Farið varlega í að efna loforðin

Tveir flokkar sem lofuðu mest.

Tveir flokkar sem hafa enga lausn í gjaldeyrismálum.

 

Ég vona að þeir slá allsvakalega af loforðunum og noti skynsemina. Lækka skuldir ríkissjóðs og stöðugleiki skal vera markmið númer eitt.

Það er ekkert vit í því að efna loforð og setja þjóðarbúið á hliðina í leiðinni. Enginn greiði gerður fyrir kjósendur.

kv

Sleggjan


mbl.is Í viðræður við Sjálfstæðisflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú skjálfa vinstri menn. (heyrði að Björn Valur hefði hlaupið til fjalla)

En þeir kjósendur sem studdu þessa flokka gleðjast.

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 4.5.2013 kl. 17:50

2 identicon

Ef þýfinu verður ekki skilað innan árs er úti um þessa 2 pólitíkusa og traust almennings og fylgi x-D  hrynur til langframa komi hann í veg fyrir þetta. Á meginlandi Evrópu er búið að viðurkenna að hagkerfinu verður ekki ýtt í gang með meiri niðurskurði. Er betra að mafían fá allt sitt þýfi sem haft var af heimilunum, og búið var til með froðu, og flytji það úr landi? Þetta er ekki skuldalækkun heldur leiðrétting og upptaka þýfis! Samdráttur einkaneyslu sem nú varð alvarlega vart á síðustu mánuðum leiðir til annars hruns!

Hrúturinn (IP-tala skráð) 4.5.2013 kl. 18:17

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Samdráttur einkaneyslu er jákvætt

en já... borga niður ríkisskuldir og auka gjaldeyristekjur eru brýnustu málin

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 4.5.2013 kl. 18:20

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hvaða ,,þýfi"?

Eru menn alveg að tapa sér?

Er búið að draga kylfurnar útúr kústaskápnum og haglarann undan rúminu eða?

Ómar Bjarki Kristjánsson, 4.5.2013 kl. 19:07

5 identicon

Fyrir utan einstaka kverúlanta sem geyma kylfur í kústaskápnum og haglara undir rúmi, veit almúginn upp til hópa að bankarnir  voru ekki bara rændir innan frá heldur fyrst blásnir svo upp að gjaldþrot þeirra eru þrjú af tíu stærstu gjaldþrotum mannkynssögunnar. Miðað við höfðatölu voru þessi gjaldþrot um tvö hundruð sinnum stærri en samanlögð tvö stærstu gjaldþrotin í sögu Bandaríkjanna (Lehman Brothers og Washington Mutual).

Almenningur (IP-tala skráð) 4.5.2013 kl. 21:12

6 identicon

Ég mótmæli því að stöðugur samdráttur sé góður!  Þrjátíu prósenta samdráttur hefur orðið í einkaneyslu frá því árið 2007 sem er mun dýpri samdráttur en eftir kreppuna um aldamótin. Gangi spá Seðlabankans eftir, sem spáir að einkaneysla verði eins næstu þrjú árin, er um gríðarlegt áfall að ræða fyrir efnahagslífið og hagvöxtur verður enginn á fimm ára timabili. Þetta veit hvert húsdýr og er ekki bara jarm út í loftið...

Hrúturinn (IP-tala skráð) 4.5.2013 kl. 21:50

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Burtséð frá því að bankarnir sem reknir voru af Sjöllum og Framsóknarmönnum - sem beisiklí gáfu sjálfum sér banka - voru illa reknir og líkt og óvitar væru að verki og varðandihúsnæðislán sérstaklega spilaði 90% lánaloforð Framsóknar stóra rullu í að skapa vandræði o.s.frv. - Þá hefur það ekkert að gera með krónueignir þessara blessaðra útlendinga.

Skrítið með íslendinga marga, að það er eins og þeim sé ófært sem þjóð að líta í eigin barm. Alltaf skal vera allt rétt og best sem íslendingar og Ísland gerir - en vondir útlendingar eru alltaf hell-bent við að skaða frábærleika þeirra. Þessi útlendingaandúð er gjörsamlega orðin þvílíkt þreytt og útlendingaandúðin eins og sér veldur landinu alveg þvílíka skaðanum.

Þessar kröfur erlendra aðila eru bara það að útlendingar áttu hérna eignir sem þeir settu hingað inn í góðri trú og á heiðarlegan hátt. Allt og sumt. Varðandi eignir erlendra í nýju bönkunum, þá eru þær til komnar vegna þess að þegar Nýju bankarnir voru endurreistir þá voru eignir OFTEKNAR. Ísland gat annaðhvort borgað fyrir þær eða veitt kröfuhöfum eignarhlut í nýju bönkunum.

Nú, þar sem Ísland var í raun gjaldþrota 2008 þá féllust útlendingar á að eignast hlut í bönkunum og sjá til hvernig mál þróuðust. Og ber að þakka útlendingum fyrir þá góðmennsku.

Held aðíslendingar margir ættu að hlusta á ræðu Ólafs Thors 1962 varðandi þjóðrembing íslendinga og vitleysisgang gagnvart öllu því sem erlent er:

http://www.borgarskjalasafn.is/Portaldata/21/Resources/Oli_Thors/Hljodfaelar/13_Track_13.mp3

Ómar Bjarki Kristjánsson, 4.5.2013 kl. 23:56

8 identicon

"Í útreiðartúr í júlí 1923 til Haffjarðarár hrasaði hesturinn sem Ólafur reið og hlaut hann höfuðhögg. Hann var snöggur upp á lappirnar á ný en þegar komið var á áfangastað lagðist hann til hvílu og svaf þungan svefn. Er hann vaknaði mundi hann ekki hvað hann hét..."

Almenningur (IP-tala skráð) 5.5.2013 kl. 00:10

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Við getum tekið dæmi. Icesaveskuldin.

Að það er eins og það sé gjörsamlega ógerningur fyrir nánast alla ísendinga að skilja, að sú skuld á sér siðferðilega hlið.

Lagatæknilegur orðhengilsháttur er í raun ekki boðlegur í svo ljótu máli.

Í málinu þarf að horfa til hvernig skuldin varð til og jafnframt til annarra athafna íslands málinu viðvikjandi.

Þa blasir við sú ognarstaðreynd, að siðferðilega bar og ber Íslandi að axla ábyrgð sem ríki.

Enda var málið svo ljótt ð samið var um efnið á bakvið tjöldin 2009/2010. Skuldin verður alltaf borguð uppí topp plús alag.

Nú, burstséð frá því, þá töldu innbyggjarar réttast að leggja útí þvarg og þras um bókstaflega ekki neitt í þeim tilgangi að sanna í raun siðleysi sitt sem þjóðar og landsins sem vanskilaríkis - og telja sig hafa ,,grætt" á því!

Þeim er algjörlega óskiljanlegt og eru að því er virðist ófærir um að setja málið í heildarsamhengi.

Heildarsamhengið er ekki síst að B&H eru einar helstu vina og viðskiptaþjóðir Íslands. Við þessi lönd á Ísland ótal vina- og viðskiptasamhengi á alla kannta.

Ok. þegar Ísland sýnir slíkan siðferðisskort í einu afmörkuðu korni slíkrasamskipta - að þá er eins og menn skilji ekki að það getur vel haft slæm áhrif á þúsundir annara samskiptakorna Íslendingar eins og bara skilja ekki slíkt.

Almennt erlendis þykir hegðan Íslands í málinu fáránleg og óviðeigandi.

Þessu viðvíkjandi eru umhugsunarverð ummæli Ólafs Thors 1962. þ.e.a.s. að hann minnist á að hann sjái ekki fyrir sér að Ísland eða íslendingar sem þjóð geti sýnt af sér réttlætiskennd útfrá siðferðilegum sjónarmiðum eingöngu - líkt og danir gerðu í handritamálinu. Þetta er mjög umhugsunarverð ábending hjá Ólafi. Það kemur líka svo vel fram þarna hve Ólafur var góður ræðumaður eða í raun góður sögumaður.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.5.2013 kl. 00:58

10 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

@ Hrúturinn

Auðvitað er neikvætt að einkaneysla dregs saman.

En það eru til tvær útgáfur af einkaneyslu

-Einkaneysla sem er innistæða fyrir.

-Einkaneysla sem er tekin að láni.

Ég segi já við fyrri útgáfunni. 

Ég segi nei við seinni útgáfunni.

Hvað með þig Hrútur?

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 5.5.2013 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband