Sammála Tryggva

"Greinarhöfundur segir að of mikil áhersla hafi verið lögð á stóru fyrirtækin sem séu í raun örfá hér á Íslandi. Stórfyrirtækin séu nauðsynleg en þau eigi ekki að fá alla athygli stjórnmálanna. Leggja verði mun meiri áherslu á þau litlu og meðalstóru en nú sé gert."

 

Þetta er alveg satt. Stjórnvöld eru að gefa skattaafslátt, ýmiskonar hliðranir og ívilnanir til stórra fyrirtækja. Fyrsta sem mér dettur í hug eru gagnaverin. Þar var gefinn einhver skattaafsláttur. Svo einkasjúkrahúsin sem aldrei voru, þar átti að vera einhver hliðrun.

Íslensk Erfðargreining með RÍKISÁBYRGÐ. Það er hægt að telja upp fleiri dæmi.

 

Lítil og meðalstór fyrirtæki fá ekki svona meðgjöf.

 

 

Ég sem alvöru frjálshyggju og hægri maður er á móti svona. Öll fyrirtæki sem starfa á frjálsum markaði skulu standa jafnfætis gagnvart stjórnvöldum og lögunum.

Er til viðbótar á móti því að Gistináttargjöldin séu með lægri skattþrep en önnur þjónusta. Ég er á móti því að stóru kvikmyndaverin í USA séu að fá einhverja skattaafslátti (þau hafa komið herna og tekið upp bíómyndir og skila fjármagni til íslenska efnahagskerfisins), ég er á mót TAX FREE conceptinu fyrir erlenda ferðamenn. Svona er að vera hugsjónarmaður fyrir frjálsu hagkerfi en ekki tækifærisinni sem lækkar skatta til útvalda. Þó að í einstaka tilfellum skilar það til efnahagskerfisins (t.d. kvikmyndaskattaendurgreiðslan). En einhverstaðar bitnar þar á öðrum þvi þau stærri hafa forskot.

Stjórnvöld eiga almennt ekki skipta sér að atvinnumálum yfir höfuð. Það er ekki hlutverk ríkisins að skapa atvinnu, heldur búa til leikreglur þar sem allir eru jafnir.

 

kv

Sleggjan


mbl.is Rekstrarumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

decode fékk ríkisábyrgð frá Davíð Oddson... en það var EES samningurinn sem bannaði svona ríkisstuðning

nú er DO á móti ESB.... en þessi ábyrgð hefði kostað þjóðarbúið okkur milljarða við gjaldþrot decode.

hvells

Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2013 kl. 21:08

2 identicon

Decode fékk skammarlegan ríkisstuðning.

Eitthvað sem meðalstór fyrirtæki fá aldrei.

kv

sleggjan (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband