Hver borgar?

Hver á að borga fyrir afskriftirnar?

Fínt að Sigmundur upplýsir okkur um það.

hvells 


mbl.is „Stökkbreytt húsnæðislán verði leiðrétt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Byrjar nú sami söngurinn enn og aftur.

Það þarf enginn að borga neitt.

verðtryggð lán eru á leiðinni nákvæmlega sömu leið og gengistryggðu lánin.

Þessar hækkanir á verðtryggðu lánum eiga sér ENGA lagastoð.

Næsta verk er bara að endurreikna þessi lán samkvæmt lögum, og hætta þessum þjófnaði.

Það þarf enginn að borga neitt, þetta snýst eingöngu um að skila þýfinu.

Sigurður (IP-tala skráð) 8.2.2013 kl. 21:01

2 identicon

Ríkið borgar en notar til þess tekjurnar sem fást við lækkun skatta. Auk þess sem ríkið tekur arð fyrrtæka til að tryggja fólki betri lífskjör, fleiri og betur launuð störf. Síðan eiga allir að fá að njóta ávinningsins þegar vel gengur en atvinnurekendur taka á sig þau töp sem skapast ef illa gengur. Bankar og fjármálastofnanir eiga einnig að bjóða lán þar sem þeir taka á sig mistök í efnahagsstjórn ríkisins. En lítil hætta er á mistökum ef framsókn stjórnar. Enda flokkur með áratuga reynslu í ábyrgri fjármálastjórn.

Salieri (IP-tala skráð) 8.2.2013 kl. 21:08

3 identicon

Sammála Hvells.  Ísland er land skuldara og landinn auðblektur með einföldu lýðskrumi. Í "alvöru" löndum þeas betur stæðu nágrannalöndum okkar birta flokkarnir árlega sín fjárlagafrumvörp og eru með skuggaráðuneyti en Ísland er land amatöranna þar sem allir þykast geta allt og eru "klárastir, bestastir og stórastir". 

Ég var raunar að rífast við kunningja minn innvígðan Framsóknarmann um þessar tillögur þeirra um að aftengja verðtryggingu yfir 4% samfara því að þeir ætli að aflétta gjaldeyrishömlum.  Augljóslega mun þetta sökkva gengi íslensku krónunnar enda ótrúlega óraunhæf óskhyggja. Menn gleyma í raun ástæðunni fyrir verðtryggingunni á sínum tíma. Innlánseigendur eiga einir taka gengisáhættu sem þetta gerir það að verkum að það er ennþá hagstæðara að lána og augljóslega mun þetta í raun reka á eftir öllum að koma fé sínu út úr íslenskri lögsögu og það mun í raun jarða fasteignamarkaðinn. Hvaða heilvita maður er að hætta sínu fé á íslensku krónusvæðinu. Væri vitrænna að við tækjum upp gjaldmiðil Disneylands eða Eve Online tölvuleiksins sem hefur að mér er sagt skammstöfunina ISK. Efnahagslífið er tóm froða og sápukúlur blásast út í skjóli haftanna. Fá alvöru fyrirtæki eru til sölu allt er í plati og krónunni er haldið uppi með lántöku fram yfir kosningar til að búa til þá ímyndun um að allt sér hér að batna. 

Ragnar (IP-tala skráð) 8.2.2013 kl. 21:19

4 identicon

@Sigurður

Ef þú lánar einhverjum 2 epli þá ætlast þú til að fá alla vega 2 epli til baka.

Ef það er 10% verðbólga og þú skuldar 20 miljónir eru þetta 22 miljónir í árslok.  Í flestum löndum eru fljótandi vextir, stýrivextir og síðan vextir ofan á það og síðan álag á þá sem skulda mikið og eru álitnir ótraustir enda áhættan meiri.  Þetta hefur verið reynt áður.  Ef menn ætla að opna fyrir gjaldeyrishöft samfara að aftengja verðtryggingu án þess að hækka vexti mun þetta valda því að allir sem ættu fé færu úr krónunni og hún myndi í raun sökkva og ekki bara það heldur myndi fasteignamarkaðurinn hrynja enda ekkert lánsfé, enginn myndi lána neitt og þetta myndi ganga af fjármálakerfinu dauðu.  Eftir stæði aska og að koma eldi í þær glæður yrði ákaflega erfitt.  Hér yrði efnahagslegt alkul og fólksflótti.  Vandamál Íslands er kanski ekki það að við séum með neitt gígantískan opinbera geira eða þjónustu, við erum með töllaukið bankakerfi meira en 3 svar sinnum stærra miðað við fólksfjölda í Norrænu löndunum og síðan erum við með of lítið, einhæft og kraftlítinn einkageira. Það vantar bæði þekkingu, verksvit og afköst.

Ragnar (IP-tala skráð) 8.2.2013 kl. 21:30

5 identicon

@Salieri

Veit ekki hvort þú ert að djóka eða alvara.

Enda eru bestu trolllararnir þannig.

flottur drengur.

kv

sl

sleggjan (IP-tala skráð) 8.2.2013 kl. 22:02

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Mjög góð innsýn hjá Ragnari.

Fagna þessari innkomu á þessari síðu.

Maður líður stundum einsog maður er að slást við vindmyllur alla daga einsog Don Kíkóti.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 8.2.2013 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband