Framboð og eftirspurn

Karladeildin er vinsælli. Meiri peningar í spilunum. Ekkert flóknara.

Ef kvennadeildin væri vinsælli fengu dómarar hærri laun í þeim leikjum.

 

Hljómsveit sem er vinsælli fær betur borgað en ný óþekkt hljómsveit. Þó þeir spili með sömu hljóðfærunum.

 

Miðað við "lækin" á þessari frétt er fólk að setja þetta sem dæmi um jafnréttisbrestinn sem á ekki við rök að styðjast. Þið sem þykja þetta ósanngjarnt. Fjölmennið á kvennaleikina og bætið úr þessu sjálf.

kv

Sleggjan


mbl.is Meira greitt fyrir að dæma karlaleik en kvennaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Þið sem þykja þetta ósanngjarnt..." Lærðu íslensku. Það er "ykkur sem þykir".

Dæmið þitt um vinsælu og óvinsælu hljómsveitina "meikar ekki alveg sens" eins og maður segir á ensku. Það ætti kannski við ef verið væri að ræða um laun leikmanna. Ég hef hins vegar ekki orðið var við það að dómarar séu neitt sérstaklega vinsælir. Þetta er svipað og að segja að rótarar óvinsælu hljómsveitarinnar ættu að fá lægri laun en rótarar vinsælu hljómsveitarinnar.

Framboð og eftirspurn kemur málinu ekkert við. Dómaraframboðið er það sama og leikirnar álíka margir svo eftirspurnin er það líka.

Ekki drepast úr heimsku.

Alex (IP-tala skráð) 4.5.2013 kl. 16:36

2 identicon

Heldur þú að rótari hjá Í svörtum fötum sé á sömu launum og rótari Coldplay?

Til viðbótar:

Komdu með þína skýringu á þessum launamun, sjáum hversu gáfaður þú ert.

kv

sleggjan (IP-tala skráð) 4.5.2013 kl. 17:36

3 identicon

Tek undir þetta. Frekar augljóst ef maður spàir í því.

Viðar f. (IP-tala skráð) 5.5.2013 kl. 01:04

4 identicon

Ég tók kannski fullhart til orða og skammast mín dálítið að sjá hve mikið orð mín minna á DV-fólkið úr Áramótaskaupinu. Skýringin á þessum launamun er náttúrulega augljós. Stjórn KSÍ ákveður launin og þar með stuðlar hún að muninum. Ef þú ert að biðja mig um að réttlæta muninn þá get ég það ekki.

Alex (IP-tala skráð) 11.5.2013 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband