Þriðjudagur, 7. maí 2013
Formaður SUS með fína grein
SUS menn eru frjálshyggjumenn. Yfirleitt meira til hægri en flokkurinn sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn.
Þetta er eðli ungliða hreyfinga.
Davíð Þorláksson formaður skrifaði grein í Morgunblaðið.
Hann talar um 3 aðalatvinnuvegi Íslendinga: Sjávarútvegur, Ferðaþjónusta og Stóriðja.
Um Stóriðju segir hann:
Hann segir stóriðjuna njóta sérstakrar skattafyrirgreiðslu. Fyrirtækin þurfa jafnan ekki að greiða jafnháan tekjuskatt og fasteignagjöld og þeim er jafnframt lofað að skattarnir þeirra fari ekki yfir tiltekin mörk. Í þriðja lagi krefst stóriðjan þess að ríki og sveitarfélög leggi í ýmsan kostnað til að þjónusta stóriðjuna, svo sem vegaframkvæmdir með ærnum tilkostnaði, skrifar Davíð.
Hann segir stjórnmála- og embættismenn ákvaða hvar starfsemin á að vera staðsett og hversu umfangsmikil hún á að vera. Þetta fyrirkomulag í atvinnuuppbygginu hljómar kunnuglega og er nær samblandi af áætlunarbúskap og kjördæmapot en markaðsbúskap, skrifar Davíð sem segir almenning ekki einungis tapa og taka áhættu vegna þessarar uppbyggingar. Hver ný stóriðja er svo stór inn í okkar litla hagkerfi að allt atvinnulífið og öll þjóðin þarf að búa við hærra vaxtastig en ella meðan á uppbyggingunni stendur vegna þensluáhrifa þeirra. Hærra vaxtastig gerir öllum öðrum atvinnugreinum erfiðara að fjárfesta, m.ö.o. að skapa ný atvinnutækifæri. Ruðningsáhrifin á aðra og hugsanlega arðbærari fjárfestingu eru gríðarleg, skrifar Davíð.
Hann segir stuðningsmenn stóriðju benda á að atvinna sé grunvöllur velferðar og spyrja hvað menn vilji gera annað til að byggja upp atvinnu. Hann segir því vera svarað til að menn vilji eitthvað annað og það kalli á hlátrasköll frá stóriðjusinnum. En staðreyndin er sú að þetta eitthvað annað er alls ekki galið. Vísar það ekki einfaldlega til þess að það sé ekki stjórnmálanna að finna eitthvað annað að skapa störf? Hefur reynslan ekki kennt okkur að það sé hagkvæmast að eftirláta markaðnum að leysa úr því hvaða atvinnutækifæri sé besta að byggja upp, spyr Davíð sem segir hægrimönnum að láta vinstrimönnum eftir stóriðjustefnu.
Góður punktur hjá honum Þorlák. Ekki verk stjórnmálamanna að finna vinnu handa landanum. Nema ef þú ert sóvéskur vinstrimaður.
Sleggjan er reyndar ekki hlynntur því að loka álverssjoppunum sem þegar eru til. Heldur vill ég segja að það sé nú komið gott. Látum fólkið í landinu velja störfin, ekki stjórnmálamenn. Gerum bara skattaumhverfi og regluumhverfi aðlaðandi og það kemur að sjálfum sér.
kv
Sleggjan
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
ég get verið sammála SUS í þessu máli
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 7.5.2013 kl. 12:12
Í þau fáu skipti sem krakkarnir í SUS bulla ekki út og suður, taka menn andköf að aðdáun og hrifningu. Slakið á, ekkert að marka hvað þessir heildsala- og LÍÚ gikkir segja.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 7.5.2013 kl. 12:24
SUS liðar hefðu mátt bæta við að það skal fara markaðsleiðina í kvótamálinu.
Selja kvóta hæstbjóðanda á frjálsum markaði.
En LÍÚ er svo stór sponsor Sjálfstæðisflokksins að það gerist ekki í bráð og lengd.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 7.5.2013 kl. 12:30
Nota svo kvótann sem væri þá um 200-300milljarðar á ári að greiða niður skuldir. Tæki nokkur ár.
Eftir það er hægt að lækka skatta á landsmenn.
Þökk sé markaðslausna kvótans.
Hægri leið. Hægri lausn.
kv
Sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 7.5.2013 kl. 12:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.