Hjúkkur hafa logið að almenningi

Hjúkrunarfræðingar hafa ávalt sagt að hækkun hjá þeim þurfa ekki að leiða til hækkun annarstaar.

Raunveruleikinn er annar.

Einsog alltaf þegar hjúkkurnar tala.

 

Þær þurfa að svara fyrir svona glapræði.

hvells 


mbl.is Krefjast sömu leiðréttinga og hjúkrunarfræðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þá ekki bara besta mál að sem flestar segi upp. Framboð og eftirspurn. Hjúkrunarfræðingar hafa þann kost að fá mun betur launuð störf erlendis og þegar 20% þeirra segir upp þá hlýtur launakostnaður LSH að lækka að sama skapi. Afhverju ættu hjúkkurnar að vera spá í það hvort að einhverjar aðrar stéttir krefjist sambærilegra launahækkana.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.2.2013 kl. 16:43

2 identicon

http://www.ruv.is/frett/haekkun-launa-valdi-ekki-launaskridi

PR MEISTARAR ÍSLANDS SEGJA:

"Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður félags hjúkrunarfræðinga segir að hækkun launa hjúkrunarfræðinga eigi ekki að valda launaskriði því yfirlýsing stjórnvalda taki einungis til sérhæfðra stétta innan heilbrigðiskerfisins"

sleggjan (IP-tala skráð) 7.2.2013 kl. 18:21

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er í rauninni besta mál ef það verður 20% hagræing í launakostnað LHS.

Himnasending.

En þessi hótun um að hjúkkur flýji land er í sötulíki. Þær eru ekkert að fara að flýja land. Í fyrsta lagi er ekki eins mikil eftirspurn eftir þeim úti og þær halda... og svo eru þær margar löngu búin að festa rætur á Íslandi og fara ekkert út til útlanda einsog hendi sé veifað.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.2.2013 kl. 18:27

4 identicon

Eftirspurnin er reyndar gríðarleg.

Atvinnuleysi í Svíþjóð er mikið nú í dag og talið er að 2013 verði verra en árið á undan. Ef þú leitar á síðu Arbetsförmedlingen (Vinnumiðlun Svíþjóðar) eftir hjúkrunastörfum má finna nálægt 1600 laus störf. Í Noregi eru um 650 laus störf fyrir hjúkrunarfræðinga. Í Danmörku 800 störf.

Vinnuaflið hér á Norðurslóðum gengur í vissa hringi á milli Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og þar sem þessi lönd geta ekki fyllt í þessar stöður er vissulega leitað til Íslands þar sem auðvelt er að skáka þeim launaseðlum er hjúkrunarfræðingar þar fá auk þess sem Íslendingar hafa visst forskot er kemur að tungumálakunnáttu og svipaðri menningu.

Trúðu mér það verður landflótti hjúkrunarfræðinga á næstu 2-5 árum ef kjör bætast ekki.

Þruman (IP-tala skráð) 7.2.2013 kl. 19:29

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er oft krafist tungumálakunnáttu.

En LHS mun aldrei vera samkeppnishæf í launum miðað við t.d Noreg.

Það er bara þannig. Þrátt fyrir að hjúkkurnar fái myndarlega launahækkun á íslenskum mælikvarða

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 7.2.2013 kl. 19:44

6 identicon

Einmitt og Íslendingar eiga auðveldara en margur annar með að læra norskuna, sænskuna eða dönskuna. Laun eru hærri í öllum þessum löndum þannig að líkur eru alveg á því að þær hverfi í hópum.

Pointið er að eftirspurnin er til staðar ólíkt því sem þú nefnir. Þær liggja margar líkt og læknarnir á atvinnutilboðum frá þessum löndum. Ef gulrótin væri stækkuð eilítið með launaréttingu væri þó kannski möguleiki á að halda eitthverjum fjölda þeirra. Eins og þú nefnir er erfitt að yfirgefa land þar sem ræturnar liggja en ef launamunurinn er gífurlegur verður ákvörðunin auðveldari.

Gæti séð fyrir með keðjuverkun á næstu árum þegar ein og ein hjúkka yfirgefur land fyrir betri kjör. Fiskisagan flýgur á milli fyrrum vinnufélaga og fyrr en varir verður LSH mannað með starfsnámsnemum og ellismellum er vilja ekki yfirgefa land (no disrespect).

Þruman (IP-tala skráð) 7.2.2013 kl. 20:20

7 identicon

Ég veit að það er ekki neitt vandamál fyrir hjúkrunarfræðinga að fá vinnu erlendis. Sumir af þeim hjúkrunarfræðingum sem hafa sagt upp störfum hafa áður unnið erlendis sem dæmi og geta gengið beint inn í sín gömlu störf. Ég hef ekki orðið var við að hjúkrunarfræðingar hafi farið fram sömu laun og greidd eru á norðurlöndum heldur vilja þeir ná sömu kjörum og t.d. viðskipta og hagfræðingar sem vinna hjá ríkinu. Sé ekki að það sé neitt óeðlileg krafa.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 8.2.2013 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband