Mánudagur, 25. mars 2013
Hækkandi leiga og íbúðaverð
Einsog ég sagði í nov 2012.
http://thruman.blog.is/blog/sleggjuhvellurinn/entry/1268982/
"Góð fjárfesting núna er að kaupa íbúð misvæðis og leiga hana út eða einfaldlega búi í henni ef þú átt ekki nú þegar íbúð"
Nú er komið í ljós að Gamma er að kaupa íbúðir miðsvæðið og leiga þær út.
Ég hafði rétt fyrir mér að þessu leyti.
Eins og ávallt.
Hef aldrei haft rangt fyrir mér hingað til.
hvells
![]() |
Veltan tæpir fjórir milljarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Facebook
Athugasemdir
Sæll.
Gamma hefur rangt fyrir sér í þessu, vonandi fatta stjórnmálamenn ekki að fjármálastofnanir liggja á þúsundum íbúða og mörgum þeirra tómum.
Einhverra hluta vegna líðst fjármálastofnunum að halda þessum íbúðum af markaði og krukka þannig í hann. Íbúðaverð er of hátt og halda fjármálastofnanir því uppi enda liggja þær á miklum fjölda tómra íbúða. Ef einhver döngun væri í þingmönnum myndu þeir skylda fjármálastofnanir til að setja allar eignir sem þær leysa til sín á markað.
Sennilega skilja þeir ekki vandann eða þá að þeim er alveg sama um almenning. Ég veit ekki hvort er verra?
Helgi (IP-tala skráð) 25.3.2013 kl. 15:32
Helgi, þú hefur verið boðsberi frjálsra viðskipta, lágra skatta, og að stjórnmálamenn skipti sér ekki að.
En vilt samt að þingmenn skipi fjármálastofnunum að gera ákveðna hluti. Frekar mikil tvöfeldni í gangi.
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 25.3.2013 kl. 20:45
@2: Ég vil að fjármálastofnanir komist ekki upp með að halda húsnæðisverði uppi með því að halda eignum af markaði.
Af hverju eru fjármálastofnanir ekki sekar um markaðsmisnotkun? Þær eru að takmarka framboð og fyrir það blæðir almenningi. Ég veit af hverju þær eru að þessu en það er önnur saga. Ég vil að markaðurinn ráði og í því er ég sjálfum mér fullkomlega samkvæmur.
Hver heldur þú svo að borgi fyrir allar þessar tómu íbúðir sem fjármálastofnanir eiga? Þó þú sért ekki í viðskiptum við íbúðalánasjóð borgar þú samt þar sem þú ert sennilega skattgreiðandi. Ertu ánægður að borga fyrir allar þessar tómu íbúðir? Heldur þú að ekkert kosti að reka tómar íbúðir?
Helgi (IP-tala skráð) 25.3.2013 kl. 21:33
"Allar íbúðir Íbúðalánasjóðs sem eru í leiguhæfu ástandi eru í útleigu og er það misskilningur að sjóðurinn liggi á leiguhæfum eignum sem hann leigi ekki út. "
http://www.vb.is/frettir/82287/
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 25.3.2013 kl. 22:09
Sæll.
http://www.vb.is/frettir/71212/
http://www.frettatiminn.is/frettir/borgin_komi_alvoru_leigumarkadi_a_fot
Þetta hljómar eins og yfirklór hjá ÍBL
Helgi (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 06:51
@4: Svo hefur fólk nú flutt af landi eins og um íþrótt sé að ræða þannig að það segir sig þá sjálft að íbúðir hljóta að standa auðar ef fleira fólk flytur af landi brott en til landsins.
Svo er nú fréttin sem þú vitnar í sögð vegna eigna ÍBL á Selfossi - ekki almennt! Þú virðist því hafa misskilið efni fréttarinnar - viljandi eða óviljandi svo þú getir hreykt þér af því að þú hafir aldrei rangt fyrir þér. Ég sá frétt á annarri hvorri sjónvarpsstöðinni fyrir rúmi ári síðan þar sem kom fram að ÍBL ætti hundruðir auðra íbúða.
Vel má vera að Gamma hagnist á þessari fjárfestingu til skemmri tíma en vart til lengri tíma.
Helgi (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 08:25
Það var orðrómur um íbúðir á Selfossi. En staðreyndin er samt sú að allar íbúðir sem eru í leiguhæfu ástandi eru í útleigu.
En það breytir því ekki að ef Gamma langar að kaupa íbúðir eða fjármálastofnanir vilja eiga íbúðir þá ætti þingmenn ekki að skipta sér af því.
Þegar stjórnmálamenn krukka í markaðinum þá gera þeir illt verra.
Ef fjármálastofnanir dumpa öllum íbúðunum á markað á morgun þá verður offramboð og húsnæðisverð hrynur. Eigið fé almenning í sínum íbúðum mun þá minnka gríðarlega jafnvel hverfa.
Veit ekki hvort það sé til hagsbótar fyrir almenning.
Þó að þetta er vissulega gott fyrri þá sem ætla að kaupa sér fyrstu íbúð.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2013 kl. 09:12
@7: Það er ekki staðreynd að allar leiguhæfar íbúðir séu í útleigu. Í þessari frétt er bara verið að tala um Selfoss. Ef þetta gilti um allt landið af hverju er þá ÍBL í reynd gjaldþrota? Þeir hafa auðvitað mun minni tekjur af sínum lánum en upphaflega var áformað, þess vegna eru þeir í fjárhagsvandræðum.
Svo er önnur spurning: Af hverju ætti gjaldþrota ÍBL að borga fyrir þessar viðgerðir? Er til peningur til þess? Þessar viðgerðir hlaupa sjálfsagt á milljónum per blokk.
Ég er ekki að mæla fyrir því að þingmenn skipti sér að því sem Gamma gerir, Gamma gerir það sem þeir telja vera rétt og enginn á að skipta sér að því.
Það eina sem ég vil er að verðmyndun eigi sér stað á óbjöguðum markaði, framboð og eftirspurn eiga að ráða verði. Í dag er því ekki til að dreifa. Í dag líðst fjármálastofnunum að krukka í markaðinn. Ég er heldur ekki að setja út á það sem Gamma gerir.
Hægt væri að setja lög þar sem fjármálastofnunum er gert skylt að setja allar sínar eignir á markað á innan við t.d. 15 mánuðum.
Ef húsnæðisverð lækkar eiga sjálfsagt margir rétt á leiðréttingu og þurfa þá að borga af lægri höfuðstól. Slíkt er almenningi í hag, fólk hefur þá meira á milli handanna. Þá þyrftu fjármálastofnanir jafnframt að bera ábyrgð á eigin útlánastefnu en þær hafa hingað til alveg sloppið við það á kostnað almennings.
Helgi (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 09:53
@3
Þú berst fyrir algjörlega frjálsum markaði. En um leið og hann er vondur við þig þá viltu að þingmenn bregðist við.
Annaðhvort vilt þú frjálsan markað með öllum þeim mögulegu markaðsmisnotkun og manipulations... eða þú vilt markað með reglugerðum.
Það er kominn tími á að segja af eða á.
kv
sleggjan
Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2013 kl. 11:09
@9: Hér er engin mótsögn á ferðinni. Þessi markaður er ekki vondur við mig, þú gefur þér það.
Ég vil ekki að neinn stundi markaðsmisnotkun. Ég vil frjálsan markað, ekki markað þar sem einhver aðili getur haft eða leyfist að hafa óeðlileg áhrif á verðmyndun. Þú vilt það kannski, nú veit ég ekki.
Frjáls markaður þýðir ekki að einhverjir geti krukkað í markaðinn heldur að verðmyndun þar sé frjáls og ráðist eingöngu af framboði og eftirspurn. Því er ekki til að dreifa í dag í nógu ríku mæli. Sérð þú eitthvað sambærilegt í gangi á t.d. bílamarkaði, lyfjamarkaði, kaffimarkaði, íþróttavörumarkaði eða markaði með aðrar vörur?
Svo er auðvitað málið að vegna skorts á samkeppni milli fjármálastofnana geta þær leyft sér að halda þessum eignum af markaði með tilheyrandi kostnaði fyrir sig. Við borgum fyrir allar þessar eignir í eigu fjármálastofnana því samkeppni neyðir þær ekki til að selja. Er það eðlilegt?
Helgi (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 14:34
Þú vilt þá frjálsan markað með reglugerðum. Þetta er bara mjög skýrt svar frá þér Helgi og ég þakka þér fyrir það.
Reglugerðir geta verið þá lög um markaðsmisnotkun, bann við samráði stórra aðila á markaði.
Lög sem taka á "krukkun" í markaði, vera á varðbergi gagnvart fákeppni.
kv
Sleggjan
Sleggjan (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 15:41
@11: Ég vil ekki þessar reglugerðir sem þú nefnir. Hvernig á að fylgjast með þessu? Eftirlit með markaðnum kallar þá á íþyngjandi opinber batterí sem eru í reynd alveg gagnslaus eins og Seðlabankinn og FME voru á árunum fyrir hrun og eru enn. SÍ og FME á að leggja niður (alveg eins og mannvirkjastofnun sem þú nefndir eitthvert skiptið). Markaðseftirlitsstofnanir eru óþarfar ef almennileg samkeppni ríkir. Hérlendis þarf að opna markaði í ríkari mæli, sá flokkur sem gerði það færði heimilum landsins einhverja bestu kjarabót sem til væri.
Reglur þurfa að vera eins fáar og eins skýrar og kostur er. Markaðurinn virkar ef honum er leyft að virka.
Fjármálastofnunum á að vera skylt að setja allar eignir sem þær leysa til sín á markað. Ef slík lög væru í gildi væru fjármálastofnanir án efa mun ragari við að leysa til sín fasteignir og væru viljugri að semja við eiganda um eitthvað sem virkaði fyrir báða. Fjármálastofnanir hafa að verulegu leyti sloppið við að bera ábyrgð á eigin útlánastefnu.
Helgi (IP-tala skráð) 26.3.2013 kl. 18:44
"Ef einhver döngun væri í þingmönnum myndu þeir skylda fjármálastofnanir til að setja allar eignir sem þær leysa til sín á markað."
Hvernig viltu útfæra þetta?
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2013 kl. 18:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.