Miðvikudagur, 24. apríl 2013
Árni
"Í kosningalögum segir að enginn teljist hafa óflekkað mannorð sem er sekur eftir dóm um verk sem er svívirðilegt að almenningsáliti nema hann hafi fengið uppreist æru."
Hann lét Ólaf forseta náða sig.
Vel gert.
Og nú eru báðir þessir menn í guðatölu.
sýnir inræti Íslendinga meira en margt annað
hvells
![]() |
Óflekkað mannorð þarf á þing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Fer Steingrímur þá ekki út um gluggann fyrir að reyna að koma 320 milljörðum á þjóðina?
Óskar Guðmundsson, 24.4.2013 kl. 18:54
Ólafur Ragnar kom hvergi nærri náðun Árna Johnsen, það voru handhafar forsetavalds sem það gerðu, Davíð & Co.
Guðjón Sigþór Jensson, 24.4.2013 kl. 19:01
Var Árni ekki náðaður af handhafa forsetavalds meðan Ólafur var á ferðalagi?
Seiken (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 19:02
Það voru handhafar forsetavalds þau Geir Haarde, forsætisráðherra, Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, og Gunnlaugur Claessen forseti Hæstaréttar sem þvættu mannorð Árna í fjarveru forsetans. Frekar skítlegt!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 24.4.2013 kl. 19:27
Jú það er rétt hjá ykkur strákar... hann var náðaður af forsetavaldinu ekki forsetanum sjálfum
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 24.4.2013 kl. 20:42
Jóhanna braut stjórnsýslulög og jafnréttislög í sinni ráðherratíð. Hún sat sem fastast.
Svandís Svavarsdóttir var sömuleiðis dæmd af hæstarétti fyrir að brjóta lög í sinni ráðherratíð. Jóhanna steig fram og lýsti yfir stuðningi við ákvörðun Svandísar. Þær sátu áfram sem fastast.
http://www.visir.is/forsaetisradherra--svandis-a-ekki-ad-segja-af-ser/article/2011803114309
Njáll (IP-tala skráð) 24.4.2013 kl. 20:59
Árni Johnsen var ekki náðaður af einum né neinum. Hann fékk uppreisn æru sinnar, sem er ekki það sama og náðun. Náðun felur það í sér að viðkomandi þarf ekki að taka út þá refsingu sem honum hefur verið dæmd. Uppreisn æru (sem lögin kalla svo forskrúfað 'uppreist æru') felur hins vegar það í sér, að þrátt fyrir dóm sem viðkomandi hefur tekið út, skuli æra hans teljast óflekkuð.
Magnús Óskar Ingvarsson, 25.4.2013 kl. 00:01
Hæ, var tvíburabróðir mumma í mótorsmyðjunni í sjónvarpinu fyrir hægri græna? Týr Þórarinnsson ansi voru þeir líkir.
Bernharð Hjaltalín, 25.4.2013 kl. 04:53
Hárrétt hjá Magnúsi.
Náðun og uprreisn æru er tveir sitthvor hluturinn.
kv
sl
sleggjan (IP-tala skráð) 25.4.2013 kl. 06:08
LOL..
Bullið alltaf hjá hvells...
Hvells ætti ná að kynna sér málin áður en hann bullar. Ekki fyrst og ekki síðasta sinn sem hann fer út og suður með staðreyndir.
Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 25.4.2013 kl. 07:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.