Laugardagur, 12. janúar 2013
Góður punktur. En hvað meinaru?
Bjarni segir
"Hann spurði hvort ekki væri betra að opna hagkerfið, laða fram fjárfestingu og stilla sköttum í hóf, bæta kjörin í stað þess að jafna þau og líta á ríkið sem upphaf og endi alls. Það hlyti að vera betra en að skattleggja allt sem hreyfðist og hrista það sem ekki hreyfðist."
Þetta eru allt góðir punktar en hvað meinar Bjarni með að opna hagkerfið? Er hann að boða niðurfellinga tolla t.d í landbúnaðarkerfinu? Það væri gaman að heyra hvað formaður bændasamtakanna og tilvonandi þingmann XD segir við því? Ætlar hann að losa gjaldeyrihöftin?, Hann segir að laða fram fjárfestingu? Allt nema í sjávarútveginum? þ.e erlenda fjárfestingu.
Hvar stóð XD í þessu Nubo máli? Veit ekki betur en skrímsladeildin var mikið á móti..
Það er gott að Bjarnir stefnir á það að minnka ríkið og hætta að láta ríkið vera upphaf og endi alls.
En ég bíð eftir niðurskurðartillögunnar. Bíð rólega
hvells
![]() |
Við viljum stækka kökuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hann talaði einum of mikið í frösum fyrir heimska almúgann.
Vona að concrete og betri útskýring á stefnumálum komi sem fyrst fram.
sl
Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2013 kl. 15:52
ég vona að aðilar sem halda kosningasjónvarpið fara að skirfa niður punkta núna og undirbúa sig
hvells
Sleggjan og Hvellurinn, 12.1.2013 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.