Laugardagur, 12. janúar 2013
Nokkrar hugmyndir til að bæta ástandið
Heiðmörk er verðmætt útivistasvæði sem skal ekki einkavæða. Góð lífsgæði fyrir höfuðborgarbúa felast í að hafa gott náttúrulegt svæði fyrir gönguferðir, útsýni og gróður.
Algengt og jafnvel nauðsynlegt í borgum. Sem dæmi gæti Central Park svæðið í New York verið verðmætasta byggingarsvæðið í heiminum í dag. En enginn tekur til greina að selja svo sem einn fermeter af garðinum.
Lausnir:
-Ekki gera við veginn. Hafa hann holóttan og erfiðan. Það letur fólk í að keyra hann og minnkar umferðina
- Gera veginn að "botnlanga". Loka fyrir gegnumstreymið, þá minnkar "rúnturum" og umferð um leið.
- Rukka inn hóflegt gjald sem fer í að laga veginn. Þá verður þetta sjálfbært og takmörkun á umferð augljós.
- Banna bílaumferð. Þetta er fyrst og fremst útivistasvæði fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur. hægt að hafa bílastæði sem er nokkuð nálægt og svo verður fólk bara að labba.
Svo er hægt að kvarta og kveina yfir þessum tillögum. En sá hinn sami má koma með sína lausn í staðinn fyrir að einungis gagnrýna.
kv
Sleggjan
![]() |
Vill takmarka umferð um Heiðmörk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Og svo má klára dæmið með því að loka Hellisheiðarvirkjun til að útiloka að mengun frá þeirri virkjun fari í vatnsbólin okkar!
KIP (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 20:42
Vegurinn um Heiðmörk þarf að vera fær fyrir smábílana, til jafns við fjallabílana.
Ég velti einmitt fyrir mér færðinni og vegaástandinu í gegnum Heiðmörk í jólafríinu.
Ef þessi gegnumkeyrsluvegur verður að einhverri hraðbraut, þá missum við friðsældina og hreinleikann vanmetna, á svæðinu. Það er mín skoðun.
Óþarfi að malbika þessa gegnumkeyrslu-leið, en nauðsynlegt að fylla uppí holurnar, eða loka annars gegnumstreymis-umferðinni þegar veðráttan og færðin er sem verst.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.1.2013 kl. 21:02
Ég keyrði þennan holótta veg nýlega.
Hann er vel fær öllum gerðum af bílum. Þetta er fínasta hraðahindrun. Þú keyrir á 30-40km hraða. Einmitt óskahraðinn um þetta svæði.
kv
sleggjan
sleggjan (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 21:35
Ég keyrði þarna milli jóla og nýárs, og þá var um það bil púströrs-ófært fyrir mótorvæddar sardínudósir. Ég bý að þeim forréttindum að hafa lært að keyra holótta landsbyggðarvegi, og kannski þess vegna: púströrið á sardínudósinni slapp :)
Það hafa kannski ekki allir búið við þau forréttindi sem ég hef, að hafa lært landsbyggðar-vega-torfæruakstur? Það getur fljótt orðið viðgerðardýr bíltúr, að lenda í of djúpum hjólförum.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.1.2013 kl. 21:55
Sá reyndar einhverskonar slyddujeppa spóla á hraðahindrun við Bónus í Smáralind/Smáratorgi, rétt fyrir áramót. Það þarf víst ekki Heiðmerkur-bíltúr, til að opinbera lélega keyrslufærni margra. Er ökukennsla í dag orðin bæði rándýr og gagnslaus?
Hraðahindranir virka greinilega, hvort sem þær eru uppbyggðar eða niðurbyggðar.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.1.2013 kl. 22:05
Vandamálið með að ætla holóttum og ónýtum vegi að virka sem hraðahindrun er sú, að vaxin er upp kynslóð ökumanna (a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu) sem ekki kann að aka eftir holóttum og ónýtum vegum.
http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1169825/
Aðalsteinn Sigurgeirsson, 12.1.2013 kl. 22:23
Þakka Sleggju og Hvelli fyrir að nálgast málið í lausnum og góðar ábendingar í kommentum.
Sjálfur er ég soldið stressaður yfir vatnsverndinni;
Áminningar til OR vegna Hellisheiðarvirkjunar eru vel þegnar. Mælingar á áhrifum starfsemi hennar á grunnvatn eru víðtækar og hafa enn ekki mælst. Það þarf að vakta áfram.
Kveðja,
Eiríkur.
Eiríkur Hjálmarsson (IP-tala skráð) 13.1.2013 kl. 00:50
Hér eru fleiri hugmyndir:
Ræktið meiri skóg í Heiðmörk (m.a. til vatnsverndar)!
Rökin finnið þið í þessu myndbandi ("Trees are natural water managers").
http://www.youtube.com/watch?v=74063UKSmXw
Aðalsteinn Sigurgeirsson, 14.1.2013 kl. 19:00
Vilji OR-menn bæta umgengnina í Heiðmörk, ættu þeir að beita sér fyrir bættri löggæslu (lögreglu) og eftirliti (Skógræktarfélags Reykjavíkur).
Með bættri umhirðu um skóginn og útivistaraðstöðuna í Heiðmörk, mætti líka óbeint draga úr afbrotum og skemmdarverkum ("a 10% increase in tree canopy was associated with a roughly 12% decrease in crime."...."places with poorly groomed vegetation where "the concealment value of the vegetation outweighs its deterrent effect"")
http://www.theatlanticcities.com/neighborhoods/2012/05/can-trees-actually-deter-crime/2107/
Aðalsteinn Sigurgeirsson, 14.1.2013 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.