Sunnudagur, 13. janúar 2013
Sparnaður?
Er þetta virkilega vilji þjóðarinnar í dag að eyða þrem milljörðum í þessar stofnanir... og þá á eftir að reka þetta batterí.
Er núna ekki tíminn til að skera niður? Minnka báknið.
Ég veit að enginn stjórnmálamaður þorir að gagnrýna þetta.
Það er svo miklu auðveldara að eyða en að spara.
Þessi gengdarlausa eyðsla mun aldrei hætta nema að það verður pólitiskt hagstætt að setja sig upp á móti eyðslu. Boltinn er hjá okkur almenningi.
hvells
![]() |
Húsið mun kosta yfir 3 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég tel mig fylgjast mjög vel með fréttum.
Af hverju er ég að sjá þetta fyrst núna þegar það er buið að ákveða. hanna og allt tengt.
Og þrír MILLJARÐAR!
Og þvílíka rúnkverkefnið. Ekki við hæfi.
Það var splæst í 100 millljonir fyrir tækjakaup landspítalans á fjárlögum 2013, en 3 MILLJARÐAR í runk.
Mesta ruglið sem ég hef lesið á árinu.
sleggjan (IP-tala skráð) 13.1.2013 kl. 20:13
Hvellur,þar sem þú ert svo fróður,,,segðu okkur hver bað um þennan óskapnað,þetta kofaflygildi.? Tengist þetta eitthvað Frú Vigdísi,fyrrv forseta.
Númi (IP-tala skráð) 14.1.2013 kl. 00:33
" Í athugun, sem unnin var á vegum af menntamálaráðuneytisins á árinu 2007, er gert ráð fyrir byggingu með húsnæði fyrir Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Háskóli Íslands lét í té byggingarreit milli háskólabygginga og Þjóðarbókhlöðu við Suðurgötu. Ákveðið var að í byggingunni yrði einnig íslenskuskor Háskóla Íslands. Unnin var samkeppnislýsing og efnt til samkeppni á árinu 2008.
"
http://www.fsr.is/Verkefni/Mennta--og-menningarmalaraduneyt/kynning/~/nr/6021310
Hús íslenskra fræða fór á skrið árið 2007 þegar Þorgerður Katrín Sjálfstæðisflokki var menntamálaráðherra.
Báknið burt er stærstu svik Sjálfstæðisflokksins frá upphafi.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 15.1.2013 kl. 09:04
"
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er rannsóknastofnun innan Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Stofnunin var sett á laggirnar í október 2001 í tengslum við 90 ára afmæli Háskóla Íslands og evrópska tungumálaárið. Stofnunin hefur notið þess heiðurs að bera nafn Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands og notið mikilvægrar liðveislu hennar í uppbyggingarstarfi stofnunarinnar.
"
http://www.fsr.is/Verkefni/Mennta--og-menningarmalaraduneyt/kynning/~/nr/6021310
enn og aftur var það Sjáfstlæðsiflokkurinn sem ber ábyrgð á þessu.
Þessi stofnun var inn í hugvísindastofnun HÍ... og ætti það ekki að vera nóg?
Óþarfi að byggja umgjörð um báknið.
þetta eru allt fínar hugmyndir fyrir stjórnmálamenn og örfáa Íslendinga. það er alltaf gaman að eyða annara manna peningum. Rosa gaman. Og slá sjálfan sig til riddara í leiðinni.
En það spurði enginn hinn almenna skattborgara af þessu... og hvort það væri meirihluta vilji að eyða þessum milljörðum í þetta verkefni.
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 15.1.2013 kl. 09:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.