Fimmtudagur, 28. mars 2013
X-?
Framsóknarflokkurinn er á mikilli siglingu. Nú hafa þrjár kannanir sýnt að Framsóknarflokkurinn er að bæta gríðarlega við sig. Þetta byrjaði allt með Icesave. Þeir veðjuðu á rétta niðurstöðu.
Ef dómurinn hefði fariið á annan hátt þá hefði XB fylgið farið í hina áttina þ.e minnkað. Jafnvel þurkast út. Íslendingar eru með gullfiskaminni þannig að ég ætla að minna ykkur á að Framsóknarflokkurinn þurrkaðist út í Reykjavík í borginni og Sigmundur Davíð neyddist til þess að fara í annað kjördæmi útá landsbyggðinni vegna þess að hann þorði ekki a taka slaginn í Reykjavík.
Eftir Icesave dóminn eru breyttir tímar. Það er í sjálfu sér mjög sorglegt. Að flokkur fær atkvæði útaf hann veðjaði rétt á dóm út í Evrópu.
Sjálfstæðisflokkurinn greiddi atkvæði með Icesave III og margir Sjálfsstæðismenn eru mjög ósáttir við það.
Þegar að öllu er á botni hvolft þá ertu að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef þú vilt lækka skatta, fá skilvirka stjórnsýslu og efla atvinnulífið.
Framsóknarflokkurinn vill ekki endilega lækka skatta, þeir vilja miklar ríkistilfærslur t.d í landbúnaðarkerfinu. XB vill hafa puttana í atvinnulífinu og eru líklegir til þess að mynda vinstri stjórn.
hvells
![]() |
Framsókn með 28,5% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:41 | Facebook
Athugasemdir
Píratar...?
Haraldur Rafn Ingvason, 28.3.2013 kl. 11:10
Af einhverjum flokki sem er nýr þá mundi ég spá Pírötum eða XL inn.
En það verður erfitt.
5% múrinn sýnir enga miskunn.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 28.3.2013 kl. 11:28
Faríse-i í stólinn sté
stal svo öllu af xD.
Þó skuldafenið klofi í kné,
kristnar sálir kjósa – xB!
Leirbárður (IP-tala skráð) 28.3.2013 kl. 12:51
Fylgi sjalla var komið á ágætis ról fram að landsfundi.
Svo kemur landsfundurinn, og þar eru lagðar fram stefnur sem eru hvorki fugl né fiskur, og aðgerðarleysi í skuldamálum heimilanna staðfest enn og aftur.
Til að kóróna ruglið er svvo Bjarni Ben kosinn aftur sem formaður, þótt hvert mannsbarn viti það að hann hefur engan raunverulegan stuðning innan flokksins nema hjá fámennri klíku sem öllu ræður.
Það er síðan ekki fyrr en eftir þennan landsfund sem fylgið fer að hrynja af flokknum.
Hefur sáralítið með Icesave að gera, heldur miklu frekar það að flokkurinn skilar auðu í öllum helstu málum, hefur engar tillögur í gjaldmiðilsmálum, engar tillögur í afnámi hafta, engar tillögur um skuldamál heimila og fyrirtækja, engar tillögur í skuldamálum ríkisisn, engar tillögur í atvinnumálum, engar tillögur í nokkrum sköpuðum hlut nema létta sköttum á LÍÚ.
Hvernig á flokkurinn að geta annað en skroppið saman?
Sigurður (IP-tala skráð) 28.3.2013 kl. 15:21
Sjálfstæðismenn eru með mjög góða skattatefnu, vilja einfalda og lækka skattakerfið, fá plús fyrir það.
Þeir hafa þó ekki sýnt neinn vilja að afnema landbúnaðartilfærsluna.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 28.3.2013 kl. 15:51
Framsóknarflokkurinn hefur endurnýjað sig. Íhaldið ekki. Sjálfsstæðismenn eru svo meðalgreindir að þeir skilja ekki að ástæða fylgishrunsins er formennska Engeyjarprinsins. Íhaldið gat spilað rétt en spilaði rangt. Deal with it!
Sleipur (IP-tala skráð) 29.3.2013 kl. 03:34
Sleipur ekki það sleipur þegar kemur að rökum.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 29.3.2013 kl. 08:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.