Fimmtudagur, 28. mars 2013
Hreint út
Ástæðan fyrir því að Bakki er kominn í gegn er vegna þess að þetta er í kjördæmi Steingríms J.
Ástæðan fyrir því að þetta er kísilver en ekki álver er vegna þess að það hentar pólitískt. Kjósendur VG og þingmenn hafa djöflast svo mikið í álverum að það er ekki pólitískt rétt að styðja álver. Þó að kísilverið MENGAR MEIRA en álverið.
VG menn segja líka að þeir hafa loksins fundið "eitthvað annað". Það er hlægilegt að það skuli menga meira en álver.
Steingrímur hatar Keflvíkinga. Þeir voru með kanann og svo kjósa þeir íhaldið aftur og aftur. Þess vegna er Helguvík ekki komið í gegn.
Stærsta fréttin er þessi gríðarlegi skattaafsláttur sem Steingrímur "you aint seen nothing yet" skattamálaráðherra gefur.
Þetta sannar það sem Sjálfstæðismenn hafa alltaf sagt. Með því að lækka álögur á fyrirtæki eykst fjárfesting og ativnna í landinu. Steingrímur hefur greinilega áttað sig á þessu og ætlar að lækka skatta á fyrirtæki bara í sínu kjördæmi.. Hann vill meiri atvinnu þar. Ekki annarstaðar.
hvells
![]() |
Frumvörp um Bakka lögfest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.