Að fólk geti skilað íbúðinni og labbað í burtu skuldlaust. Þrátt fyrir að viðkomandi tók kannski 100% lán + tjaldvagn. So be it.

Lengra vill ég ekki ganga.

 

Förum að tala á skynsamlegu nótunum. Hættum þessu tali  um afskriftir lána samkvæmt loforðum XB. Það setur ríkissjóð á hliðina eða í alvarleg vandræði eins og kemur skýrt fram í skýrt fram í skýrslu Seðlabankans.

kv

Sleggjan


mbl.is „Frysting lána var gagnslaus“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Starbuck

Tökum heilbrigða skynsemi á þetta og hættum okurlánastarfsemi.  Íslendingar eiga ekki, frekar en aðrir, að þurfa að borga okurvexti þegar þeir kaupa sér þak yfir höfuðið. 

Starbuck, 9.5.2013 kl. 10:45

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Sammála.

Ertu ekki hlynntur stöðugum gjaldmiðli fyrir Ísland?

Varstu ekki á móti rugl loforðum hjá XB og XD sem skemmir stöðugleikann í efnahagslífinu?

Efast ekki um það Starbuck

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 9.5.2013 kl. 11:06

3 identicon

Sæll.

Sigmundur segir að frumkvæðið að þessu öllu saman hafi komið frá kröfuhöfum. Ef það er satt er framsóknarleiðin raunhæf, annars ekki.

Sparka þarf forstjóra og stjórn ÍBL. Tómar eignir skila ekki tekjum.

Helgi (IP-tala skráð) 9.5.2013 kl. 12:19

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

,,Íslendingar eiga ekki, frekar en aðrir, að þurfa að borga okurvexti þegar þeir kaupa sér þak yfir höfuðið."

Og afhverju heldurðu að það séu hærri vextir á Íslandi en summstaðar annarsstaðar? (Reyndar má alveg deila um raunvaxtastig og samanburð við önnur svæði)

En heilt yfir orsakast fyrirkomulag vaxta hér af örsmæð hagkerfis ásamt örmynt með mikilli verðbólgu. Jafnframt sem ábyrgðarlaus efnahagsstjórn Framsóknar og Sjalla gegnum árin orsakar hærri vexti. Ennfremur að í hvert sinn sem útlendingaandúð og kjánaþjóðrembingur blossar upp = hærri vextir. Og má nefna ruglið í innbyggjurum með icesaveskuldina sem dæmi. Ruglið hækkaði vexti og þannig borga innbyggjar fyrir ruglið í sér á þann hátt meðal annars.

Ef bulltilllögur Framsóknar næðu 1% fram að ganga núna það þýddi = hærri vextir.

Einnig myndi lyklafrumvarpið sennilega skila sér í hærri vöxtum og/eða að erfiðara væri að fá lán.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 9.5.2013 kl. 13:07

5 Smámynd: Starbuck

Ekki sammála því að það þurfi annan gjaldmiðil til að lækka vexti.

Starbuck, 9.5.2013 kl. 14:23

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

veistu ekki einusinni sjálf(ur) hvað þú ert sammála

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 9.5.2013 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband