Nei-Sinnar sáttir en samt soldið ringlaðir

Það er jákvæð fylgni milli þeirra sem vilja ekki í ESB og sem eru á móti verðtryggingunni.

 Þá eru þeir í ákveðinni tilvistarkreppu.

 

Þeir reiða sig á ESB lög þegar talað er um ólögmæti verðtryggingarinnar. Hrópa húrra yfir álitum frá ESB (samanber þessi frétt). En úthúða samt í leiðinni ESB þegar talað er um aðild.

Það væri ekkert dómsmál í gangi ef við værum ekki í EES. Við fengum nýju lögin faxaðar beint frá Brussel og sögðum já og amen. Nei-Sinnar auðvitað sáttir við það því þeir eru nú með dómsmál í höndunum sambandi við verðtryggingu.

 

Það er örugglega erfitt að vera með þessa complexa. Tala á móti sjálfum sér trekk í trekk. Ég samhryggist Nei-Sinnum.

kv

Sleggjan


mbl.is Krefjast fundar um verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guðlaugur og Pétur vilja ekki í ESB. Hvað hræðast þeir?

Almenningur (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 13:22

2 identicon

Gylfi Arnbjörnsson og ASÍ eru loks búinn að lýsa því yfir að verðtrygging neytendalána "gangi ekki". Hann vill í ESB. Hvernig rímar þetta við kenningu Sleggjunnar? Er þetta Gylfaginning? 

Hrúturinn (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 13:28

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er ekki endilega fylgni á milli þess að vera ESB andstæðingur og mótfallinn íslenskri verðtryggingu.

Það vill bara svo til að núverandi stjórnvöld hlusta ekki á neitt nema það komi frá Evrópu.   Engan þarf að undra að andstæðingar verðtryggingar nýti sér það.

Kolbrún Hilmars, 16.2.2013 kl. 13:51

4 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Sleggjan

Takk fyrir síðast!

Í stuttu máli.

Góðar fréttir fyrir okkur sem eru lántakendur.

Mjög góðar fréttir fyrir t.d. Íbúðarlánasjóð.

Flottar fréttir fyrir Ríkissjóð.

Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá eru sterkar stofnanir eins og eru í Brussel sérlega neytendavænar og passa uppá að ekki sé gengið á rétt einstaklingsins.

Það er bara sannleikur málsins.

Hvort sem okkur líka betur eða verr vegna ESB þá er best að sjá samninginn þar sem við erum þó kominn á lokametrann í því verkefni.

Meiri hætta er nú að EES samningurinn sé kominn á lokasprett lífdaga og þarfnast endurnýjunar, er ESB tilbúið í það verkefni ?

Ekki viss að ESB hafi áhuga á því að endurnýja EES samninginn að svo komnu máli.

Þá veltir maður fyrir sér hvað tekur þá við ?

Þó svo að við göngum í ESB, þá er alltaf hægt að fara fram á þjóðaratkvæði um úrsögn úr ESB ef það tekur stefnu sem okkur líkar ekki við. 

Orðin já eða nei eiga ekki við varðandi ESB fyrr en samningurinn er kláraður.

Þá fyrst hefur viðkomandi púður í að rökræða þetta í þaula. 

Eru höft og einangrun það sem bíður okkar Íslendinga á komandi árum ?

Verður fróðlegt að fylgjast með, ekki satt.

Þá veltir maður fyrir sér hvaða gerð af Íslending hagnast á þeim ósköpum, líklega ekki hinn almenni launamaður.

Bestu kveðjur.

Jóhannes 

Jóhannes B Pétursson, 16.2.2013 kl. 13:59

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

"

Mjög góðar fréttir fyrir t.d. Íbúðarlánasjóð.

Flottar fréttir fyrir Ríkissjóð.

"

viltu fara nánar í þetta?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.2.2013 kl. 14:08

6 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ruglingurinn liggur fyrst og fremst hjá JÁ sinnum S&H.

Forusta launþega, sem hefur unnið hörðum höndum að inngöngu, í bága við meirihlutavilja launþega landsins, hefur staðið harðast vörð um verðtrygginguna.

Forusta verslunar og þjónustu, sem vissulega mun mest græða á aðild að ESB og vinnur samkvæmt því, hefur staðið harðann vörð um verðtrygginguna.

Forusta SA, sem vinnur að aðilda, vill halda verðtryggingunn.

Og síðast en ekki síst, þá hafa fjármálastofnanir staðið fast á verðtryggingunni, en sá geiri hefur verði hörðustu talsmenn aðildar, enda sá geiri sem mest mun græða á henni, ásamt verslun og þjónustu.

Þeir sem á móti verðtryggingunni eru geta hins vegar hæglega glaðst yfir þessari niðurstöðu, þó hún komi frá ESB. Tilskipunin sem hér gildir um frjálst flæði fjármagns og kom til vegna EES samningsins, tekur yfir þetta einnig. Því er þessi niðurstaða gild fyrir okkur einnig.

Það er því engin frekari ástæða til aðildar að ESB vegna þessa máls. Hins vegar er full ástæða fyrir JÁ sinna að skoða sinn gang. Þeir vilja í sambandið en þó vilja flestir þeirra halda verðtryggingu. Þetta gæti orðið erfitt og nauðsynlegt fyrir þá að gera upp hug sinn.

Kannski þeir eigi heima hjá okkur sem hörðust erum gegn aðild og viljum einnig taka upp og jafnvel afnema EES samninginn?

Gunnar Heiðarsson, 16.2.2013 kl. 14:09

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er ekki rétt að þeir sem vilja í ESB vilja verðtryggingu.

Helstu rökin fyrir ESB er að taka svo upp Evru sem þýðir lægri vextir og ENGIN verðtrygging

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.2.2013 kl. 14:21

8 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Sleggjan og Hvellurinn

Varðandi spurningar um Íbúðarlánasjóð og Ríkissjóð.

1. Íbúðarlánasjóður

a. Íbúðarlánasjóður tekur verðtryggð lán ekki rétt, og endurlánar.

b. Íbúðarlánasjóður hefur ekki leyfi til að greiða upp lán sem þeir tóku. Þó svo að viðskiptavinurinn er búinn að greiða upp lánið hjá þeim og færa sig yfir í sinn viðskiptabanka. t.d. með því að taka óverðtryggð íbúðarlán.

c. Tæknilega er þá Íbúðarlánasjóður í mjög erfiðri stöðu.

2. Ríkissjóður.

a. Er vitað með vissu hvað mörg hundruð milljarða Ríkissjóður þarf að leggja í Íbúðarlánasjóð á komandi árum vegna verðtryggða lána ?

b. Ef vertryggð lán lán þarfnast lagfæringar, mun þá ekki létta á þeim hér sem um ræðir. 

Ef ég gef mér það að verðtryggð lán verði leiðrétt, þá geri ég mér þá skoðun, má vera röng að bæði einstaklingar og stofnanir á borð við Íbúðarlánasjóð fá leiðréttingu.

Það hlítur að létta á Ríkissjóði ekki rétt.

Tekið úr frétt :

http://www.visir.is/bjarni-ben--mistok-gerd-vid-breytingu-a-ibudalanasjodi-2004/article/2012121128742

Ríkisstjórn þess tíma (Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks) hefði breytt fyrirkomulagi sjóðsins árið 2004 þegar skuldabréf sjóðsins voru gerð óuppgreiðanleg en útlán sjóðsins ekki.

Þetta voru hræðileg mistök og erum við ekki búinn að sjá fyrir endan á þessu fyrirbæri.

Bestu kveðjur

Jóhannes 

Jóhannes B Pétursson, 16.2.2013 kl. 14:46

9 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Verðtrygging á neytandalánum er kannski ólögleg. Lán sem ÍLS tekur er ekki flokkað sem neytendalán er það?

ÍBL selur skuldabréf til lífeyrissjóðanna. Þeir verða fyrir miklu tapi.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.2.2013 kl. 14:51

10 Smámynd: Jóhannes B Pétursson

Sæll Sleggjan og Hvellurinn

Já það má vera.

Hvernig sem fer þá verður áhugavert að fylgjast með þessu.

Bestu kveðjur.

Jóhannes

Jóhannes B Pétursson, 16.2.2013 kl. 15:01

11 identicon

Nú þegar valddreifing er að breytast í heiminum og Evrópa að lúta í lægra haldi fyrir samkeppnisaðilum sínum meðan nýr kraftur vaknar meðal þeirra sem hún kúgaði og þeir rísa úr dvala, þá er að verða til nýr heimur og í honum verður meiriháttar skammaryrði, eitthvað sem verður manni til trafala og honum dragbýtur í lífinu að vera "Evrópumaður". Þeir sem tekst að kljúfa sig út úr þessu hugtaki með einhverju móti, á þann hátt að slíta sig frá þeim sem stærstar skuldabyrgðar bera á herðunum gegn mannkyninu, og, í krafti hreinni skjaldar, meiri óræðni og viss óvirkjaðs krafts, að bindast nýjum öflum, eða jafnvel skapa þau, í heimi sem verður vissulega skipaður í stærri heildir en áður, en síst af öllu stjórnað frá Evrópu, þeir mega prísa sig sæla. Það verður ekki svipað lán og gæfa eins og hér áður fyrr í Evrópu það þótti skárra að maðurinn væri "Mári, ekki bara einhver negri", þegar rætt var um, að því er Evrópumönnum þótti greindari, skárri og jafnvel örlítið "mennskari" íbúar hinnar, í þeirra augum, virðulegri Norður Afríku en, þá, auðniðurbrjótanlegri þræla þeirra. Nei, það verður spurning um aukið lán það sem eftir lifir æfi þinnar, aukna gæfu og tækifæri í lífinu, að hafa náð að slíta sig frá þeim sem lenda á botninum og verða látnir borga öðrum þjóðum með öðrum hætti en áður það sem þeir hafa gert þeim. Nú eru þau öfl sem haldið hafa verndarhendi yfir myrkraverkum Evrópu í andarslitunum og innsyglinu verður lyft af ákveðnum fræðasviðum og sagan verður endurskoðuð og sögð með raunverulegri og sanngjarnari hætti en áður, laus við fegrun kvalaranna. Og þá kemur í ljós nýr flötur á mörgum málum sem mannkynið verður seint til að fyrirgefa. Ekki fyrr en upplýsingin hefur fengið fullan framgang og fordómum gagnvart öðrum mönnum vegna þjóðernis og uppruna hefur verið gert það erfitt fyrir að þeir verða nánast upprættir. En þá verður Evrópa heldur ekki lengur til sem slík, og hefur verið blessunarlega leyst upp í aðrar einingar, meira viðeigandi og lýsandi fyrir nýjan veruleika framtíðarinnar.

Norð-Vestur-bandalagið (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 16:57

12 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þú ert semsagt að segja að Evrópa mun drapast niður vegna þess að hún átti nýlenduþjóðir á sínum tíma.

Og vegna skuldsetningar? Nei ESB skuldar ekkert miðað við USA t.d.....

Þetta er algjört blaður

Til þess að þessi ríki sem þú talar um rísi þarf efnahagslegt frelsi. Kína verð ekki ríkt nema efnahagsfrelsið var eflt. Hong kong reis þegar frelsi í viðskiptum var almenn

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.2.2013 kl. 17:45

13 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

hvells:

Helstu rökin fyrir ESB er að taka svo upp Evru sem þýðir lægri vextir og ENGIN verðtrygging

Þú ættir þá kannski að endurskoða það fyrst að bæði framkvæmdastjórn ESB og Evrópuþingið eru núna búin að gefa út álit um að verðtrygging sé leyfileg.

Sjá t.d. hérna í svari frá þingnefnd Evrópuþingsins

As regards the petitioner's claim concerning the general practice of indexation clauses applied by Icelandic banks, it should be noted that Directive 93/13/EEC does not prohibit price indexation clauses as such. In the Annex to the Directive, which provides for an indicative list of clauses which could be considered unfair, it is explicitly stated that price indexation clauses are not unfair per se, provided that they are lawful and that the method by which prices vary is explicitly described (point 2 (d) of the Annex). It is therefore for the competent Icelandic
authorities and courts to assess, on a case by casebasis, whether price indexation clauses applied by banks create a significant imbalance between the bank's and the consumer's interests so as to be unfair in the sense of the Directive.

Verðtrygging per se telst ekki ósanngjarn samningsskilmáli.

Með öðrum þá er löglega hægt að vera með verðtryggingu í ESB.

Þetta er það sem ESB segir sjálft. Við getum þá vonandi hætt að karpa um það og rekið naglann í kistu bulláróðurs um afnám verðtryggingar með ESB aðild.

Það eru íslensk lög um neytendalán sem gilda. Þau voru sett í tilefni af því að við gengum í EES fyrir 20 árum síðan, og eiga því stórafmæli núna í vor. Sú ákvörðun að láta þau gilda um húsnæðislán var hinsvegar tekin árið 2000, og það var ekki sérstaklega gert til að laga sig að reglum ESB heldur var það gert að fyrirmynd nágrannalanda okkar á norðurlöndunum, en þar eru húsnæðislán almennt talin til neytendalána og falla því undir þær reglur sem um þau gilda.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.2.2013 kl. 18:34

14 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Með öðrum orðum þá er löglega hægt að vera með verðtryggingu í ESB.

... átti þetta að vera.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.2.2013 kl. 18:36

15 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Engin lönd veita verðtryggt íbúðarlán í ESB.

Það er staðreynd sem hvorki Guðmundur eða aðrir breyta.

Auk þess er verðbólgan í ESB mjög lítil.

Og vextir líka.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.2.2013 kl. 19:46

16 identicon

Skuld Evrópu er við mannkynið sem heild, ekki nýlendurnar sem slíkar. Leiðandi ríki hennar eru þau hin sömu og brotið hafa gegn mannkyninu og framið glæpi gegn því umfram það sem gildir um nokkurn annan af núverandi aðalleikurum heimsins, enda verður hún bráðum sett í aukahlutverk og aldrei framar treyst. Hún hefur með framgangi sínum brotið æfaforn lögmál sem allir sem brutu þau bíða útþurrkun fyrir vikið. Og ríkjandi löndum ESB mun ekki bjóðast sá kostur sem páfanum bauðst núna um daginn, að ekki væri flett ofan af ákveðnum hlutum varðandi fortíðina ef hann léti sig bara hverfa. Hún þarf að ganga í gegnum fulla afhjúpun og full reikningsskil áður en henni verður gert að yfirgefa svæðið. Þess vegna er mikilvægt að þessi þjóð taki þann valkost sem bíðst að skilgreina sig frá henni, eins og landfræðileg og söguleg staða okkar býður. Það fornkveðna gildir að þeir sem skilgreina sig sjálfir og skapa sín eigin tækifæri, þeirra býður heimurinn, en áhangendum og viðhengjum bíður ekkert nema gleymskan. USA skuldar peninga en, sérstaklega vegna framgangs hennar við að hindra mestu glæpi Evrópu, þá hefur hún unnið sér inn lengri lífdaga. Það hjálpar líka að sú þjóð er í grunninn ákveðin teygjanleg hugmyndafræði sem var á ákveðnum tímapunkti innblásin af ákveðnum krafti, krafti sem Evrópa hefur ekki til að bera, enda meint hugmyndafræði hennar hysmi eitt. Þetta mun hjálpa Bandaríkjunum Norður Ameríku, í annarri mynd, að endurfæðast og verða þjóð talsvert ólík því sem hún er núna. Germanistan og félögum bíða ekki þessi örlög. Þau mun ganga leiðina niður á við, frá hnignun til hnigunnar, þar til hið óhjákvæmilega sem enginn mannlegur máttur fær stöðvað, og er afleiðing þess að brjóta náttúrulögmálin, mun eiga sér stað.

Norð-Vestur bandalagið (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 20:06

17 identicon

Eðlilegra hefði verið að tala um náttúrulög en náttúrulögmál. Sá sem hoppar fram af kletti, hann getur ekki stöðvað þyngdaraflið, getur ekki samið við það, getur ekki skilgreint sig eftir á eða sagt "afsakið að ég skyldi hafa hoppað, tek það til baka". Það er bara ekki hægt. Það hefur aldrei verið hægt. Það verður aldrei hægt. Hin eiginlega Evrópa, kjarni hennar og valdamiðja, hefur undirritað sinn eigin dauðadóm með gjörðum sínum. Það sem lifir eftir af henni mun verða það hið sama og hafði vit á að slíta sig frá henni og tengja sig einhverjum betra og verðugra. Bandaríkin, sem er á leiðinni inn í mangaða umbreytingu, eins konar menningarlega stökkbreytingu sem mun fjarlægja þá upprunanum, eru einmitt, hingað til, besta dæmið um slíkt. Þrátt fyrir sín mörgu vandamál þá eiga þau lífdaga í hönd. Það hið sama gildir um alla aðra sem eru tilbúnir að fara þeirra leið. Ekki með því að ganga þeim sjálfum á hönd, heldur að fylgja fordæmi þeirra sem höfðu vit á að halda vegferðinni áfram, slíta sig frá, og verða eitthvað meira og betra. Það litla góða við ESB er allt misheppnað copy/paste frá þeim hinum sömu og munu ekki ólíklega þurfa að hafa samskonar hemil á þeim í framtíðinni og alla síðustu öld, nema Evrópa gangi sjálfviljug inn í aukahlutverk sitt, mannkyninu til heilla, áður en í óefni stefnir, og mun fyrr en áætlað var.

Norð-Vestur bandalagið (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 20:18

18 identicon

Ég vildi gjarna hafa val um verðtryggð og óverðtryggð lán (algjörlega óháð ESB)þar sem samanburður leiðir í ljós að munur á verðtryggðum og óverðtryggðum vöxtum getur verið á báða vegu.

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 20:58

19 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Sigrún

Þú hefur nú þegar val um verðtryggð og óverðtryggð lán. Kynntu þér það í næsta banka.

Norður vestur og niður

Þú ert með algjörlega steikta sýn á heiminn. Þú lýsir löndunum sem einverskonar leikskólakrökkum þar sem frekasti og stærsti krakkinn á leikskólanum var leiðinlegur við hina og þegar allir voru orðinir stærri þá hefndu þeir litlu sér á þeim stóra.

Svo lengi sem frjáls viðskipti er stundum um heimin og ríkisstjórnin hafa sem minnst afskipti af atvinnulífinu og samfélaginu yfir höfuð þá mun heimurinn vera farsæll.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.2.2013 kl. 22:08

20 identicon

Ég veit að við höfum þegar þetta val Sleggja og Hvellur.

Þess vegna skil ég ekki alveg allar þessar málalengingar ykkar og fleiri vegna ESB eða ekki ESB.

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 23:00

21 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hvað eru vextir á evru láni í evrópu og svo krónuláni hér á Íslandi?

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2013 kl. 00:57

22 identicon

"Svo lengi sem frjáls viðskipti er stundum um heimin og ríkisstjórnin hafa sem minnst afskipti af atvinnulífinu og samfélaginu yfir höfuð þá mun heimurinn vera farsæll. " Vá, hvað þú lifir í einföldum heimi. Sælir eru einfaldir...Frjáls viðskipti redda engu frekar en jólasveinninn. Voru Þjóðverjar leiðinlegir við hina krakkana á leikskólanum, já? Ég held að Nýja Tyrklandi (Þýskalandi) , landinu með lægstu fæðingartíðni heims, sem fyrir löngu missti allt forskot sitt nema á ómerkilegum sviðum yfir til Bandaríkjanna og Asíu, vegna skipulagðrar útrýmingar á helstu hugvitsmönnum og vísindamönnum eigin ríkis, muni farnast sæmilega, en það væri brjálaður maður, heilaþveginn af einhverjum vafasömum sósíalista fræðum sem taka mannlega náttúru ekki með í reikninginn, sem léti sér detta í hug að það skaði þig ekki varanlega ef afi þinn og amma voru í Hitlersæskunni. Heilt samfélag sem lendir í svona nær sér aldrei. Það er bara þannig. Sem betur fer sér náttúran um að urða það sem er ónýtt og þá má vonandi byggja eitthvað betra úr rústunum.

Jóhann (IP-tala skráð) 17.2.2013 kl. 03:13

23 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Frjáls viðskipti redda engu frekar en jólasveinninn

Þú kemur með þetta rugl en engan rökstuðning.

Hvor er meiri ógn af. N kóreu eða S kóreu? Í norði er einræði og komúnistaríki en í suðri er stundum frjáls viðskipti.

Þú drepur ekki viskiptavininnn þinn. Það er bara þannig.

Er Hong Kong eða Singapore hættuleg lönd? Fjálsustu viðskiptalönd í heimi.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2013 kl. 12:36

24 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hvellurinn talar eins og Kína sé ekki auðugt land.

Viðskipaafgangur er ár eftir ár, hagvöxtur stjarnfræðilegur í tugi ára. Kína á skuldir bandaríkjanna.

Þetta er auðvitað gert með handafli, gjaldmiðlinum þeirra er haldið niðri af yfirvöldum svo að útflutingurinn verður mikill.

Hver hefur ekki séð "made in China".

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2013 kl. 13:06

25 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Bæti þó við að landsframleiðsla á mann er ekki há í Kína, og lífskjör almennt ekki heldur.

Þú getur veirð með stórskuldugt ríki með goð lífskjör og öfugt.

kv

sl

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2013 kl. 16:48

26 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hef aldrei sagt að Kína sé ekki lítið land.

En Kína stundar alþjóðleg viðsipti. Og þau eru bara að aukast.

Kína framleiðir gríðarleg verðmæti til USA á hverjum degi.

USA er þeirra helsti kaupandi.

Afhverju ætti Kína að ráðast á USA?

Þeirra helstu kúnna?????

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2013 kl. 20:32

27 identicon

Singapore er slatti alræðissinnað og hættulegt land sem hefur til dæmis dauðarefsingu fyrir innflutning fíkniefna, og við erum að tala um smá skammt af vægum efnum sem gætu þess vegna verið til einkanota. Ég hef aldrei notað eiturlyf og mun aldrei gera en aðhyllist ekki fasisma og fyrirlít því þetta land, sem hefur tekið ófá óviljug burðardýr og vesalings unglinga á glapstigum, ríkisborgara erlendra ríkja af lífi. Alvöru fylgismaður einstaklingsfrelsis lofsyngur ekki land eins og Singapore, nema þá hann viti ekkert um þetta land og ætti aðeins að líta upp úr viðskiptablaðinu og reyna að sjá stærra samhengi hlutanna.

MOE (IP-tala skráð) 18.2.2013 kl. 20:28

28 identicon

Viðskiptafrelsi lagar ekki neitt. Með viðskiptum þínum geturðu verið að hjálpa uppgangi alræðisríkja og efla hag þeirra. Ef þú villt áframhaldandi vesen í heiminum, endilega keyptu nóg af döðlum frá Íran. Ef þú villt losna við stjórnvöld þar, styrktu þá fjárhagslega innlend öfl sem vinna að brotthvarfi hennar, og keyptu ekki fyrir svo mikið sem eina krónu neitt sem rennur í skattfé og þar á meðal til áróðursmála ríkisstjórnarinnar.

MOE (IP-tala skráð) 18.2.2013 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband