Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Eyðimörkin
Er ég eini einstaklingurinn hér á landi sem finnst "afnám verðtryggingar" gagnslaust rugl?
Þú, ég, þið, við getum öll tekið óverðtryggt íbúðarlán í næsta banka.
http://www.landsbankinn.is/einstaklingar/lan-og-fjarmognun/fasteignalan/
http://www.islandsbanki.is/einstaklingar/lan/
http://www.arionbanki.is/einstaklingar/lan/ibudalan/
Þessi umræða er með öllu óskiljanleg.
hvells
![]() |
Verðtrygging neytendalána afnumin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ertu að meina að það séu engin verðtryggð íbúðarlán í gangi?
V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.2.2013 kl. 13:22
Ég sagði það aldrei.
Nú til dags þá getur þú tekið verðtryggt og óverðtryggt lán.
Þitt er valið.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 10.2.2013 kl. 14:36
Til að svara spurningu þinni: Nei, ekki sá eini, en það stefnir óðum í það.
Rétt eins og þeim hefur snöggtum fækkað sem vilja borga Icesave.Guðmundur Ásgeirsson, 10.2.2013 kl. 16:00
Forsendan fyrir þessum aðgerðum þeas lækka vexti/afnám verðtryggingar er áframhald gjaldeyrishaftanna. Það verður ekki hægt að gera bæði. Það er kanski það sem þjóðin vill áframhald haftanna og hvernig verður ástandið eftir 5 eða 10 ár?
Ragnar (IP-tala skráð) 10.2.2013 kl. 16:13
Vilja þeir þá setja þak á vexti í leðinni?
Ef nei þá stefnir í himinháa vexti.
Ef já þá vill enginn lána.
Vilja þeir evruna?
Nei þeir vilja ekki í ESB.
Hafa þeir lausnir?
Basically nei.
kv
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 10.2.2013 kl. 16:25
Talandi um lausnir.
Besta einstaka aðgerðin til að gera gjaldmiðilinn stöðugri væri að bæta samkeppnisstöðu hans með því að afnema verðtryggingu neytendalána.
Það er gott dæmi um aðgerð sem felur í sér lausn á ákveðnum vanda.
Svo þarf ekkert þak á vexti um leið og búið er að venja lánveitendur á að þeir geti ekki treyst á að fá alltaf jákvæða raunávöxtun. Hvergi í heiminum er það lögmál að fjárfestar eigi alltaf að fá jákvæða raunávöxtun á öllum tímabilum. Sérstaklega ekki í efnahagslægðum og kreppum. Þar una fjárfestar vel við sitt ef þeir koma út á sléttu og kannski með hóflega ávöxtun yfir lengri tíma.
Enda þarf ekkert að reisa háa ávöxtunarkröfu um leið og komið er í umhverfi þar sem er minni verðbólga. Skilvirkasta leiðin til að ná því fram væri að afnema stærsta verðbólguvaldinn: verðtrygginguna.
Auðvitað þarf fleiri lausnir á fleiri vandamálum en bara þessu. En góðu fréttirnar eru að slíkar lausnir eru til líka. Bara ef við viljum opna augun fyrir þeim.
Guðmundur Ásgeirsson, 10.2.2013 kl. 17:13
Ekki óvitlaust Guðmundur.
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 11.2.2013 kl. 10:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.