Laugardagur, 12. janúar 2013
Menntun Ágúst Ólafs
Stúdentspróf MR 1997. Lögfræðipróf HÍ 2003. BA-próf í hagfræði HÍ 2003.
BA í Hagfræði er ekki það sama og Bsc í Hagfræði. BA er meira lestur, stefna og almennt. Bsc henntar betur þegar kjarna reikningar og til að skilja grunnin stærðfræðilega.
Fékk lögfræðipróf og hagfræðiprófið á sama ári sem ég skil ekki alveg. Eitthvað fishy í gangi.
Ágúst var ráðinn efnahagsráðgjafi. Hefur greinilega ekki staðið sig nógu vel enda ekki með viðeigandi menntun.
kv
Sleggjan
![]() |
Þetta eru ekki verk forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:15 | Facebook
Athugasemdir
BA í hagfræði leyfir fólki að taka 1/3 af náminu í annari deild... í hans tilviki tók hann þetta í lagadeildinni.
með örðum orðum þá lét hann meta lögfræði fögin í BA hagfræði þ.e hann kláraði ekki 3 heil ár í BA hagfræði heldur fékk 1/3 metið.
þetta er eitthvað skítamix
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2013 kl. 21:10
Höfum efnahagsráðgjafa sem er með vafasama Hagfræðimenntun. Það er ekkert flóknara.
sleggjan (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 21:39
Sæll.
Samfylkingin með bitlingastarf fyrir sína á kostnað annarra.
Ríkið hefur engu hlutverki í efnahagsmálum að gegna nema hætta að trufla og flækjast fyrir. Hagfræðingur sem ekki skilur það hlýtur eiginlega að hafa fundið prófið sitt í Cheerios pakka.
Ágúst Ólafur er sjálfsagt eins og margir hagfræðingar: Skilur hvorki upp né niður í efnahagsmálum. Ef eitt er orðið ljóst eftir rugl undanfarinna ára er það að flestir hagfræðingar eru algerlega á rangri braut. Hvers vegna segi ég það? Því veruleikinn lýgur ekki og við sleppum ekki frá honum nema tímabundið. Enn stærri krísa en bankakrísan er framundan.
Ekki það að ég sé hrifinn af Keynes en meira að segja hann segir að ekki eigi að hækka skatta í kreppu. Hvað er þá ríkisstjórn Íslands að pæla? Hvað er þá Obama og hans lið að pæla? Kanarnir eru komnir í vond mál sem versna með hverjum deginum sem líður því um 3,5 milljarðar dollara bætast við þeirra skuldasúpu. Okkar skuldasúpa er einnig orðin hræðileg!
Helgi (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 22:17
Ágúst er ekki hagfræðingur. Hann er með BA gráðu í hagræði sem er ekki nægilegt til þess að kalla sig hagfræðing. BS gráða er hinsvegar nægilegt skilyrði fyrir þessu.
Hægfræðingur og viðskiptafræðingur er lögverndað starfsheiti
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2013 kl. 23:19
Menntun hans kemur þessu starfi bara ekkert við.
Hann er sonur föður síns, og það nægir.
Svona er allt ríkisapparatið, og þess vegna var hér hrun.
Engar hæfiskröfur í ráðningum, eingöngu flokkskírteinin.
Og núverandi ríkisstjórnarflokkar hafa sýnt og sannað með afgerandi hætti að hrunið kenndi þeim ekki neitt.
Öll vinnubrögð óbreytt.
Sigurður (IP-tala skráð) 12.1.2013 kl. 23:52
Helgi segir
"Ríkið hefur engu hlutverki í efnahagsmálum að gegna nema hætta að trufla og flækjast fyrir."
Þetta er auðvitað frekar villandi.
Ríkið t.d. lækkar vörugjöld á matvörur. Gott að hafa efnahagsráðgjafa til að skoða afleiðingar þess (2007 í miðri þenslu).
Bara sem dæmi.
sleggjan (IP-tala skráð) 13.1.2013 kl. 15:08
@6:
Af hverju er ríkið að leggja vörugjöld á matvörur? Af hverju leggur ríkið á tolla? Með því að leggja gjöld á vöru og þjónustu hækkar ríkið verð þeirra og rýrir þar með kaupmátt fólks og hefur neikvæð áhrif á viðskipti.
Hvað rýra ríki og sveitarfélög kaupmátt ykkar félaganna mikið með útsvari og tekjuskatti sem á ykkur leggst? Hafið þið samið um að leyfa hinu opinbera að taka þessa fjármuni af ykkur með skriflegum samningi?
Stærsta vandamál vestrænna samfélaga í dag er stærð opinbera geirans. Ríkið eyðir störfum og þvælist fyrir við verðmætasköpun og setur oftar en ekki reglur sem hindra atvinnusköpun og bætt lífskjör. Þeir sem ekki trúa þessu ættu að líta til Evrópu og USA svo dæmi sé tekið. Við munum sjá nokkur lönd verða gjaldþrota á næstu árum og einnig talsverða verðbólgu.
Helgi (IP-tala skráð) 13.1.2013 kl. 21:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.