Óþarfi að biðjast afskökunar

Í íþróttum á maður ekki alltaf stjörnuleik.

Maður á góða daga og slæma daga.

Aron átti slæman dag. Þannig er það bara.

 

Hann skuldar okkur sófaspekingunum enga afsökun. Ekki getum við betur.

 

kv

Sleggjan

 


mbl.is Aron: Ég biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skarfurinn

Af hverju má hann það ekki hann eyðilagðí leikinn fyrir lið sínu, að skora 6 mörk úr 18 skotum og tapa 6 boltum er óafasakanlegt fyrir íþróttamann ársins og atvinnumann hjá Kiel.

Skarfurinn, 12.1.2013 kl. 19:57

2 identicon

Það er búið að láta Ólaf Ragnar vita. Hann ætlar að taka sér umþóttunartíma fram yfir næsta leik hvort það dugi að láta Aron P skila  styttunni. Alexander gat ekkert eftir að hann fékk klumpinn og ekki Heiðar Helgu heldur. Þarna er 100% fylgni á milli. Líklegt er að þeir togni við að hampa klumpnum.

Hrúturinn (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 20:13

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það er svo sannarlega óþarfi að biðjast afsökunar. Íþróttir eiga að vera skemmtilegur leikur!!!

Það er ömurlegt að upplifa það mannsal og niðurbrot einstaklinga sem viðgengst í heiminum, þegar íþróttir eru annarsvegar!

Atvinnu-íþróttamenn eru þrælar veðmála-fíkla heims-fjármálakerfisins. Kannski er það þess vegna sem mér finnst þessar fjölmiðla-æsinga-íþróttir ömurlegar.

Nú verður þessi drengur kannski píndur til að nota einhverja stórhættulega stera, til að hann geti skilað veðmála-fíklunum meiri veðmálapeningum!

Eru keppnis-íþróttir heilbrigð tómstundaiðja unga fólksins, þegar svona staðreyndir blasa við manni?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.1.2013 kl. 20:47

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

hann stóð sig ágætlega... sá nokkrar óverjandi dúndruru frá honum... óverjandi maður

vel gert

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2013 kl. 21:04

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það verða allir að leyfa sér að tapa stundum, og taka því, án þess að afsaka sig. Annað er bara óraunhæft. Sá sem gerir ómanneskjulegar kröfur til sín og annarra, er ekki á réttu róli.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.1.2013 kl. 21:14

6 identicon

Menn eiga góða leiki, menn eiga slæma leiki. Það er nú bara þannig.

Skarfurinn skilur það ekki. En við hin gerum það.

sleggjan

sleggjan (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 21:32

7 identicon

Hann var bara dauðþreyttur eftir að hafa verið inná nánast allan leikinn í vörn og sókn. Hann sagði það líka fyrir leik að það væri síþreyta eftir erfitt síðasta ár, þar sem hann fékk bara tvær vikur í hvíld. Það er ekki eins og hinir fyrir utan hefðu verið eitthvað betri ef þeir hefðu skotið á markið. Mér fannst þetta bara fín frammistaða hjá strákunum í dag, þeir léku bara á eðlilegri getu, ég meina það eru tveir heimsklassaleikmenn í liðinu, frábært ef við náum að vinna leik í 16 liða úrslitum. Þá er ég mjög sáttur.

Karpi (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 21:40

8 Smámynd: hilmar  jónsson

Afsögn og gapastokk.

hilmar jónsson, 12.1.2013 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband