Mánudagur, 22. apríl 2013
Þeir sem skrifa ekki undir eru á móti lýðræðinu
Það liggur í augum uppi að þeir sem vilja ekki leggja nafn sitt við þetta eru á móti lýðræðinu.
Það kemur skýrt fram að undirskrift merkir ekki að viðkomandi vilji inn í ESB.
Undirskrift þýðir einfaldlega að þeir virða þjóðina og hennar álit.
NEI-sinnar ættu ekki að óttast neitt. Þeir hafa haldið því margoft fram að það sé ekki meirihluti fyrir ESB aðild meðal þjóðarinnar. Þeir ættu að fagna þessu framtaki.
kv
Sleggjan
![]() |
Vilja ljúka viðræðunum við ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Össurarumsóknin : þingsályktunartillagan og meðferð hennar var stjórnarskrárandstæð (gegn 17. og 19. grein) og brot gegn landráðalögum (86. gr. laga nr.19/1940) og er að mínu mati efni í landsdóm. Tillagan var þvert gegn þeim eindregna vilja þjóðarinnar að standa utan þessa Evrópusambands, sem sýnt hefur sig í ÖLLUM skoðanakönnunum frá því að sótt var um upptöku í þann miður geðslega selskap, og ekkert umboð kjósenda var á bak við hinn nauma meirihluta þingmanna, sem samþykkti þetta, heldur var þar verið að kúga vissa þingmenn til hlýðni -- enn eitt stjórnarskrárbrotið (gegn 48. greininni). Þá er stuðningur stjórnarsinna við 230 milljóna áróðursapparatið Evrópu[sambands]stofu brot á 88. gr. landráðalaganna.
Þegar Jóhönnustjórnin hafði opið tækifæri til að fá umboð kjósenda til umsóknarinnar um inntöku Íslands í Evrópusambandið, þá þorði hún ekki að fara þá leið, vitandi það, að meirihluti þjóðarinnar hafði ekki á því áhuga og hefur aldrei haft síðan!
Jón Valur Jensson, 22.4.2013 kl. 20:33
Þetta eru nú einhver mestu öfugmæli sem ég hef lesið lengi, en við öðru ekki að búast frá Sleggjunni, því miður. Þú átt ekki að láta svona vitleysu frá þér. En það er kannski ástæðan fyrir því að þú skrifar undir dulnefni.
Ég tek hins vegar heilshugar undir með vini mínum Jóni Val, hann hefur lög að mæla.
Tómas Ibsen Halldórsson, 22.4.2013 kl. 20:59
Ertu Tómas á móti að þjóðin ráði?
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 22.4.2013 kl. 21:39
Þá hlýtur öllum sem vilja að vera frjálst að skrifa undir þetta:
http://www.skynsemi.is/
Guðmundur Ásgeirsson, 22.4.2013 kl. 21:41
Við hvað eruð þið já-sinnar hræddir...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 22.4.2013 kl. 22:34
guðmundur ásgeirsson - auðvitað eru öllum frjálst að skifa á skynsemi.is - ég get vel ímyndað mér að margir skrifi á báða listana
Rafn Guðmundsson, 23.4.2013 kl. 00:01
Það var nú ekki mikið pælt í því þegar það var byjað á þessari þvælu og svo koma Quislingar eins og þú og heimtið lýðræði núna þegar þetta er allt að renna út í sandinn
Wilfred (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 08:51
Og svo má bæta því við að niðurstaða kosninganna í næstu viku ætii að vera næg vísbending um hvað þjóðin vill gera í þesum málum!
Wilfred (IP-tala skráð) 23.4.2013 kl. 08:54
finnst allt snúast um skuldamál
ekki ESB
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 23.4.2013 kl. 17:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.