Svikaflokkarnir XS og VG mega þurrkast út

XS og VG lofuðu nýrri stjórnarskrá.

Kom fram í stjórnarsáttmálanum nota bene. Ekki bara í stefnuskrá annars flokksins.

Héldu þjóðþing.

Héldu stjórnlagaþingskosningu.

Héldu þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin sagði já takk við þessari nýju (2/3 atkvæða).

Með þjóðaratkvæðisgreiðslu eiga þingmenn ekkert að vera vasast í neinu meira, bara samþykkja. Enda vinna þingmenn fyrir þjóðina.

En komið hefur í ljós að hagsmunaöflin eru sterkari en þjóðin.

Stjórandstaðan var ekkert að hjálpa til heldur!

 

Nú er verið að tala um nýju stjórnarskránna í þátíð. Tækifærið sem var.

Persónulega getur maður lítið gert annað en að kjósa Lýðræðisvaktina sem er stofnuð utan um nýju stjórnarskránna og kjósa aldrei flokkana sem börðust á móti henni.

Hvet landsmenn að fylgja mér í þeirri línu.

kv

Sleggjan


mbl.is Klúður og sérstakt afrek
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Aðeins 38,1 prósent atkvæðabærra þingmanna greiddu atkvæði með tillögu Árna Páls Árnasonar, Guðmundar Steingrímssonar og Katrínar Jakobsdóttur á Alþingi í kvöld. Tillagan snýr að því að tveir þriðju hluti þingmanna og fjörutíu prósent landsmanna þurfi að samþykka breytingar á stjórnarskrá Íslands. Fjöldi þeirra sem samþykktu tillöguna voru hvorki fjörutíu prósent landsmanna né tveir þriðju hluti þingmanna, því 24 þingmenn af 63 samþykktu hana. 39 þingmenn voru því ýmist á móti eða tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni.

Mikið ber á því að fólk greini frá ósætti sínu varðandi atkvæðagreiðsluna ýmist á Facebook eða á bloggsíðum.

„RIP nýja stjórnaskráin okkar - skrifuð af þjóðinni fyrir þjóðina,“ skrifar Birgitta Jónsdóttir þingkona Hreyfingarinnar.

“Svikin eru fullkomin: VG og Samfylkingin búin að drepa stjórnarskrána, fyrir Sjalla og Framsókn sem horfa glottandi á hina algeru niðurlægingu meirihlutans sem þeir hafa fengið til að gera nákvæmlega það sem þeir vildu. Sjallar og Framsókn þurftu ekki einu sinni sjálfir að taka þátt í aftökunni; þeir sátu hjá í atkvæðagreiðslunni og horfðu bara á þegar stjórnarliðar drápu með köldu blóði það sem margir héldu að væri þeirra eigið barn …” segja þeir Illugi Jökulsson, stjórnlagaráðsmaður og Einar Steingrímsson og bæta Bjartri framtíð við upptalninguna.

Daði Ingólfsson telur upp þá hluti sem hann segir að almenningur hafi verið rændur og segir meðal annars: „Þú varst áðan rænd/ur um nokkra tugi milljarða á ári (sem hefðu hugsanlega getað uppfyllt kosningaloforð Framsóknarflokksins), sem hefði komið í auðlindagjald. 

Þú varst áðan rænd/ur rétti þínum að sjá gögn sem voru greidd með þínum peningum um hvernig á að eyða restinni af peningunum þínum

Þú varst áðan rænd/ur um að fá að kjósa persónur í stað flokka

Þú varst áðan rænd/ur jöfnu vægi atkvæða

Þú varst áðan rænd/ur réttinum til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu“

Hef fylgst með pólítik síðan 2002. Þetta er það sorglegasta sem ég hef upplifað !

kv

Sleggjan

Sleggjan og Hvellurinn, 28.3.2013 kl. 01:02

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er mjög sorglegt.

Það verður mjög athyglisvert hvernig Lýðræðisvaktin mun ganga eftir þetta.

Þeir munu kroppa fyrst og fremst af XS. Og eitthvað af XB vegna þess að þeir hafa lagt mikla áherslu á nýja stjórnarskrá þó að nýu afturhaldssinnar með Sigmund Davíð í fararbroti.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 28.3.2013 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband