Furðurleg umræða

Skuldaþak var ekki sett á ástæðulausu. Bara ef við Íslenidngar höfðum skuldaþak. Það muni draga úr þessum gengdarlausa halla seinustu ára.

Bandaríkjamenn verða að sníða stakkk eftir vexti. Ekki eyða umfram tekjur. Krísan hér í USA er það að þeir vilja taka lán en geta það ekki vegna skuldaþakinu.

Í stað þess að draga úr útkjöldum þá vilja þeir hækka skuldaþakið og skullda enn meira og velta því framtíðarsköttum á börnin.

"Fyrr í dag sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti repúblikanar ættu alls ekki að reyna hagnýta sér ástandið til að fá það í gegn að stjórnvöld dragi úr ríkisútgjöldunum"

Fá það í gegn að ríkið dragi úr útgjöldum???? Er það ekki bara skynsamlegt.... í ljósi þess að USA skuldar 16billjón dollara

http://www.usdebtclock.org/

 

And counting

 

hvells


mbl.is Bernanke: Hækkið skuldaþakið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Fyrirtæki þurfa að setja í sína ársreikninga allar sínar skuldbindingar. Ríkisstjórnir þurfa þess ekki og þess vegna sjá þeir sem vilja lána opinberum aðilum á Vesturlöndum ekki að þessir opinberu aðilar skulda gífurlegar fjárhæðir í lífeyrissjóði. Fyrr eða síðar kveikja þeir á perunni og þá skellur hrina þjóðargjaldþrota á heiminum. Þessar skuldir sem þú nefnir að ofan eru því í reynd bara hluti skulda USA :-( Sama á við hérlendis.

Bernanke og Greenspan eru sennilega allra lélegustu Seðlabankastjórar sem stýrt hafa  USA seðlabankanum. Leggja þarf seðlabanka heimsins niður eða í það minnsta takmarka verulega vald þeirra.  

Ég álít þá sem keyrt hafa hér langt fram úr árum saman (ríki og sveitarfélög) bera persónulega ábyrgð á þeim útgjöldum sem þeir hafa stofnað til. Selja á ofan af þessu liði til að hafa upp í þær skuldir sem þetta óábyrga lið hefur stofnað til. Þetta hyski kaupir sér endurkjör með annarra manna fé!

Helgi (IP-tala skráð) 15.1.2013 kl. 21:20

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ég er á því að skynsamlegast sé að leggja Seðlabanka niður í þeirri mynd sem þeir eru í núna.

Bæði seðlabanki Evrópu og Bandaríkjana eru að prenta peninga einsog engin væri morgundagurinn.

Fjármálakreppan núna er að hluta til eða að miklu leiti til komin vegna Seðlabanka Bandaríkjana uppúr aldamótum þegar stýrivextir voru mjög lágir.

Ég er efasemdamaður um gildi Seðlabanka.

Og þessi íslenski Seðlabanki er bara djók. Reyna að stýra verðbólgu með stýrivöxtum þegar krónan er í höftum......  Seðlabanki Íslands er búinn að breytast í einhverskonar gjaldeyriseftirlit með heimild fyrir húsleitum.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 16.1.2013 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband