Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Lélegasta tillaga sem ég hef heyrt
Framsóknarflokkurinn treystir ekki þjóð sinni að hafa sínar skoðanir.
Banna erlendum aðilum að vera með "áróður". Semsagt kaupa auglýsingar og halda fyrirlestur og kynningar og slíkt.
Hvurslags fasista hugsjón er þetta.
Sorglegur flokkur
kv
Sleggjan
![]() |
Erlend stjórnvöld kosti ekki áróður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Í kosningunum 2007 braut Framsóknarflokkurinn samkomulag milli flokkanna hvað varðar sjónvarpsauglýsingar sem frægt var.
Hvað um auglýsingar hagsmunaðila Bændasamtaka, LÍÚ (sem raunar rekur og á Morgunblaðið), ASÍ og annara.
Fyrst á að loka fyrir samningaferlið við ESB og meina þjóðinni að kjósa um þetta beinni kosningu þótt ekki sé þetta vinsælt núna en það eina sem verður þá eftir er króna í höftum eða lá og sveiflukennd króna og gríðarlegur kosnaður af gjaldeyrisvarasjóði og háir vextir það að halda einhverju öðru fram er lýðskrum.
Ragnar (IP-tala skráð) 10.2.2013 kl. 16:10
Þeir vilja kannski banna moggann og öllum hagsmunaaðilum að tjá sig.
En nei, þeir einskorða þetta við útlendinga
Framsóknarflokkurinn, rasistaflokkur Íslands.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 10.2.2013 kl. 16:21
Sammála þessu. XB menn eru flestir fínir. En inn á milli eru þjóðrembur og vitleysingar sem kunna ekki á heiminn. Vita ekki hvernig hlutir ganga fyrir sig.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 11.2.2013 kl. 10:03
Framsóknarflokkurinn veit að Íslendingar hafa bara áratuga reynslu í að umgangast útlendinga en þjóðarsálin hefur þróað með sér ótta við allt útlent gegnum aldir einangrunar. Íslenska sálin trúir á sína álfa og að rauðhærðir strákar séu notaðir í beitu ef útlendingar koma höndum yfir þá. 2 vikur á kosta del sól læknuðu það ekki.
Það virkar vel í kosningabaráttu að höfða til ótta fólks og fordóma. Áróðursmeistarar framsóknar kunna sitt fag og ofmeta ekki gáfnafar og mynni þjóðarinnar.
OddurÆ (IP-tala skráð) 11.2.2013 kl. 23:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.