Bæði betra?

XD menn voru að segja að XB leiðin væri of kostnaðarsöm.

XB menn sögðu að XD menn gætu ekki sagt mikið því XD leiðin væri nokkuð kostnaðarsöm líka.

 

Er niðurstaðan að fara báða leiðirnar. Þ.e skatta afslátta og kröfuhafaleiðina?

 

Er það ekki of mikið af því góða?

 

hvells 


mbl.is Fóru saman út úr bænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Og hver er sá kostnaður nákvæmlega?

Guðmundur Ásgeirsson, 5.5.2013 kl. 17:38

3 identicon

Sæll.

Flokkarnir geta byrjað á því að setja lyklalögin (hugmynd frá Sjöllum), þau yrðu mikil réttarbót fyrir almenning. Þau ættu að geta tekið gildi 1. okt eða svo.

Samtímis þarf að setja lög sem banna fjármálastofnunum að krukka í íbúða-og leiguverð eins verið er að gera núna svo ársreikningar þeirra líti vel út ; skylda þarf fjármálastofnanir til að setja allar fasteignir sem þær hafa leyst til sín á markað á næstu 12 mánuðum og þær sem þær leysa til sín eftir það innan þriggja mánaða. Hér er verið að svindla á almenningi með því að halda íbúða- og leiguverði óeðlilega háu með því að halda eignum af markaði. Af hverju er fjármálastofnanir ekki sekar um markaðsmisnotkun?

Eftir að gildistöku svona laga eykst verulega pressan á bankana að afskrifa og þá er ekki einu sinni víst að menn þurfi mikið að grípa til Framsóknarleiðarinnar, hún gæti verið ásinn uppi í erminni ef á þarf að halda.

Þessi leið er líka markaðsleið, stjórnmálamenn eiga ekki að vera með puttana í markaðinum - leyfa þarf honum að virka en hérlendis vantar víða mikið upp á slíkt.

Helgi (IP-tala skráð) 5.5.2013 kl. 18:37

4 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Kom ekki Lilja Móses fram með lyklalagahugmyndina...?

Haraldur Rafn Ingvason, 5.5.2013 kl. 19:27

5 identicon

@2

Kostnaðurinn hefur ekki komið fram. Enda framsóknarleiðin ekki komin til framkvæmda.

sleggjan (IP-tala skráð) 5.5.2013 kl. 21:25

6 identicon

Frá mínum bæjardyrum séð er kostnaðurinn samtals afskirftirnar af húsnæðislánunum.

kv

sl

Sleggjan (IP-tala skráð) 5.5.2013 kl. 21:26

7 identicon

@4: Það gæti verið, ég sá þessa hugmynd fyrst í pésa frá Sjöllunum. Hún gæti verið fyrsta skrefið í að rétta hag fólks og forða því frá gjaldþroti.

Helgi (IP-tala skráð) 5.5.2013 kl. 21:47

8 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Umræðan ætti ekki að snúast um hve mikið eða hvar Framsókn og Sjallar ætla að auka útgjöld. Umræðan ætti miklu frekar að snúast um hvar þeir ætla að skera niður velferðakerfið.

Almennt um efnið, þá er bókstaflega hlægilegt að heyra í framsóknarmönnum og Sjöllum.

Hafa þeir ekki frétt af því að það varð hér hrun? Að Ísland varð í raun gjaldþrota 2008.

Ríkiskassinn er enn rekinn með halla.

Bíðum við, svo koma kosningar - og þá ætlar Framsóknarflokkurinn að láta 400 milljarða í húsnæðisskuldir aðallega á SV-Horninu auk þess sem þeir ætla að stórhækka bótakerfið að hluta. Jfnframt sem þeir ætla að afnema verðtryggingu og setja þak á vexti.

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar koma á stórlegum skattaafslætti sem fer beint í húsnæðislán auk þess að lækka skatt á tekjuhá, fyrirtæki og sérstaklega LÍÚ o.s.frv.

Og hvað? Hvar ætla menn að skera niður á móti þessum útgjöldum ú ríkiskassanum? Það verður bara að leggja velferðar og félagslega kerfi niður!

Er útilokað að fá fólk niður á jörðina? Kosningar voru fyrir viku sko.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.5.2013 kl. 22:26

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps. Í stuttu máli þýðir þetta - að náttúrulega verður ekkert gert af þessu sem menn lofuðu. Jú jú, skattar verða lækkaðir á tekjuháa og hækkaðir á tekjulága. Það er bara kunnuglegt frá hægri-öflunum og ekkert óvænt eða merkilegt. Auk þess sem íþyngjandi álögum verður aflétt af LÍÚ og stórfyrirtækjum.

Að öðru leiti verður auðvitað ekkert gert. Það verður eitthvað bla bla og spekúleringar inní framtíðina. Skjóta hrægamma og sona. Slíkur verður stjórnarsáttmálinn.

Svo hefjast menn bara handa um að reyna að komast yfir sem mest eignumhérna og yfirráð yfir sjóðum. Og verður þar farið eftir helmingaskiptareglunni.

Fólk þarf ekkert að láta svona lengur. Kosningarnar eru búnar.

Svo er hitt allt annað mál að, að sjálfsögðu munu áróðursfjölmiðlar framsóknar og sjalla reyna að troða því inní haus innbyggjara að þeir hafi fengið einhver ósköp - og einhverjir munu trúa því eins og gengur.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.5.2013 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband