Hver á að borga?

XB verður að segja það hreint út hverjir eiga að borga þessar afskriftir. Annars er þetta líðskrum og rugl.

 

hvells 


mbl.is „Skjaldborgin sneri öfugt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Menn eru alltaf að spyrja þessarar spurningar (þ.á.m. síðuritari, a.m.k. annar þeirra) þrátt fyrir að alltaf komi fram sama svarið.

Hver á að borga fyrir að leiðrétta ekki lán heimilanna? Hver á að borga fyrir stórfelldan flótta ungs menntaðs hæfileikafólks úr landi, hrygglengjunnar sem allt efnahagslífið byggist á?

Hver á að borga þegar stór hluti þessara lána tapast hvort eð er þegar þúsundir verða gjaldþrota?

Það er miklu dýrara að gera ekki neitt en að fara í hæfilegar afskriftir og tryggj að fólk muni borga af kannski þeim 70-80% sem eftir verða af láninu. Það er miklu heimskulegra að halda hinum 20-30 prósentunum inni og láta þær eyðileggja hin 80 prósentin.

Ég hef líkt þessu við sjúkling sem fær drep í löppina. Ef löppin verður tekin af bjargast hann og verður einfættur, ef ekki þá breiðist drepið út og sjúklingurinn deyr.

Theódór Norðkvist, 8.2.2013 kl. 21:21

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ungt menntað fólk flýr til útlanda vegna þess að það sér ekki framtíðina á Íslandi. Efnahagurinn slæmur. Ekki störf við hæfi. Eða laun við hæfi. Ónýtur gjaldmiðill, gjaldeyrishöft og engin tækifæri.

Þau eru ekki að flýja húsnæðislánin sín. Höfum það á hreinum.

Með því að afskrifa milljarða þá fellur það á ríkissjóð og við getum þá ekki lækkað skatta og aukið tækifæri hérna heimafyrir.

Leiðin sem þú ert að boða leiðir bara til ofurskuldsetningar ríkissjóðs.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 8.2.2013 kl. 21:55

3 identicon

hahaha er ungt mentað fólk ekki að flýja til útlanda útaf húsnæðislánunum sínum segðu mér annann betri.. það er nú bara einmitt ein af stærstu ástæðunum að þau flýja, útaf geðveikinni sem er verið að rukka fyrir húsnæði hérna ásamt fleiru.

Guðbrandur (IP-tala skráð) 9.2.2013 kl. 00:51

4 identicon

Betra er að benda á einhverjar kannanir á brottfluttum, af hverju þau ákváðu að flytja. Og pósta því hér.

Ef ekki er til svoleiðis könnun getið þið alveg gargað hina og þessar kenningar sem þið haldið fram sem staðreyndir.

sleggjan (IP-tala skráð) 9.2.2013 kl. 06:44

5 identicon

Það er til margs konar ungt fólk.  Ungt fólk sem sér fram á að borga í lífeyrissjóðakerfi sem er ekkert annað en hulin skatttaka, sér fram á háa skatta og litla þjónustu, lág laun og léleg lífskjör. Sér fram á heilbrigðiskerfi og menntakerfi sem mun molna niður á næstu árum.  Það er ákaflega gott samræmi á milli heildarþjóðartekna þjóða og velferðarkerfisns og þar eru Íslendingar að sökkva en hafa lánað fyrir þessu og vöxtunum.
Klárlega kostar það að þjóðnýta skuldir.  Þeir sem komu sér í skuldir á góðæristímanum og hinir hvað um þá og þá sem á eftir koma.  Hver á að bera kostnaðinn af að við búum við sveiflukenndan gjaldmiðil með miklu hærra verðbólgu og vaxtastig en í nágranalöndunum. Á bak við gjaldærishöft með séríslenskri efnahagssnilli og brostið þjóðarstolt.  Við sem héldum að við værum svo rík og klár en erum fátækir heimskingjar. 

Réttlætisgiðjan á engan aur og óstjórn og klúður Íslendinga þurfa Íslendingar eða sumir Íslendingar að borga.  Íslendingar eru því miður ekkert sérstaklega vel menntuð þjóð miðað við nágrannaríkin.

Ragnar (IP-tala skráð) 9.2.2013 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband