Sunnudagur, 24. mars 2013
Kroppar af XS og XB
Þetta framboð mun klárlega kroppa fylgi af XS og XB.
Eins og allir vita (vonandi) þá var það skilyrði fyrir stuðning XB við ríkisstjórn XS og VG var að útbúin skal ný stjórnarskrá og stjórnlagaþing.
XB hefur nú barist gegn þeirri tillögu og svikið kjósendur. XS hefur tekið U beygju í málinu að mati margra en sumir sjá að þetta var eina leiðin til þess að bjarga málinu.
Lýðræðisvaktin mun taka fylgi af óánægðum XS og XB mönnum sem héldu að þeirra flokkur myndi berjast sterkara stjórnarskrá.
hvells
![]() |
Lýður leiðir Lýðræðisvaktina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:44 | Facebook
Athugasemdir
Kroppar langmest af XS eftir svikin við þjóðina sem sagði sinn skýra vilja í þjóðaratkvæði.
sleggjan (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 18:19
Ég ætla að kjósa Hægri græna.
Það er besti kosturinn í dag......
Jóhanna (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 18:32
Meirihluta fólks er einfaldlega skítsama um þessa blessuðu stjórnarskrá og það mun sýna sig í fylgi þessarar lýðræðisvaktar tel ég
gunso (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 19:10
Og það var enginn skýr þjóðarvilji, spurningarnar voru orðaðar á alltof almennan hátt og stuðningur við ríkisstjórnina til að klára málið hefði mælst hærri meðal kjósenda áður en málið fór í ógöngur ef fólki væri ekki nákvæmlega sama um þetta
gæluverkefni í stað þess að takast á við raunveruleg vandamál
gunso (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 19:11
Þetta mun vonandi aðeins taka fylgi frá Samfylkingunni eins og flest þessi nýju framboð.
Þetta er nefnilega allt saman sami slepjugi Samfylkingar grauturinn.
Það sem að þeir reyna nú að gera er að útdeila þessum sama glundroðans Samfylkingar graut á fleiri grautardiska í þeirri von að einhverjir fleiri glepjist til að smakka.
Þetta hefur allt saman sömu óheilinda stefnuna þar sem leynt og ljóst er með öllum ráðum reynt að glepja þjóðina undir EvrópuSovétSambandið.
Þetta mun því allt teljast með á samstæðureikningi ESB trúboðsins og Samfylkingarinnar.
Kjósendum ber því alveg sérstaklega að varast þennan ólistuga glundroða graut þeirra, þó á nýjum grautardiskum sé.
Gunnlaugur I., 24.3.2013 kl. 19:32
2/3 þjóðarinnar sagði já takk við nýrri stjórnarskrá. Þar við situr. Ég fékk hana inn í bréfalúgunna hjá mér nokkrum dögum fyrir kjördag eins og flestir Íslendingar og leist bara vel á.
Það þarf mikinn viljastyrk að misskilja spurningu eins og jafnt vægi atkvæða.
Ég spái Lýðræðisvaktinni ágætis fylgi. 2-3 þingmenn.
kv
sleggjan (IP-tala skráð) 24.3.2013 kl. 20:08
Gunnlaugur
Getur þú ekki opnað á þér kjaftinn án þess að nefna ESB?
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 24.3.2013 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.